Innlent

Ökumanns leitað

Mynd/Anton Brink
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem stöðvaði ekki bifreið sína eftir árekstur tveggja bifreiða á mótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í hádeginu í gær.

Fólksbifreið var ekið austur Vífilsstaðaveg, yfir Hafnarfjarðarveg, þegar annarri fólksbifreið var ekið vestur Vífilsstaðveg og beygt til suðurs Hafnarfjarðarveg. Ökumaður þeirrar bifreiðar stöðvaði ekki við áreksturinn og ók af staðnum. Um er að ræða frekar litla fólksbifreið, bláa að lit og var ökumaðurinn kona. Bifreiðin er sennileg nokkuð skemmd eftir óhappið, að sögn lögreglu.

Ökumaður bláu fólksbifreiðarinnar er vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina í Hafnarfirði eða í síma 444-1000. Einnig eru þeir sem geta gefið upplýsingar um óhappið beðnir að hafa samband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×