Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugfélag Íslands aflýsir öllu flugi í dag Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu flugi í dag sökum gjóskuskýja sem takmarka flugumferð. Innanlandsflug klukkan 7:15 í fyrramálið er í athugun. 27.4.2010 12:33
Horfur á að ferðamönnum fækki um hundrað þúsund Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja allt að 350 milljónir króna í kynningarátak á íslandi, vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar ferðamanna til Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að stefnt gæti í að erlendum ferðamönnum fækkaði um allt að eitt hundrað þúsund miðað við áætlanir þessa árs, sem hefði í för með sér tekjutap upp á 25 til 30 milljarða króna. 27.4.2010 12:25
Spillingin felst í lánagjörningnum sjálfum Gróði eða tap þeirra sem fengu vildarlán í hinum föllnu bönkum hefur ekkert með það að gera hvort slík lán teljast vera spilling eða ekki. Það hvort lántakinn stendur að lokum uppi með gróða eða tap er ekki vottur um spillt eða óspillt samskipti en er eingöngu mælikvarði á hvort um var að ræða velheppnaða eða misheppnaða spillingu. Spillingin felst í lánagjörningnum sjálfum. Þetta segir Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi aðstoðarmaður fjármálaráðherra í grein á vefritinu Smugunni. 27.4.2010 12:19
Töluvert vatnsrennsli niður Gígjökul Smá sprengingar hafa verið í morgun í gosinu í Eyjafjallajökli, en að öðru leyti er gosórói svipaður og undanfarna sólarhringa. Aska stígur upp í rösklega þriggja kílómetra hæð og leggur til norðvesturs, en öskufall í byggð er sára lítið og greinist varla, þar sem það er á annað borð. 27.4.2010 12:07
Kanna skilyrði eftir hádegi Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun vegna eldfjallaösku í lofti, en Flugfélag Íslands og Ernir ætla að kanna skilyrði eftir hádegi. Flugi Icelandair og Iceland Express frá landinu var flýtt un nokkrar klukkustundir í morgun, en loftrými yfir Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum eru lokuð. 27.4.2010 12:05
Seinkun á flugi næsta sólarhringinn - flogið á fimmtudag Icelandair stefnir að því færa tengibanka sinn frá Glasgow til Íslands á morgun og fljúga samkvæmt áætlun frá og með fimmtudagsmorgni. Vegna takmarkana á flugi um Keflavíkur- og Akureyrarflugvelli næsta sólarhringinn er gert ráð fyrir töluverðum seinkunum fram að þeim tíma. 27.4.2010 11:53
Niðurstaða dómstólsins kom á óvart „Þetta kom svolítið á óvart en ég var alltaf ótrúlega bjartsýnn,“ segir Vörður Ólafsson, húsasmiður, en hann kærði gjaldtöku Samtaka Iðnaðarins til Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst að þeirri niðurstöðu að iðnmálagjald stæðist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. 27.4.2010 11:20
Rússar og Norðmenn skipta Barentshafi á milli sín Norðmenn og Rússar hafa náð samkomulagi eftir fjörutíu ára deilur um yfirráð yfir Barentshafi. 27.4.2010 11:15
Ökumanns leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem stöðvaði ekki bifreið sína eftir árekstur tveggja bifreiða á mótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í hádeginu í gær. 27.4.2010 11:08
Framkvæmdastjóri SI: Nýsköpun mun skaðast „Þetta er stór þáttur í okkar tekjustraumum en tilvera okkar veltur ekki á þessu,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins, en Mannréttindadómstóll Evrópu birti úrskurð í morgun um að iðnmálagjald sé ólögmætt. 27.4.2010 10:56
Iðnaðarmálagjald stenst ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) kvað upp dóm um lögmæti iðnaðarmálagjalds í morgun. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að lögin um iðnaðarmálagjaldið stæðust ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. 27.4.2010 10:29
Ísraelar frysta framkvæmdir í Jerúsalem Tilkynnt var um byggingu 1600 íbúða í þessum borgarhluta í síðasta mánuði einmitt þegar Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna var í heimsókn í Ísrael. 27.4.2010 10:26
