Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Svandís: Hegðun þáttagerðarmanna Top Gear verði rannsökuð Gæta þarf betur að umgengni ferðafólks upp að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Einkum nú þegar frost er að fara úr jörðu og jarðvegur verður viðkvæmur fyrir ágangi. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Hún vonast til þess að meintur utanvegaakstur þáttagerðamanna Top Gear verði rannsakaður. 10.4.2010 12:59
Vilhjálmur: Ekki við hæfi að fyrirtæki Pálma dreifi gjöfum Vilhjálmur Bjarnason, lektor, segist ekki vilja þiggja gjafir frá fyrirtæki í eigu manns sem hafi sennilega orðið uppvís að því að tæma banka. En hann neitaði að taka við flugmiða frá Iceland Express í gærkvöldi eftir sigur með liði sínu í spurningakeppninni Útsvar á Ríkissjónvarpinu. Hann segir ekki við hæfi að slíkt fyrirtæki dreifi gjöfum með þessum hætti. 10.4.2010 12:50
Ógerlegt fyrir þingmenn að kynna sér efni skýrslunnar Þingmenn Hreyfingarinnar lýsa furðu sinni á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis í næstu viku þar sem taka á fyrir skýrslu rannsóknarnefndar þingsins. Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Hreyfingarinnar, segir nær ógerlegt fyrir þingmenn að kynna sér innihalds skýrslunnar nægilega vel áður en hún er tekin til umræðu á Alþingi. 10.4.2010 12:24
Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. 10.4.2010 11:37
Þjófar í annarlegu ástandi handteknir Karl og kona voru handtekin um níuleytið í morgun í verslun við Skúlagötu í Reykjavík. Þau höfðu brotist inn í verslunina og voru komin með töluvert magn af þýfi þegar lögregla kom á staðinn. Fólkið var í annarlegu ástandi, að sögn varðstjóra. Þau verða yfirheyrð síðar í dag en bæði eru þau góðkunningjar lögreglu. 10.4.2010 11:15
Um þriðjungur Dana vill drottninguna burt Um þriðjungur Dana vill að Margrét Þórhildur Danadrottning afsali sér krúnunni og Friðrik sonur hennar taki við Þetta sýnir ný könnun sem Capacent gerði á meðal 2000 svarenda fyrir Rizau fréttastofuna. Um 17% eru í vafa um hvort drottningin eigi að sitja áfram í sæti sínu eða ekki. 10.4.2010 10:45
Fjöldaútför í Kirgistan Þúsundir manna mættu í jarðarför margra þeirra sem féllu í mótmælum í Bishkek höfuðborg Kirgistan á miðvikudag. 76 manns féllu í átökum við lögreglu og um 1400 manns særðust. Fjöldaútförin fór fram í útjaðri höfuðborgarinnar þar sem kistur hinna látnu voru bornar til grafar sveipaðar fána Kirgistans. Margir syrgjendur báru myndir af hinum látnu. Flestir hinna látnu féllu þegar lögregla skaut á mannfjölda sem réðst inn í opinberar byggingar í miðborginni. 10.4.2010 10:04
Líkklæði Krists til sýnis í Torínó Líkklæðið frá Turin sem margir telja að sé líkklæði Krists, verður til sýnis í borginni Torínó á Ítalíu frá og með deginum í dag. Raðir mynduðust við sýningarstaðinn strax í morgun en klæðið hefur ekki verið til sýnis frá því árið 2000. 10.4.2010 09:57
Ekkert ferðaveður í grennd við gosstöðvarnar Ekkert ferðaveður er í grennd við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögregla varar ferðamenn við að vera á svæðinu í dag. Mikill krapi er á Mýrdalsjökli sem er illfær. Þá hafa verið miklir vatnavextir í ám í Þórsmörk bæði vegna úrkomu og bráðnunar frá eldgosinu. 10.4.2010 09:38
Innbrot í tölvuverslun Brotist var inn í tölvuverslun á Stórhöfða í nótt og ýmsum tölvubúnaði stolið. Lögreglu barst tilkynning um málið á sjöunda tímanum í morgun. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. 10.4.2010 09:25
