Innlent

Efnahagskreppan aðalviðfangsefni Rauða krossins í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða krossinum. Mynd/ Vilhelm.
Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða krossinum. Mynd/ Vilhelm.
Efnahagskreppan og áhrif hennar á starf Rauða krossins í íslensku samfélagi er meginviðfangsefni aðalfundar Rauða kross Íslands sem haldinn er í dag. Hátt á annað hundrað fulltrúar frá 46 deildum sækja aðalfundinn.

Að sögn Sólveigar Ólafsdóttur, sviðsstjóra útbreiðslusviðs Rauða krossins, verður skýrslan „Hvar þrengir að?" sem kynnt var í gær notuð til grundvallar við mótun nýrrar stefnu félagsins til ársins 2020. Skýrslan var að hennar sögn unnin til að finna þá hópa sem búa við verstu kjörin í íslensku þjóðfélagi svo félagið geti skilgreint hvar þörfin fyrir aðstoð er mest hverju sinni. Eftir samskonar kannanir sem gerðar voru 1994, 2000, og 2006, jók Rauði kross Íslands til að mynda starf sitt með fólki með geðraskanir, efldi heimsóknarþjónustu fyrir aldraða og sjúka til að rjúfa félagslega einangrun, og hleypti af stokkunum verkefnum í þágu innflytjenda.

Sérstakur gestur aðalfundarins er Georg Habsburg, formaður Rauða krossins í Ungverjalandi. Hann flytur erindi um viðbrögð Rauða krossins við þeim efnahagsþrengingunum sem Ungverjar eru að ganga í gegnum. Almenningur hefur orðið mjög illa úti vegna óraunhæfra lánaviðskipta, myntkörfulána, atvinnuleysis og óstöðugleika gjaldmiðilsins.

Fjölmargar hliðstæður er að finna um afleiðingar kreppunnar í Ungverjalandi og á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×