Íslendingar nota allt að 20 milljónir plastpoka á ári Umhverfisráðuneytið áætlar að á bilinu 15-20 milljónir plastpoka séu notaðir hér á landi á ári hverju. Þetta kemur fram í skriflegu svari umhverfisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. 27.4.2010 10:16
Sá sem drakk stíflueyði í samkvæmi er úr allri lífshættu Maðurinn sem drakk stíflueyði í samkvæmi þar síðustu helgi hefur verið útskrifaður af gjörgæslu Landspítalans. 27.4.2010 10:06
Halldór: Sömdum ekki um skiptingu bankanna „Allt tal um pólitískt samkomulag um skiptingu bankanna er út í hött. Það áttu engin slík samtöl sér stað milli mín og Davíðs," segir Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Hann segir að það hafi ekki verið mistök að skipa Davíð Oddsson í stöðu bankastjóra Seðlabankans. 27.4.2010 09:52
Vopnaður maður handtekinn í grennd við forsetaflugvélina Vopnaður karlmaður var handtekinn á flugvellinum í Norður-Karólínu skömmu áður en flugvél Barack Obama, Bandaríkjaforseta, hélt á brott í gær. Maðurinn var stöðvaður áður en komst í tæri við forsetann. 27.4.2010 08:38
Höfuðkúpubraut 14 ára nemanda „Drepstu, drepstu, drepstu,“ hrópaði breskur náttúrufræðikennari áður en hann sló 14 ára gamlan dreng í höfuðið með lóði í kennslustund á síðasta ári. Réttarhöld í málinu hófust í gær en kennarinn á yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. 27.4.2010 08:29
Vill vinna með báðum flokkum en ekki Brown Leiðtogi Frjálslyndra demókrata í Bretlandi hefur dregið til baka yfirlýsingu sína um að hann vilji starfa með Íhaldsflokknum eftir kosningar. Nú segist hann einnig vilja vinna með Verkamannaflokknum. 27.4.2010 08:24
Ekki í lífshættu eftir að hafa drukkið stíflueyði Karlmaður, sem saup á stíflueyði í verslun Húsasmiðjunnar við Skútuvog í Reykjavík á níunda tímanum í gærkvöldi liggur sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans, en mun ekki lengur vera í lífshættu. Þegar starfsfólk og viðskiptavinir í versluninni sáu hvers kyns var, brugðust þeir réttilega við og reyndu að láta manninn drekka mjólk á meðan beðið var eftir sjúkraliði. Við fyrstu skoðun reyndist hann mjög bólgin og sviðin í munnholi og vélinda. 27.4.2010 08:21
Myrti eiginkonuna eftir ósætti um sjónvarpgláp Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum handtók um helgina karlmann sem talinn er hafa myrt eiginkonu sína í kjölfar rifrildis um sjónvarpsgláp hans. Konan var ósátt við að eiginmaðurinn skyldi vaka frameftir til að fylgjast með úrslitum í æsispennandi hokkíleik sem þurfti þrívegis að framlengja. Maðurinn tók athugasemdum eigi 27.4.2010 08:16
Á annað hundrað umferðarlagabrot á 15 árum Karlmaður sem nýverið hlaut sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir umferðarlagabrot, hefur framið samtals 185 slík brot síðastliðin 15 ár, eða rösklega tíu brot á ári að meðaltali. Síðast var hann tekinn próflaus, en framvísaði ökuskírteini, sem ekki var lengur í gildi því búið var að svipta hann réttindum. Fyrir utan fjölmargar sektir, er refsingin núna sú sjöunda síðan árið 2003. Við lauslega athugun virðist þessi brotaferill mannsins með eindæmum hér á landi. 27.4.2010 08:13
Tveir stútar stöðvaðir Lögreglan í Árnessýslu stöðvaði ökumann á Þorlákshafnarvegi í gærkvöldi grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók annan úr umferð í nótt fyrir sömu sakir, en þrír ökumenn, allt karlmenn, voru teknir úr umferð fyrir fíkniefnaakstur í borginni um helgina. Sex voru auk þess teknir fyrir ölvunarakstur í borginni um helgina, þar af fjórir karlmenn. Í þessum níu tilvikum áttu karlmenn aðild að sjö, en konur aðeins að tveimur. 27.4.2010 08:08
Lífsleiðir borða súkkulaði Þunglyndir og daprir einstaklingar borða mun meira súkkulaði en þeir sem eru eru lífglaðir. Þetta er niðurstaða sérfræðinga í Kaliforníuháskóla í San Diego en tæplega eitt þúsund fullorðnir einstaklingar tóku þátt í rannsókninni. Enginn þátttakandi hafði áður verið greindur með þunglyndi. 27.4.2010 08:07
