Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tinni fyrir rétti í Belgíu -sakaður um kynþáttafordóma Blaðamaðurinn Tinni er nú fyrir rétti í Belgíu. Áttatíu árum eftir að bókin Tinni í Kongó kom út hefur kongóskur maður krafist þess að hún verði tekin úr verslunum í Belgíu. 28.4.2010 09:42
Börn í leikskólum hafa aldrei verið fleiri Í desember 2009 sóttu 18.699 börn leikskóla á Íslandi og hafa þau aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 421 frá desember 2008 eða um 2,3%. Þessi fjölgun skýrist að hluta til af stærri árgöngum barna á leikskólaaldri auk þess sem sex nýir leikskólar tóku til starfa á árinu. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. 28.4.2010 09:32
Hörð átök í Bangkok Hörð átök brutust út í Bangkok, höfuðborg Tælands, í morgun milli hermanna og mótmælenda sem krefjast þess að þing landsins verði leyst upp, boðað verði til kosninga og að forsætisráðherrann fari úr landi. 28.4.2010 09:07
Fjölmargir eftirskjálftar Að minnsta kosti 35 eftirskjálftar hafa orðið eftir skjálfta upp á 3,2 á Richter, sem varð um 29 kílómetra norðnorðvestur af Siglufirði laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Annar upp á 3,5 varð þar skömmu síðar. 28.4.2010 08:18
Pabbi Madeleine: Yfirvöld brugðust dóttur minni Gerry McCann, faðir Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007, segir að bresk yfirvöld hafi brugðist dóttur hans. 28.4.2010 08:15
Þjófar gómaðir í fornmunaverslun Lögreglumenn handtóku í nótt tvo karla og eina konu við innbrot í fornmunaverslun í borginni. Nágranni verslunarinnar varð var við mannaferðir þar og lét lögreglu vita, sem gómaði þjófana á staðnum. Þá var fólkið búið að sanka að sér ýmsum munum til að hafa á brott með sér. 28.4.2010 08:09
Ræningi huldi andlitið með klósettpappír Lögregla leitar manns sem rændi verslun vopnaður hnífi í borginni Lincoln í Nebreska í Bandaríkjunum um helgina. Það væri ekki frásögu færandi enda vopnuð rán algeng vestanhafs. Það sem vekur hins vegar athygli er að ræninginn huldi andlit sitt með klósettpappír. 28.4.2010 08:02
Öllu innanlandsflugi frestað Öllu innanlandsflugi Flugfélags Ísands hefur verið frestað fram yfir hádegi en þá verða aðstæður kannaðar nánar. Sömu sögu er að segja hjá Flugfélaginu Erni og er þetta vegan eldfjallaösku í loftrými Reykjavíkurflugvallar. Hinsvegar þykja nú góðar horfur á að innanlandsflug geti hafist eftir hádegi 28.4.2010 07:58
Karfavertíðin að hefjast Karfavertíðin er að hefjast á Reykjaneshrygg, djúpt suðvestur af landinu, og eru ellefu erlendir togarar þegar komnir á miðin og fleiri á leiðinni. 28.4.2010 07:58
Eitt mesta umhverfisslys Bandaríkjanna í uppsiglingu Nái olía sem lekur úr frá sokknum olíuborpalli á Mexíkóflóa til bandarískrar strandar verður eitt mesta umhverfisslys í sögu Bandaríkjanna. 28.4.2010 07:53
HIV-smitaðir geta heimsótt Kína Kínversk yfirvöld hafa aflétt ferðatakmörkunum sem komu í veg fyrir að HIV-smitaðir útlendingar ferðuðust til landsins. Ákvörðunin er tekin í tengslum við heimssýninguna í Shanghai sem hefst formlega á laugardaginn. Búist er við að yfir milljón erlendir gestir leggi leið sína til borgarinnar á meðan sýningin stendur yfir næsta hálfa árið. 28.4.2010 07:50
Ákærður fyrir fjöldamorð Kurmanbek Bakijev, útlægur forseti Kirgistan, hefur verið ákærður fyrir að skipuleggja fjöldamorð. Forsetanum og ríkisstjórn hans var bolað í burtu fyrr í mánuðinum þegar óeirðir brutust út í landinu eftir að tilkynnt var um gríðarmikla hækkun á rafmagnsverði. Ríkisstjórnin hafði jafnframt verið sökuð um langvarandi spillingu. 28.4.2010 07:47
