Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samiðn vill aðgerðir til að styrkja Íbúðalánasjóð Samiðn, Samband iðnfélaga, krefst þess að Íbúðalánasjóður verði styrktur til að koma þeim eignum sem sýnt er að ekki seljast næstu árin í sérstakt eignarhaldsfélag. Þannig verði komið í veg fyrir að þau íþyngi rekstri íbúðalánasjóðs og hafi áhrif á útlánavexti sjóðsins. Þetta kemur fram í ályktun sambandsins sem samþykkt var á ársþingi þess sem lauk í dag. 15.5.2010 16:28
Ákærður eftir mótmæli gegn striðsrekstri Lárus Páll Birgisson sjúkraliði hefur verið ákærður eftir mótmæli við Sendiráð Bandaríkjanna þann 1. október í fyrra. Hann er ákærður fyrir að fylgja ekki fyrirmælum lögreglunnar. 15.5.2010 16:11
Réðst inn í verslun vopnaður hnífi Gerð var tilraun til þess að ræna verslunina Mini Market, í Drafnarfelli, um tvöleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa hefur frá afgreiðslumanni í versluninni kom maður inn í verslunina vopnaður hnífi og ógnaði afgreiðslufólki með honum. Lögreglan hefur handtekið mann vegna málsins. 15.5.2010 16:04
Gosmökkurinn aldrei sést betur frá Reykjavík Skyggni á sunnanverðu landinu er með besta móti. Gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli hefur líklegast aldrei sést betur frá Reykjavik en í dag. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Gosmökkurinn hefur annars ekki valdið samgöngutruflunum um íslenska flugstjórnarsvæðið í dag. 15.5.2010 14:42
Nýr prestur settur í Fríkirkjunni Bryndís Valbjarnardóttir, nýr prestur, verður sett inn í embætti í Fríkirkjunni í Reykjavík í hátíðarmessu annaðkvöld. Bryndís er guðfræðingur frá Háskóla Íslands en hefur starfað sem útfarastjóri mörg undanfarin ár. 15.5.2010 13:34
Meintir stórþjófar handteknir Þrír menn voru handteknir í gærkvöld grunaðir um innbrot og þjófnaði í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi. 15.5.2010 13:23
Búast við að breska flugstjórnarsvæðinu verði lokað Búist er við því að flugstjórnarsvæðinu yfir Bretlandi verði lokað frá og með morgundeginum til þriðjudags vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. 15.5.2010 13:04
Samfylkingin hefur skipað umbótanefnd Samfylkingin hefur skipað umbótanefnd sem hefur það verkefni að leiða umræður og skoðanaskipti um störf, stefnu og ábyrgð flokksins í aðdraganda bankahrunsins. Nefndinni er ætlað að skila tillögum um umbætur á flokksstarfi og skipulagi næsta haust. 15.5.2010 12:03
Verslunarmenn í Reykjavík óttast minni ferðamannaverslun Verslunarmenn í miðborg Reykjavíkur óttast að ferðamannaverslun í sumar verði mun minni en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Framkvæmastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að menn séu uggandi enda sé miðborg Reykjavíkur um þessar mundir eins og dauðs manns gröf. 15.5.2010 11:57
Dimmt öskumistur yfir Vestmannaeyjum Gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli sást vel frá Vestmannaeyjum í gær. Að sögn Gísla Óskarssonar fréttaritara í Vestmannaeyjum virtist sem öskuskýið breiddi úr sér eins og sveppahattur út frá stróknum. Nokkur aska féll í nótt eins og sjá mátti á þeim stöðum sem höfðu verið hreinsaðir af ösku sem féll gær. 15.5.2010 11:39
Bræður munu berjast Bræður munu berjast um forystu Verkamannaflokksins í Bretlandi. Búist er við því að Ed miliband, bróðir David Milibands muni tilkynna um framboð í 15.5.2010 09:59
Ræningjar ógnuðu leigubílstjóra með hnífi Tveir karlmenn ógnuðu leigubílstjóra í Engjaseli í Breiðholti um þrjúleytið í nótt. Leigubílstjórinn hafði brugðið sér um stund út úr bílnum þegar mennirnir veittust að honum með hnífi og ógnuðu honum. Þeir hrifsuðu af 15.5.2010 09:19
Efnahagskreppan aðalviðfangsefni Rauða krossins í dag Efnahagskreppan og áhrif hennar á starf Rauða krossins í íslensku samfélagi er meginviðfangsefni aðalfundar Rauða kross Íslands sem haldinn er í dag. Hátt á annað hundrað fulltrúar frá 46 deildum sækja aðalfundinn. 15.5.2010 09:04
Kominn með nokkrar hænur landbúnaður Júlíus Már Baldursson, landnámshænsnabóndi á Tjörn í Vatnsnesi, hefur tekið fyrstu skrefin í að byggja upp stofninn sem hann glataði þegar á þriðja hundrað landnámshænsn drapst í eldsvoða 30. mars síðastliðinn. Tíu hanar komust af og nú hefur Júlíus bætt nokkrum pútum við. 15.5.2010 09:00