Vegir víðast hvar auðir Það er hlýtt um allt land og vegir víðast hvar auðir. Þó eru hálkublettir á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Breiðdalsheiði eru einnig hálkublettir, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 10.4.2010 09:13
Forseti Póllands fórst í flugslysi Lech Kaczynski, forseti Póllands, og eiginkona hans fórust ásamt 130 öðrum þegar flugvél sem hann var í fórst í vesturhluta Rússlands klukkan sjö í morgun. Enginn þeirra sem um borð var lifði slysið af. Flugvélin var af gerðinni Tupolev 154, framleidd í Rússlandi og var á leið inn til lendingar þegar slysið varð. 10.4.2010 09:06
Vanmeta magn hraunsins „Nýting gervitungla er mjög skemmtileg viðbót,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, um nýjan búnað bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA), sem gerir vísindamönnum mögulegt að fylgjast með gosinu við Fimmvörðuháls úr geimnum. 10.4.2010 09:00
Samgöngumiðstöð á hreyfingu Hönnun samgöngumiðstöðvar verður boðin út í næsta mánuði og framkvæmdir við hana ættu að hefjast fyrir áramót, eftir að Reykjavíkurborg og samgönguyfirvöld komust að samkomulagi um hana á fimmtudag. 10.4.2010 07:00
Ráðherra lýsir stríði á hendur lúpínunni Ræktun lúpínu á Íslandi verður stórlega takmörkuð frá því sem nú er, samkvæmt nýrri áætlun umhverfisráðuneytisins. 10.4.2010 06:00
Útgönguleið fyrir unga afbrotamenn Undanfarin ár hafa blóðug átök milli glæpagengja í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku hvort tveggja vakið ótta almennings og magnað spennu víða í hverfum innflytjenda. 10.4.2010 06:00
Geta byrjað á álveri á Bakka árið 2013 Framkvæmdir geta hafist við álver á Bakka árið 2013, náist samningar og skilyrði umhverfismats verði uppfyllt, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sameiginlegt mat virkjana við Þeistareyki og álvers á Bakka verður auglýst síðar í mánuðinum. 10.4.2010 06:00
Vonir björgunarmanna dvína „Þetta var löng og erfið nótt,“ sagði Joe Manchin, ríkisstjóri Vestur-Virginíu, sem hefur fylgst með björgunaraðgerðum við kolanámuna í Montcoal, þar sem fjórir kolanámumenn hafa verið innilokaðir síðan á mánudag. 10.4.2010 06:00
Ný tæki komast ekki á Netið klárist IP-tölur Innan við tíundi partur er eftir af auðkennum sem tölvum er úthlutað á internetinu, IPv4. Unnið er að því að taka upp næstu kynslóð auðkenna í netsamskiptum, IPv6. OECD hvetur til hraðari upptöku til að hægi ekki á framþróun Netsins. 10.4.2010 05:00
Tóku sjónvarpshúsið á sitt vald Stuðningsmenn Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðhera Taílands, halda ótrauðir áfram mótmælum gegn núverandi stjórn. Í gær lögðu þeir undir sig fjarskiptafyrirtæki, sem lagðar höfðu verið niður útsendingar sjónvarpsstöðvar sem notið hefur vinsælda stjórnarandstæðinga. 10.4.2010 05:00
Fækka má slysum með nýjum búnaði Væri bílafloti landsmanna allur búinn nýjasta öryggisbúnaði mætti mögulega fækka umferðarslysum um ríflega þúsund á ári hverju. Þetta er mat Bílgreinasambandsins og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). 10.4.2010 05:00
Fráleitt að fresta viðræðum við ESB Fráleitt er að halda því fram að fresta eigi ESB-viðræðum eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra hefur gert, að mati Össurar Skarphéðinssonar, núverandi utanríkisráðherra. „Menn mega ekki fara á taugum þótt blási aðeins á móti,“ sagði hann í gær við Stöð 2. 10.4.2010 04:00