Tölur um styrki til flokka stemma ekki Tölur sem rannsóknarnefnd Alþingis birtir í skýrslu sinni, um styrki frá Kaupþingi og Landsbanka til stjórnmálaflokka árin 2004 til og með 2008, stemma ekki við þær tölur sem stjórnmálaflokkarnir sjálfir létu Ríkisendurskoðun í té. 28.4.2010 06:15
Glitnir styrkti bara flokkana „Þau gögn sem skilanefndin hefur farið yfir gefa ekki til kynna að Glitnir banki hafi styrkt einstaka stjórnmálamenn," segir í yfirlýsingu sem skilanefnd Glitnis sendi frá sér í gær. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, segir að engir styrkir til stuðningsmannafélaga stjórnmálamanna hafi heldur komið í leitirnar. 28.4.2010 06:00
Brennir gat á meltingarfærin Sterkar sýrur og önnur ætandi efni valda bruna í meltingarvegi ef stíflueyðir er drukkinn. Afleiðingarnar geta meðal annars orðið þær að efnin brenna gat á vélinda eða annars staðar í meltingarveginn. Gerist það og viðkomandi lifir af, er mikil hætta á að hann geti ekki tekið inn næringu með eðlilegum hætti, heldur verði að nota sondu, en það er rör sem leitt er ofan í magann Þá geta myndast örvefir, ör og sár í meltingarvegi eftir brunann sem há sjúklingnum alla ævi. 28.4.2010 05:00
Efast um siðareglur fyrir forsetann Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki og deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, efast um að rétt sé að setja embætti forseta Íslands siðareglur. 28.4.2010 04:00
Tekjur lífeyrisþega lækka um þúsundir Eldri borgarar sem fá greiðslur úr lífeyrissjóðum munu í flestum tilvikum verða fyrir umtalsverðri tekjuskerðingu þegar lífeyrissjóðirnir skerða greiðslur, þrátt fyrir hærri greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. 28.4.2010 03:30
Græn slikja komin á tún á öskusvæði undir Eyjafjöllum Bændur á öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum huga nú að sumarbeit fyrir sauðfé og öflun heys, að sögn Katrínar Andrésdóttur héraðsdýralæknis. Hún er þessa dagana á ferð um svæðið ásamt Þorsteini Ólafssyni, sérgreinadýralækni sauðfjár og nautgripa. Þau ræða við bændur og taka stöðuna. 28.4.2010 03:00
Víkur af lista framsóknarmanna Guðrún Valdimarsdóttir, sem skipaði annað sætið á lista framsóknarmanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hefur ákveðið að verða við ósk oddvita flokksins og víkja af listanum. 27.4.2010 19:00
Framkvæmdastjóri BÍ hafnar gagnrýni á reikninga félagsins Hjálmar Jónsson, framkvæmdastjóri Blaðmannafélags Íslands, segir að ákvörðun sín um framboð hafi nú dregið þann dilk á eftir sér að reynt hafi verið að þyrla upp moldviðri um reikninga félagsins. Hann segist hafa tekið ákvörðun um formannsframboð þegar ljóst var að ekkert mótframboð bærist gegn sitjandi formanni, þrátt fyrir kraumandi óánægju innan félagsins eins og hann orðar það. 27.4.2010 16:46
Átökin harðna enn frekar innan Blaðamannafélagsins Átökin innan Blaðamannafélagsins halda áfram en Vísir greindi frá því í gærkvöldi að fjórir stjórnarmenn innan Blaðamannafélagsins, þar á meðal formaður og varaformaður þess, hafi neitað að undirrita reikninga félagsins sem lagðir voru fyrir stjórnina í gærkvöldi. 27.4.2010 15:08
Bannsvæði í kringum gossvæðið minnkað Þjóðvegur 1 er opinn undir Eyjafjöllum en vegfarendur eru beðnir um að fara með gát þar sem bráðabirgðaviðgerðir eru á veginum. 27.4.2010 14:42