Upplýsingum haldið frá stjórn í rúmt ár Áhættustýring Kaupþings, undir stjórn Steingríms P. Kárasonar, leyndi stjórn bankans upplýsingum um stórfellda eign bankans í sjálfum sér frá miðju ári 2007 og fram að falli hans. Þetta er eitt þeirra brota sem sérstakur saksóknari rannsakar nú og liggur til grundvallar gæsluvarðhalds- og farbannsúrskurðum yfir Kaupþingsmönnum. 15.5.2010 08:30
Gögn um aðildarviðræður opinberuð Össur Skarphéðinsson hyggst opna gagnvirka heimasíðu til þess að Íslendingar geti komið skoðunum á framfæri við samninganefnd Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 15.5.2010 08:00
Flestir vilja bíða niðurstöðu dóms Þingmenn tókust á um það í gær hvort tillaga Björns Vals Gíslasonar væri tæk til þinglegrar meðferðar. Hún kveður á um að skrifstofustjóra Alþingis verði falið að fara þess á leit við ríkissaksóknara að hann dragi til baka ákæru á hendur níu mótmælendum sem sakaðir eru um að hafa ráðist á Alþingi. 15.5.2010 07:00
Átta fallnir í mótmælum Mótmælendum laust saman við hermenn í miðborg Bangkok, höfuðborgar Taílands í gær. Hermenn skutu af hríðskotarifflum á mannfjöldann. Átta létust í átökunum í gær og í það minnsta 101 slasaðist. 15.5.2010 06:30
Aukin ábyrgð og stærri og færri ráðuneyti Starfshópur forsætisráðuneytisins leggur til umfangsmiklar breytingar á stjórnsýslunni og stjórnarskránni í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Áhersla er lögð á færri og stærri ráðuneyti, söfnun upplýsinga og að ráðherrar beri aukna ábyrgð. 15.5.2010 06:00
Dagvara hækkaði um 9% á einu ári Velta í dagvöruverslun dróst saman um 11,7 prósent á föstu verðlagi í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn nemur 3,5 prósentum á breytilegu verðlagi. Verð á dagvöru hækkaði um 9,3 prósent á síðastliðnum tólf mánuðum. 15.5.2010 05:00
Listabókstaf vantaði í klefann kosningar Kjósandi í Kópavogi sem hugðist greiða Næstbesta flokknum atkvæði furðaði sig á því að aðeins voru stimplar með listabókstöfum fjórflokkanna í kjörklefa Sýslumannsins í Kópavogi. Þurfti hann að spyrjast fyrir hverju þetta sætti. Sjö flokkar bjóða fram í kosningunum 29. maí. 15.5.2010 04:00
Skilaði áburðinum og sendir féð í sláturhús „Ég var að skila áburðinum. Við erum að huga að því að koma kindunum í burtu og svo því hvað við eigum að gera við nautgripina.“ 15.5.2010 03:00
Öskuhjól á Hvolsvelli Fjölskylda Björns Á. Guðlaugssonar á Hvolsvelli tóku þessa skemmtilegu mynd í dag en öskufallið er búið að vera svo mikið í kringum eldstöðvar Eyjafjallajökuls að íbúar í nágrenninu hafa varla getað farið út. 14.5.2010 22:59
Sýknaður fyrir að brennimerkja börnin sín Bandaríkjamaðurinn Mark Seamands var sýknaður fyrir að brennimerkja börnin sín með stöfunum „SK“ sem merkja, Seamand´s kids, eða börnin hans Seamands. 14.5.2010 21:39
Japönsk yfirvöld vilja ekki banna barnaklám Japönsk yfirvöld hafa komið í veg fyrir lög sem eiga að banna barnaklám þar í landi verði samþykkt. Það var ákvörðun lýðræðisflokksins í Japan, sem fer með meirihluta í landinu, sem ákvað að samþykkja ekki lög um að það væri ólöglegt að hafa barnaklám undir höndum líkt og hér á landi. Samkvæmt frétt Daily Telegraph þá er ákvörðun flokksins reiðarslag fyrir þrýstihópa sem berjast gegn barnaklámi í Japan. 14.5.2010 20:32
EVE online þriðji besti tölvuleikur allra tíma Lesendur tímaritsins PC Gamer, hafa kosið íslenska tölvuleikinn EVE online þriðja besta tölvuleik veraldar. Eins og kunnugt er þá er leikurinn byggður á íslensku hugviti. 14.5.2010 19:47
Mesta öskufallið til þessa í bæjarfélögum Suðurlands Öskufall í bæjarfélögum Suðurlands í dag var það mesta til þessa frá því toppgígur Eyjafjallajökuls hóf að gjósa fyrir sléttum mánuði. Á Hvolsvelli sjá íbúar fram á margra daga hreinsunarstarf og undir Eyjafjöllum eru bændur fyrir löngu búnir að fá meira en nóg. 14.5.2010 19:02
Jón Ásgeir segist ætla að skila stuttum eignalista Lögmenn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vinna að því að útbúa lista yfir eignir hans sem honum ber að skila á morgun. Hann segir listann ekki langan en honum verði skilað áður en að fresturinn rennur út. 14.5.2010 18:49
