Skilaði áburðinum og sendir féð í sláturhús 15. maí 2010 03:00 aska féll víða Öskufalls varð vart allt vestur á Snæfellsnes í gær. Þessi mynd var tekin í Fljótshlíðinni, þar sem öskulag hafði sest á heyrúllur.frettabladid/Pjetur „
Ég var að skila áburðinum. Við erum að huga að því að koma kindunum í burtu og svo því hvað við eigum að gera við nautgripina.“ Þetta segir Ármann Fannar Magnússon, bóndi á Hrútafelli undir Eyjafjöllum. Hann segir útlitið ekki bjart hvað búskapinn varðar. Gosið sé enn í fullum gangi og hætta á frekari norðanátt, og þar með enn frekara öskufalli. Ármann er með um 200 fjár og nær 100 nautgripi. Hann getur ekki haft neinar skepnur úti og segir orðið þröngt á fénu, því sauðburður sé langt kominn. Hann kveðst hafa misst tvö lömb sem mögulega hafi farið úr flúoreitrun, svo og tvær kindur. Ein kind til viðbótar sé orðin veik. Hugsanlega hafi aska smogið inn í fjárhúsin með þessum afleiðingum. „Ég býst við að senda féð í sláturhús í haust. Spurningin er hvort maður fari eitthvert annað með nautgripina. Það er eftir að skoða það mál betur,“ segir Ármann Fannar. Hann segir ekki líta vel út með eðlilega búskaparhætti undir Eyjafjöllum þessa dagana sökum öskufalls. Í fyrradag hafi askan enn einu sinni hvolfst yfir sveitina, þrátt fyrir kyrrt veður. „Það gerði alveg kolniðamyrkur,“ segir hann og kveðst vita til þess að sumir sveitunga sinna hafi ákveðið að hætta búskap í bili og aðrir hljóti að vera að hugleiða það. Ekkert lát virðist vera á gosinu og ekki séð fyrir um afleiðingar þess. Þegar veðurspár gerðu ráð fyrir því að öskufall bærist vestur á bóginn í gær gerðu margir bændur ráðstafanir til að byrgja fé inni og flytja til hross. Guðmundur Jón Viðarsson, bóndi að Skálakoti undir Vestur-Eyjafjöllum, var einn af þeim. „Ég byrgði tæplega 300 kindur og flutti um 130 hross af svæðinu,“ segir hann. „Það er handleggur að koma lambfénu undan þessu en það gekk áfallalaust,“ segir hann og kveður sem betur fer hafa orðið lítið vart við öskufallsstrókinn. „Óskastaðan er sú að gosið myndi hætta eða þá að breytast úr öskugosi í hraungos,“ segir Guðmundur. „Hér undir Austur-Eyjafjöllum er heil sveit að leggjast í auðn. Við erum að tala um mjög alvarlega hluti og fólk er orðið langþreytt.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Sjá meira