Ferðaþjónustan fagnar ákvörðun um markaðsátak Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að setja allt að 350 milljónir króna í kynningarátak á Íslandi vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar ferðamanna í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Gert er ráð fyrir að fyrirtæki og sveitarfélög leggi sömu upphæð á móti. Í tilkynningu frá samtökunum segir að nú þegar hafi orðið mikið tjón hjá ferðaþjónustufyrirtækjum og brýnt að snúa vörn í sókn þegar flug verður komið í eðlilegt horf. „Það er mikilvægt bæði fyrir ferðaþjónustuna og íslenskt þjóðarbú.“ 27.4.2010 19:40
Hæstiréttur gæti grafið undan fjármálastöðugleikanum Viðskiptafræðingur fullyrðir að Hæstiréttur grafi undan möguleikum Seðlabankans til að halda fjármálastöðugleika í landinu dæmi hann bönkunum í vil í hinni óleystu deilu um lögmæti myntkörfulána. 27.4.2010 18:51
Jóhanna vill taka synjunarvaldið af forsetanum Forsætisráðherra vill að synjunarvaldið verði tekið af embætti forseta Íslands og þjóðinni færður beinn réttur til að kalla fram þjóðaratkvæðgreiðslur um einstök mál. 27.4.2010 18:45
Bakkavík í Bolungarvík gjaldþrota Bakkavík hf. í Bolungarvík hefur verið úrskurðað gjaldþrota og Tryggvi Guðmundsson skipaður skiptastjóri. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi verið stofnað árið 2001 og hefur það rekið öfluga rækjuvinnslu í Bolungarvík síðan. Jafnframt rak félagið fiskvinnslu og útgerð um nokkurra ára skeið og var mest með rúmlega 100 manns í vinnu. Undanfarið hafa um 30 manns unnið hjá félaginu. 27.4.2010 18:03
Sex milljónum varið í kaup á svifryksmæli Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis á fundi í morgun. 27.4.2010 17:55
Reynir á siðferðisþrekið að selja teygjuband í metratali Varð hrunið kannski til vegna leitarinnar að þægilegri vel borgaðri innivinnu? Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ, kastaði fram þessari skondnu vangaveltu í fyrirlestri sínum „Dýrkeypt hagstjórnarmistök í þenslu“ sem fluttur var á opnum hádegisfundi í Háskóla Íslands í hádeginu í dag. 27.4.2010 16:37
Vara við stríði vegna Scud eldflauga Egyptar hafa varað við stóraukinni spennu milli Ísraels og Líbanons vegna fullyrðinga um að Sýrlendingar hafi látið Hizbolla samtökunum í té langdrægar Scud eldflaugar. 27.4.2010 16:06
Síminn stefnir Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar Síminn hf. sakar símafyrirtækið Þekkingu, sem á í samkeppni við Símann á upplýsingatæknimarkaði, um að hafa afritað tölvugögn Símans og Skipta við húsleit sem Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í síðustu viku. Þar á Þekking að hafa starfað sem undirverktaki. 27.4.2010 15:40
Upphlaup vegna innflytjendalaga Mikil geðshræring er í Bandaríkjunum vegna nýrra laga um ólöglega innflytjendur sem hafa verið samþykkt í Arizona. 27.4.2010 14:15
Öllu áætlunarflugi Flugfélagsins Ernis aflýst í dag Ekki verður hægt að fljúga hjá Flugfélaginu Erni á Höfn í Hornafirði, Sauðárkrók og Bíldudal í dag sökum öskudreifingar spár. Allt flug er á áætlun á morgun en staðan verður metin enn frekar þegar líður á daginn. 27.4.2010 14:09
Alþjóðahvalveiðiráðið óstarfhæft vegna deilna Formaður og varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins hafa lagt fram tillögu sem kveður á um að aðeins megi nota hvalaafurðir innanlands. Samkvæmt tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu þá þýðir sú klausa í raun bann á milliríkjaviðskiptum með hvalaafurðir. 27.4.2010 13:57
Ökumenn án skírteina sektaðir Á annan tug ökumanna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í umdæminu um helgina höfðu ekki ökuskírteini meðferðis. Einhverjir til viðbótar höfðu ekki hirt um að endurnýja það. 27.4.2010 13:44
