Innlent

Öskufall í Vestmannaeyjum, „Þetta er ógeðslegt"

Mynd: Erna Ingólfs.
Mynd: Erna Ingólfs.
Öskufall úr gosinu í Eyjafjallajökli hefur nú náð til Vestmannaeyja og angrar íbúa þar. Óskar Friðriksson ljósmyndari Fréttablaðsins segir að..."þetta sé ógeðslegt". Askan sé fín, ólíkt gjallinu í gosinu í Eyjum 1973, og klínist við föt og í hár fólks.

Óskar hefur verið að fylgjast með hópi 33 kvenna úr sveitunum undir Eyjafjöllum. „Við buðum þeim hingað svo þær gætu fengið smá hvíld frá gosinu og svo gerist þetta," segir Óskar.

Kristján Már Unnarsson fréttamaður á Stöð 2 er nú staddur í Landeyjum. Hann segir að vindáttin hafi verið að breytast smátt og smátt í dag og standi nú í suðsuðvestur. „Við sjáum að strókurinn úr jöklinum stefnir beint yfir Vestmannaeyjar," segir Kristján.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×