Hvetur Rússa til að birta skjöl Pólska þingið hvetur Rússa til þess að gera öll skjöl opinber er varða fjöldamorðin í Katýnskógi árið 1940, þegar rússneskir leyniþjónustumenn myrtu 22 þúsund pólska hermenn. 10.4.2010 04:00
Bakajev flúinn til Afganistans Þúsundir manna söfnuðust saman á aðaltorgi Biskeks, höfuðborgar Kirgisistan, til að minnast þeirra sem féllu í átökum í vikunni þegar stjórn Kurmanbeks Bakijev forseta var steypt af stóli. 10.4.2010 03:30
Ellefu kiðlingar komu í heiminn Geitburði er nú lokið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og mun það trú starfsmanna að nú sé vorið að koma. 10.4.2010 03:15
Félag fréttamanna ætlar að funda um stefnu Pálma „Ég geri ráð fyrir að við munum halda stjórnarfund fljótlega og fara í gegnum þetta," segir Aðalbjörn Sigurðsson, formaður í Félagi fréttamanna á RÚV, um stefnu Pálma Haraldssonar í Fons gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni. 9.4.2010 22:00
Vilhjálmur Bjarnason neitaði að taka við verðlaunum frá Iceland Express Garðabær sigraði í spurningakeppninni Útsvar sem fram fór á Ríkisútvarpinu í kvöld. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, var í sigurliðinu. Hann neitaði að taka við hluta verðlaunanna sem í boði voru fyrir sigurliðið. Um var að ræða ferðaávísun frá Iceland Express. 9.4.2010 21:15
Kvikan að færast í átt að Kötlu? Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur veltir upp þeim möguleika í grein á heimasíðu sinni að kvikan undir Eyjafjallajökli sé að færast til austurs í átt að Kötlu. Hann bendir á að jarðskjálftar hafi verið að færast undanfarna tvo daga í átt að Goðabungu í Mýrdalsjökli. 9.4.2010 19:50
Vilhjálmur Bjarnason: Þetta útskýrir sig sjálft „Ég þarf ekkert að útskýra þetta. Þetta útskýrir sig sjálft. Ég var hluthafi í Glitni,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands. Vilhjálmur var í sigurliði Garðabæjar í spurningakeppninni Útsvar sem fór fram á RÚV í kvöld. 9.4.2010 21:52
Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki styrkinn Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki 230 milljóna króna styrkinn frá Reykjavíkurborg eins og ákveðið var fyrr en öðrum framkvæmdum er lokið segir borgarstjóri. Stjórn klúbbsins hefði átt að greina borginni frá því að styrkur borgarinnar frá síðasta ári hafi verið notaður til að niðurgreiða eldri framkvæmdalán. 9.4.2010 19:17
Hönnun samgöngumiðstöðvar boðin út í næsta mánuði Hönnun samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli verður boðin út í næsta mánuði og smíði hafin fyrir áramót, eftir að ríki og borg náðu í gær samkomulagi um skipulagsmál. Samgönguráðherra vonast til að miðstöðin verði tilbúin innan tuttugu mánaða. 9.4.2010 19:12
Hraunið ekkert nálgast Þórsmörk í tvær vikur Hraunið frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi hefur ekkert nálgast sléttlendið í Þórsmörk undanfarnar tvær vikur. Þess í stað hleðst það upp innst í Hvannárgili. Hraunrennslið úr gígunum er að meðaltali fimmtán rúmmetrar á hverri sekúndu, að mati jarðvísindamanna Háskóla Íslands, eða sem samsvarar þrjátíu til fjörutíu tonnum á sekúndu. 9.4.2010 19:06
Ekkert ferðaveður á Mýrdalsjökli Ekkert ferðaveður er á Mýrdalsjökli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Á jöklinum er einnig mikill krapi og hann illfær. Þá eru miklir vatnavextir í ám í Þórsmörk bæði vegna úrkomu og bráðnunar frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. 9.4.2010 17:36