Ráðuneytafrumvarp ekki lagt fram á vorþingi Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, telur ólíklegt að frumvarp um fækkun og sameiningu ráðuneyta verði lagt fram á yfirstandandi vorþingi. Ríkisstjórnin megi þó ekki hlífa sjálfri sér við að ná fram hagræðingu. 14.5.2010 18:47
Reikna með millilandaflugi í fyrramálið Ekkert hefur verið flogið frá Keflavíkurflugvelli í dag en flugvellinum var lokað í nótt vegna öskufalls úr Eyjafjallajökli. 14.5.2010 18:41
Magnús Guðmundsson segist saklaus Magnús Guðmundsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í viku og hefur nú verið úrskurðaður í farbann, segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér að sakleysi hans verði sannað að lokum. 14.5.2010 18:32
Bókari dæmdur til þess að greiða 28 milljónir til baka Fyrrverandi bókari og gjaldkeri húsnæðissamvinnufélagsins Búseta var dæmdur í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða til baka 28 milljónir til Búseta sem hann dró að sér. Bókarinn, sem heitir Jón Jóhannesson, starfaði í 16 ár hjá félaginu áður en upp komst um fjárdráttinn. 14.5.2010 17:56
Misþyrmdu fjölskyldu fyrir framan sex vikna barn Hæstiréttur staðfestir dóm yfir tveimur hrottum sem gengu í skrokk á 64 ára gömlum manni, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ þann 3. maí síðastliðinn. Mennirnir þurfa því að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 8. júní hið minnsta. 14.5.2010 17:12
Umbótanefnd Samfylkingarinnar tekur til starfa Umbótanefnd Samfylkingarinnar sem ákveðið var á flokksstjórnarfundi 17. apríl sl. að stofna til er nú fullskipuð. Hún hefur það verkefni að leiða umræður og skoðanaskipti um störf, stefnu, innri starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. 14.5.2010 16:56
Ölvaður á ofsahraða Karl um þrítugt var stöðvaður í akstri á Vesturlandsvegi á móts við Höfðabakka síðdegis í gær. Bíll hans mældist á 147 km hraða en þarna er 80 km hámarkshraði. Maðurinn reyndist jafnframt vera ölvaður. 14.5.2010 16:52
Meintur svikahrappur áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er grunaður um að hafa svikið um 300 milljónir króna út úr 90 einstaklingum. 14.5.2010 16:47
Hársbreidd frá kjarnorkuárás á Kína Kínverskur sagnfræðingur segir að árið 1969 hafi Sovétríkin verið komin á fremsta hlunn með að gera kjarnorkuárás á Kína. 14.5.2010 15:27
Öskufall í Vestmannaeyjum, „Þetta er ógeðslegt" Öskufall úr gosinu í Eyjafjallajökli hefur nú náð til Vestmannaeyja og angrar íbúa þar. Óskar Friðriksson ljósmyndari Fréttablaðsins segir að..."þetta sé ógeðslegt". Askan sé fín, ólíkt gjallinu í gosinu í Eyjum 1973, og klínist við föt og í hár fólks. 14.5.2010 15:20
Mikill samdráttur í verslun Óvenjumikill samdráttur varð í veltu dagvöruverslunar í síðasta mánuði. Sala á áfengi dróst saman um þriðjung milli ára og sala á raftækjum um rúmlega 13 prósent. Skattahækkanir og ríkjandi óvissa um þróun efnhagsmála hefur breytt neyslumynstri almennings segja verslunarmenn. 14.5.2010 19:14
Ferðamenn skoða foss með rykgrímur Erlendir ferðamenn þurftu að bera rykgrímur þegar þeir skoðuðu Seljalandsfoss í dag, svo mikil var gosaskan. Þeir upplifðu þetta þó engu að síður sem mikið ævintýri. 14.5.2010 19:13
Breskur þingmaður stunginn Þingmaður breska Verkamannaflokksins og fyrrverandi ráðherra var stunginn hnífi í árás á hverfafundi í Lundúnum í dag. 14.5.2010 16:27
Magnúsi sleppt - tveggja vikna farbann Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg er laus úr gæsluvarðhaldi og hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna farbann þess í stað. Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað þetta nú fyrir stundu en gæsluvarðhald yfir Magnúsi rann út í dag. 14.5.2010 15:03
Viðbúnaður vegna elds í togara Mikill viðbúnaður var eftir hádegið í dag þegar tilkynnt var um eld í vélarrúmi togara sem staddur var um 40 mílur fyrir utan Skagatá. 14.5.2010 14:46
Það munaði sentimetrum -myndband Breska umferðarlögreglan hefur hvatt unnendur járnbrautarlesta til að hafa varann á þegar þeir eru að mynda þær. 14.5.2010 14:27
Carlsberg boða uppsagnir eftir verkfall Carlsberg bjórverksmiðjurnar boða uppsagnir starfsfólks þegar það loks kemur til vinnu aftur eftir verkfall sem hófst í síðustu viku. 14.5.2010 13:49