Bond vill hvalveiðibann Fyrrum Bondstjarnan Pierce Brosnan segir mikilvægt að alþjóðsamfélagið leggist alfarið gegn hvalveiðum. Hann segir ekki hægt réttlæta dráp á hvölum. Leikarinn vonast til þess að ný heimildarmynd sem Disney framleiddi og hann léði rödd sína í verði til þess að fleiri láti sig málið varða. 27.4.2010 08:04
Konungurinn féllst á afsögn Albert konungur Belgíu hefur fallist á afsagnarbeiðni Yves Leterme, forsætisráðherra landsins, sem sagði af sér í síðustu vikur eftir árangurslausar tilraunir til að leysa langvarandi deilur um tungumál kjördæma. Um alllangt skeið hefur verið tekist á um það hvort bæði tungumálin, flæmska og franska, verði jafngild á nokkuð stóru svæði umhverfis höfuðborgina Brussel. Þegar ekki tókst að leysa deiluna sagði einn flokkur sig úr stjórninni. 27.4.2010 07:57
Öllu flugi frestað fram yfir hádegi Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið frestað fram yfir hádegi, vegna eldfjallaösku í lofti. Athugað verður nánar með flug upp úr klukkan eitt. Flugfélagi Ernir hefur líka frestað öllu sínu morgunflugi, sem átti að vera til Sauðárkróks, Hafnar og Bíldudals. Aðstæður verða endurmetnar í hádeginu. 27.4.2010 07:53
Forseta settar siðareglur Embætti forseta Íslands verða settar siðareglur. Undirbúningur verksins er hafinn í stjórnarráðinu þar sem meðal annars hefur verið skoðað með hvaða hætti reglurnar verða festar í sessi. Kemur til álita að færa þær í lög um laun forsetans eða gefa þær út með forsetabréfi. Forsetabréf eru ein tegund stjórnsýslufyrirmæla en aðrar eru forsetaúrskurðir og reglugerðir ráðherra. 27.4.2010 06:30
Skilanefnd kannar hvort birta megi styrki til stjórnmálamanna Skilanefnd Glitnis er að kanna hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu að birta upplýsingar um styrkveitingar Glitnis til stjórnmálamanna með sama hætti og skilanefndir Kaupþings og Landsbanka Íslands hafa gert. 27.4.2010 06:00
Hámarksupphæð var tekin út úr reglum Stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík lagði það til árið 2006, fyrir prófkjör vegna alþingiskosninga 2007, að prófkjörskostnaður mætti ekki fara fram úr einni milljón króna. Einnig áttu frambjóðendur að sýna háttvísi í baráttunni og gera grein fyrir kostnaði að henni lokinni. 27.4.2010 05:00
Földu dóp í rafgeymi bíls Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og eina konu, Mindaugas Strimaitis, Tadas Griskevicius og Rima Kavalskyte, fyrir að reyna að smygla inn nær 2,8 kílóum af metamfetamíni til sölu og dreifingar. 27.4.2010 04:00
Þingmenn sitji ekki í óþökk grasrótarinnar Þingmenn eru á þingi fyrir kjósendur sína. Telji grasrót flokksins að þingmaður eigi ekki erindi á þing þá á hann einfaldlega ekki erindi þar. 27.4.2010 03:30
Þarf stærra átak en eftir bankahrunið Miklu skiptir að fara strax af stað með markaðsátak til að koma í veg fyrir mikinn samdrátt í fjölda ferðamanna sem koma hingað til lands, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. 27.4.2010 03:30
Vilja taka lán fyrir framkvæmdum Brýnt er að framkvæmdir verði ekki skornar niður í kreppunni heldur þeim haldið áfram, segir í atvinnustefnu Samfylkingarinnar sem samþykkt var á Reykjavíkurþingi flokksins um helgina. Lagt er til að tekin verði lán til þess að halda framkvæmdastiginu uppi. Borgarsjóður ráði við lántökur sem forðað gætu framkvæmda- og byggingariðnaði frá algjöru hruni. 27.4.2010 03:00
Vélmenni stöðvi gríðarlegan olíuleka Talið er að um 160 þúsund lítrar af olíu leki í hafið á degi hverjum frá olíuborpallinum sem sökk til botns á Mexíkóflóa í síðustu viku. Til að reyna að draga úr umhverfisspjöllum vegna olíunnar hafa vélmenni verið send á dýpið og eiga að gangsetja búnað sem gæti stöðvað lekann. Borpallurinn var í eigu breska olíufélagsins, BP, og lögðu talsmenn hans áherslu á að aðgerðin væri svo flókin að ekki væri víst að hún tækist. Leifarnar af pallinum eru á rúmlega 1.500 metra dýpi. 27.4.2010 03:00