Erna Ósk Kettler ráðin dagskrástjóri RÚV Erna Ósk Kettler hefur verið ráðin dagskrástjóri RÚV en hún var áður útsendingastjóri hjá Stöð 2. Hún var tekin fram yfir 37 umsækjendur en þar mátti finna þjóðþekkt nöfn á borð við Egil Helgason og Felix Bergsson. 27.4.2010 13:36
Sjómenn segja niðurskurð gæslunnar lífshættulegan Sambandsstjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands segir í ályktun sem sambandið samþykkti á dögunum að fjársvelti Landhelgisgæslu Íslands hafi orðið til þess að sjómenn sem eru fjær landi en 20 sjómílur geti ekki stólað á hjálp í neyð. 27.4.2010 13:28
Húgó sakar Bandaríkin um rafeindastríð Hugo Chavez forseti Venesúela sakaði í dag Bandaríkin um að reka rafeindastríð gegn landi sínu. 27.4.2010 12:44
Flugfélag Íslands aflýsir öllu flugi í dag Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu flugi í dag sökum gjóskuskýja sem takmarka flugumferð. Innanlandsflug klukkan 7:15 í fyrramálið er í athugun. 27.4.2010 12:33
Horfur á að ferðamönnum fækki um hundrað þúsund Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja allt að 350 milljónir króna í kynningarátak á íslandi, vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar ferðamanna til Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að stefnt gæti í að erlendum ferðamönnum fækkaði um allt að eitt hundrað þúsund miðað við áætlanir þessa árs, sem hefði í för með sér tekjutap upp á 25 til 30 milljarða króna. 27.4.2010 12:25
Spillingin felst í lánagjörningnum sjálfum Gróði eða tap þeirra sem fengu vildarlán í hinum föllnu bönkum hefur ekkert með það að gera hvort slík lán teljast vera spilling eða ekki. Það hvort lántakinn stendur að lokum uppi með gróða eða tap er ekki vottur um spillt eða óspillt samskipti en er eingöngu mælikvarði á hvort um var að ræða velheppnaða eða misheppnaða spillingu. Spillingin felst í lánagjörningnum sjálfum. Þetta segir Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi aðstoðarmaður fjármálaráðherra í grein á vefritinu Smugunni. 27.4.2010 12:19
Töluvert vatnsrennsli niður Gígjökul Smá sprengingar hafa verið í morgun í gosinu í Eyjafjallajökli, en að öðru leyti er gosórói svipaður og undanfarna sólarhringa. Aska stígur upp í rösklega þriggja kílómetra hæð og leggur til norðvesturs, en öskufall í byggð er sára lítið og greinist varla, þar sem það er á annað borð. 27.4.2010 12:07
Kanna skilyrði eftir hádegi Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun vegna eldfjallaösku í lofti, en Flugfélag Íslands og Ernir ætla að kanna skilyrði eftir hádegi. Flugi Icelandair og Iceland Express frá landinu var flýtt un nokkrar klukkustundir í morgun, en loftrými yfir Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum eru lokuð. 27.4.2010 12:05
Seinkun á flugi næsta sólarhringinn - flogið á fimmtudag Icelandair stefnir að því færa tengibanka sinn frá Glasgow til Íslands á morgun og fljúga samkvæmt áætlun frá og með fimmtudagsmorgni. Vegna takmarkana á flugi um Keflavíkur- og Akureyrarflugvelli næsta sólarhringinn er gert ráð fyrir töluverðum seinkunum fram að þeim tíma. 27.4.2010 11:53
Niðurstaða dómstólsins kom á óvart „Þetta kom svolítið á óvart en ég var alltaf ótrúlega bjartsýnn,“ segir Vörður Ólafsson, húsasmiður, en hann kærði gjaldtöku Samtaka Iðnaðarins til Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst að þeirri niðurstöðu að iðnmálagjald stæðist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. 27.4.2010 11:20
Rússar og Norðmenn skipta Barentshafi á milli sín Norðmenn og Rússar hafa náð samkomulagi eftir fjörutíu ára deilur um yfirráð yfir Barentshafi. 27.4.2010 11:15