Tekjur lífeyrisþega lækka um þúsundir 28. apríl 2010 03:30 Tekjuskerðing Í útreikningum Tryggingastofnunar eru tekin dæmi um tekjuskerðingu ellilífeyrisþega, en öryrkjar sem þegið hafa lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðum verða einnig fyrir tekjuskerðingu. Fréttablaðið/Valli
Eldri borgarar sem fá greiðslur úr lífeyrissjóðum munu í flestum tilvikum verða fyrir umtalsverðri tekjuskerðingu þegar lífeyrissjóðirnir skerða greiðslur, þrátt fyrir hærri greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. Sé miðað við ellilífeyrisþega með 100 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði getur tíu prósenta skerðing á lífeyrisgreiðslum þýtt að tekjur lækka um 5.500 krónur á mánuði, úr 181 þúsund krónum í 176 þúsund krónur. Aðeins þeir sem eru með um eða undir 40 þúsund krónum á mánuði úr lífeyrissjóði fá skerðinguna til baka að fullu með hærri greiðslum frá Tryggingastofnun. Flestir af stærstu almennu lífeyrissjóðunum áforma skerðingu á lífeyrisgreiðslum vegna slæmrar afkomu sjóðanna. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu áformar Almenni lífeyrissjóðurinn 16,7 prósenta skerðingu, Lífeyrissjóður verzlunarmanna tíu prósenta skerðingu, og Gildi lífeyrissjóður sjö prósenta skerðingu á lífeyrisgreiðslum. Skerðing á greiðslum frá lífeyrissjóðunum þýðir í flestum tilvikum að viðkomandi eiga rétt á hærri lífeyrisgreiðslum en áður frá Tryggingastofnun. Erfitt er að segja fyrir um nákvæmlega hver tekjuskerðing eldri borgara og öryrkja verður, enda munu sjóðirnir skerða greiðslur mismikið. Í dæmum sem starfsmenn Tryggingastofnunar hafa reiknað út má sjá að heildartekjur ellilífeyrisþega sem býr með öðrum og fær í dag 100 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði, lækka um 5.500 krónur á mánuði, 3,0 prósent, skerði lífeyrissjóðurinn greiðslur til hans um tíu prósent. Lækki greiðslurnar um fimmtán prósent lækka heildartekjurnar um ríflega 8.250 krónur, eða 4,6 prósent. Miðað við ofangreindar forsendur myndu því tekjur ellilífeyrisþegans lækka úr ríflega 181 þúsundum króna á mánuði í tæplega 176 þúsund krónur ef skerðingin nemur tíu prósentum. Verði skerðingin fimmtán prósent lækka tekjurnar úr ríflega 181 þúsund í tæplega 173 þúsund krónur á mánuði. Tekjulækkunin verður því meiri, bæði hlutfallslega og í krónutölu, því hærri sem greiðslurnar úr lífeyrissjóði eru. Ef ellilífeyrisþegi sem býr með öðrum er með 200 þúsund krónur úr lífeyrissjóði, sem skertar eru um tíu prósent, lækka heildartekjur hans úr ríflega 236 þúsund krónum á mánuði í ríflega 225 þúsund krónur. Skerðist greiðslur frá lífeyrissjóði um fimmtán prósent fara tekjurnar úr ríflega 236 þúsundum í tæplega 220 þúsund á mánuði. Fleiri dæmi má sjá í meðfylgjandi töflu, sem byggir á útreikningum starfsmanna Tryggingastofnunar. Þess ber að geta að til að fá auknar greiðslur frá Tryggingastofnun vegna skerðinga á greiðslum frá lífeyrissjóðunum verða lífeyrisþegar að setja sig í samband við Tryggingastofnun. Þó er verið að kanna hvort mögulegt sé að leiðrétta núgildandi greiðsluáætlun lífeyrisþega í samráði við lífeyrissjóðina. Ekki er ljóst hvort af því getur orðið, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Fleiri fréttir Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Sjá meira