Forseti Súdans heldur völdum Tilkynnt var í gær að Omar al-Basjír forseti, sem eftirlýstur er fyrir stríðsglæpi í Darfúr, hafi orðið hlutskarpastur í forsetakosningum, með um 68 prósent atkvæða. 27.4.2010 02:00
Haldið sofandi eftir að hafa drukkið stíflueyði Manni sem drakk stíflueyði í Húsasmiðjunni við Skútuvog fyrr í kvöld er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu er líðan mannsins stöðug. Hann var með meðvitund þegar hann kom á spítalann og var honum strax veitt viðeigandi meðferð af sjúkfraflutningamönnum. 26.4.2010 22:53
Noriega framseldur til Frakklands í dag Manuel Noriega, fyrrverandi einræðisherra í Panama, var í dag framseldur til Frakklands frá Bandaríkjunum. Noriega hefur setið í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfjainnflutning og í janúar komst Hæstiréttur Bandaríkjanna að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að stöðva framsal á honum til Frakklands eftir afplánun. 26.4.2010 21:55
Meirihluti stjórnar BÍ neitaði að skrifa undir reikninga Á stjórnarfundi Blaðamannafélags Íslands sem haldinn var í kvöld neitaði meirihluti stjórnarinnar að undirrita ársreikning félagsins. Fjórir stjórnarmenn af sjö neituðu að skrifa undir, þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir formaður félagsins, Sólveig Bergmann, Svavar Halldórsson og Elva Björk Sverrisdóttir varaformaður. 26.4.2010 21:15
Össur vill heimsækja Gazasvæðið Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti ræðu á aðalfundi Félagsins Ísland-Palestína í Iðnó í gærkvöldi. Össur fjallaði um málefni Palestínu og á hvern veg Ísland hefur stutt Palestínumenn bæði á stjórnmálasviði og með beinum stuðningi við ákveðin verkefni, meðal annars á sviði heilsugæslu, en Ísland viðurkennir og styður sjálfákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, rétt hennar til að stofna sjálfstætt ríki og önnur þjóðarréttindi Palestínumanna. 26.4.2010 20:43
Fluttur á slysadeild eftir að hafa drukkið stíflueyði Maður var fluttur á slysadeild um klukkan hálfníu í kvöld eftir að hann hafði drukkið stíflueyði í Húsasmiðjunni í Skútuvogi. Að sögn vakstjóra hjá slökkviliðinu voru það starfsmenn Húsasmiðjunnar sem kvöddu sjúkralið á vettvang en maðurinn var mjög veikur enda um afar sterkt efni að ræða sem brennir innyfli og getur verið baneitrað. 26.4.2010 21:42
Sex drukknir undir stýri og þrír dópaðir Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að tveir hafi verið stöðvaðir í Reykjavík og Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Þrír voru teknir á laugardag og jafnmargir á sunnudag. 26.4.2010 19:38
Tíðindalaust af gosstöðvunum Kvikustreymi og gosmökkur frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Í minnisblaði frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands segir að ekki sjáist merki um að gosi sé að ljúka, þó að virkni á yfirborði sé minni en þegar mest lét. 26.4.2010 19:34
Iceland Express flýtir brottför í fyrramálið Iceland Express ætlar að flýta flugi félagsins til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið. Vélarnar fara klukkan 05:30 frá Keflavík í stað 07:00 vegna væntanlegrar lokunar Keflavíkurflugvallar snemma á morgun. 26.4.2010 18:57
Sigmundur: Verulegt svigrúm til skuldaleiðréttingar Formaður Framsóknarflokksins segir bankana hafa svigrúm til verulegrar skuldaleiðréttingar hjá heimilum landsins en yfir helmingur þeirra nái ekki endum saman. Fjármálaráðherra segir stjórnvöld ekki hafa efni á almennri skuldalækkun. Þess í stað eigi að einbeita sér að þeim sem virkilega þurfi á aðstoð að halda. 26.4.2010 18:42
Létust í bílslysi í Reykjanesbæ Stúlkurnar sem létust í bílslysi í Reykjanesbæ á laugardag hétu Lena Margrét Hinriksdóttir, fædd 8 febrúar 1992 og Unnur Lilja Stefánsdóttir, fædd 25. ágúst 1991. 26.4.2010 18:05