Reynir á siðferðisþrekið að selja teygjuband í metratali 27. apríl 2010 16:37 Þar töluðu Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ, Bjarni Frímann Karlsson, lektor í reiknisskilum við HÍ og Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnun HÍ. Fundarstjóri var Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði við HÍ.
Varð hrunið kannski til vegna leitarinnar að þægilegri vel borgaðri innivinnu? Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ, kastaði fram þessari skondnu vangaveltu í fyrirlestri sínum „Dýrkeypt hagstjórnarmistök í þenslu" sem fluttur var á opnum hádegisfundi í Háskóla Íslands í hádeginu í dag. Alla vega urðu háleitar hugmyndir um Ísland sem fjármálamiðstöð að veruleika þrátt fyrir afleitar forsendur eins og agnarsmáa eigin mynt og slæga eftirlitsmenningu. Þórólfur skoðaði hvernig þessi stefna, ásamt efndum vafasamra kosningaloforða um skattalækkanir og röð hagstjórnarmistaka, leiddi til þess að á Íslandi varð til efnahagslegt háþrýstisvæði. Á meðan þessi háþrýstingur hafi verið allt að sprengja hafi enginn fylgst með og rýnt í ástandið. Þannig hafi eiginfjárstaða bankana verið að mestu skáldskapur einn. Ótrúlegt megi teljast hvernig þeim hafi tekist að blekkja með því að færa skjöl milli útbakka og innbakka. Þórólfur fullyrðir að allt það sem gerst hefur, hefði ekki þurft að gerast ef fjármálapólitík hefði verið hugsuð og beitt til hagsbóta fyrir land og þjóð en ekki fyrir ríkisstjórnarflokkana. Vandamálið hafi verið að enginn hafði fulla yfirsýn yfir ónýta, flokksholla peningamálastefnuna og pótemkin tjöld bankanna. Þórólfur hvatti til að vakin yrði upp umræða um endurstofnun Þjóðhagsstofnunar. Bjarni Frímann Karlson, lektor í reikningsskilum við HÍ, sagði í erindi sínu „Glögg mynd eða glansmynd" að endurskoðendur hafi sloppið furðanlega vel í umræðunni um hrunið. Hann segir ljóst að eigið fé bankanna hafi verið stórlega ofmetið til að stækka efnahagsreikninginn. Bókhaldsmeðferð hafi verið á afar gráu svæði og ekki laust við að hugtakið „skapandi reikningsskil" eigi stundum rétt á sér. Enda værum við jú afkomendur stórskálda og víkinga! Bjarni Frímann taldi að ljóst að skerpa þyrfti lög og reglur og minnti á að óhæði eða sjálfstæði væri fjöregg endurskoðendastéttarinnar. Ef til vill væri vænlegt að setja reglur um að endurskoðandi starfaði ekki fyrir sama félagið nema 2 til 3 ár. Þannig væri komið í veg fyrir að þeir yrðu slegnir húsblindu. Að lokum vitnaði Bjarni Frímann í orð álnavörukaupmanns nokkurs sem sagði að það reyna verulega á siðferðisþrekið að selja teygjuband í metratali! Er íþróttahreyfingin sökudólgurinn? Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ, nefndi erindi sitt „Þrettán manns í ferða- og skemmtanadeild en einn í regluvörslu" sem vísaði til starfshátta sem tíðkuðust innan bankanna. Salvör sagði sér sýnast það nokkuð rótgróið viðhorf í samfélaginu að líta á lög sem hindranir sem leggi stein í götu athafnamanna. Þeir sem finni leið framhjá lögum sýni hugmyndaauðgi, útsjónarsemi og frumkvæði. Þetta væri heldur dapurt í ljósi þess að tilgangur laga og reglna væri að standa vörð um hugmyndir okkar um hvernig leysa beri vandamál og byggja upp gott samfélag. Hún sagði það hafa verið nokkuð almennt álit innan bankanna að allt væri leyfilegt sem ekki væri beinlínis bannað. Salvör velti einnig fyrir sér hvernig viðhorf eftirlitsaðila virtust hafa verið þau að horfa frekar á tæknilega hlið laganna en ekki heildarmyndina. Það væri mikilvægt fyrir okkur að skoða hvernig við gætum breytt hugsunarhættinum þannig að við horfðum frekur á kjarnann á bak við lögin, þ.e. anda laganna og tilgang þeirra, fremur en að fylgja lagabókstafnum. Eftirlit þurfi að byggja á myndugleika, hugrekki, reynslu og þjálfun. Salvör sagði að það vera lærdóm okkar að hér þyrfti að rækta betur siðferðilega dómgreind á öllum skólastigum og í samfélaginu öllu. Siðferðilegur dómgreindarskortur hefði leitt til hruns fjármálakerfis og væri ekki bara vandamál sem nokkrir einstaklingar ættu við að glíma heldur væri jafnvel um landlæga hjarðhegðun að ræða sem sporna þyrfti við. Í lok fundarins tóku frummælendur við spurningum úr sal og lá mörgum mikið á hjarta. Einn áheyranda velti fyrir sér hvort ekki væri ástæða til að skoða hlut íþróttahreyfingarinnar þar sem nokkuð margir aðalleikarar innan bankanna hefðu komið þaðan og þekktur er áhugi stjórnformanns Landsbankans á fótbolta. Þetta vakti kátínu fundargesta en Salvör benti á að ef til vill væri þetta ekki svo fjarstæðukennt þar sem líkingamál sérstaklega úr fótboltanum hefði mikið verið notað sbr. þau orð stjórnarformanns eins bankanna að hann ætlaði að spila stífan sóknarbolta. Vilhjálmur Bjarnason lektor við HÍ, sem var fundarstjóri, kastaði að lokum boltanum til Bjargar Thorarensen prófessors og deildarforseta lagadeildar HÍ. Björg mun stýra umræðufundi morgundagsins sem ber yfirskriftina „Lögin, eftirlitið og ábyrgðin!". Málshefjendur verða Eiríkur Jónsson, lektor í lagadeild HÍ, sem fjallar um eftirlitsstofnanir fjármálakerfisins og Þórður Bogason hrl., sem veltir fyrir sér ráðherraábyrgð. Sem fyrr verður fundurinn haldin í Háskóla Íslands í Öskju stofu 132 og hefst kl. 12 og lýkur kl. 13.30. Markmið fundarraðarinnar er að draga fyrstu lærdóma af niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og koma með ábendingar um mikilvæg framtíðarverkefni.
Mest lesið „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Innlent Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Innlent Rýnt í ákærurnar: „Ég fékk nóg af hatri hans“ Erlent Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Innlent Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Innlent „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Bein útsending: Rauða dreglinum rúllað út fyrir Trump Erlent Ráðast í frekari rannsókn á andláti kvennanna sem létust í Laos Erlent Fleiri fréttir Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Hinsegin fólk upplifi óöryggi í strætisvögnum Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Afgerandi niðurstaða um þjóðarmorð og óþreyjufullir foreldar á Nesinu Sósíalistar vilja Sönnu burt en hún kveðst koma af fjöllum Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ „Ég veit ekki hversu hátt þarf að öskra orðið þjóðarmorð“ Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Stöðugildum á vegum ríkis fjölgaði um rúm 500 á síðasta ári Reikna með gosi í lok mánaðar Rændi bíl í Veiðivötnum og ók undir áhrifum af vettvangi Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Merki um að gjá í samfélaginu sé að stækka Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Sjá meira