Tveir menn teknir með tugi kílóa af kannabisplöntum Tveir menn voru handteknir í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gær vegna gruns um kannabisræktun. Aðdragandi málsins var á þann veg að lögreglu bárust síðdegis á miðvikudag upplýsingar um að frá sumarbústað í Grímsnesi leggði megnan gróðurilm. Lögreglumen frá Selfossi fór að húsinu og leyndi sér ekki að lykt af kannabis barst út frá því. Farið var inn í húsið sem 9.4.2010 17:22
Hreyfingin furðar sig á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis Þingmenn Hreyfingarinnar furða sig á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis í næstu viku eftir útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þingmennirnir hafa sent fjölmiðlum. Skýrslan verður birt klukkan 10:15 á mánudag. Fyrirhugað er að umræðan um skýrsluna fari fram í þinginu n.k. mánudag, þriðjudag og miðvikudag í samtals 10½ klukkustund. 9.4.2010 19:52
Dældu 15 þúsund lítrum af vatni úr Garðaskóla Slökkviliðið dældi 15 þúsund lítrum af vatni út úr Garðaskóla í morgun þegar vatn lak þar um kjallarann. 9.4.2010 20:45
Fréttir Stöðvar 2 í nýju umhverfi Útlit frétta Stöðvar 2 tekur stakkaskiptum í kvöld. Þá verður í fyrsta skipti sent út frá nýju fréttasetti með nýrri upphafskynningu. Allt útlit og umgjörð fréttatímans verður annað en verið hefur undanfarin fimm ár. 9.4.2010 17:29
Lífeyrissjóðir fjármagna kaup á íbúðum fyrir aldraða Fjórir lífeyrissjóðir fjármagna kaup á 78 íbúðum fyrir aldraða að Suðurlandsbraut 58-62 sem Grund-Mörkin hefur ráðist í. 9.4.2010 16:28
Eymundsson forselur rannsóknarskýrsluna Bókabúðin Eymundsson hyggst forselja rannsóknarskýrsluna yfir helgina en hún verður ekki gerð opinber fyrr en á mánudaginn klukkan hálf ellefu. 9.4.2010 16:23
Gylfi Magnússon: „Krossleggjum fingur og vonum það besta“ „Þetta eru afar góðar fréttir,“ segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, en Ísland er komið á dagskrá stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 16. apríl. 9.4.2010 16:12
Forsætisráðherra agndofa yfir póstum til Lárusar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, furðuðu sig á því í morgun að mál tengt tölvupóstssendingum milli Lárusar Welding og stórra hluthafa Glitnis hafi ekki verið sent til embættis sérstaks saksóknara. Forsætisráðherra segist agndofa yfir tölvupóstunum. 9.4.2010 16:00
Kaninn tekinn úr sambandi - sakar Lýðvarpið um árás á útvarpssendi „Ég áttaði mig á því stuttu eftir hádegi að sendir á okkar vegum í Bláfjöllum var dottinn út,“ segir Einar Bárðarson, útvarpsstjóri Kanans, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í hús þar sem sendirinn er og tekið hann úr sambandi með þeim afleiðingum að útsending útvarpsstöðvarinnar þagnaði. 9.4.2010 15:50
Byltingarmenn þakka Rússum Hin nýja byltingarstjórn í Kyrgistan hefur þakkað Rússum fyrir hjálpina við að steypa Kyrmanbek Bakiev forseta af stóli. 9.4.2010 15:45
Kostar sex milljónir vikulega að gæta eldstöðvanna Áætlað er að ríkið muni greiða um 6 milljónir á viku vegna lágmarksgæslu í kringum eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi en dómsmálaráðherra kynnti ríkisstjórninni í morgun erindi þess eðlis. Það er lögreglan á Hvolsvelli og björgunarsveitir sem munu gæta öryggis á svæðinu samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu. 9.4.2010 15:32
Vill að Sjálfstæðismenn taki skýrsluna alvarlega Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill að flokksmenn sínir taki niðurstöðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis alvarlega og dragi lærdóm af þeim. Þetta kemur fram í ávarpi Bjarna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins. 9.4.2010 15:08