Fleiri fréttir

Um 3700 ökumenn stöðvaðir

Ríflega 3700 ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt úti í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra.

Bretar beita sér ekki gegn umsókn um ESB

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði í viðtali við Reuters fyrir stundu að David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, hafi fullvissað sig um að Bretar myndu ekki beita sér gegn Íslandi og aðildarumsókn þeirra inn í ESB þrátt fyrir harðvítugar deilur um Icesacve.

Forsetinn svarar fyrir sig

Síaukinn skilningur er á stöðu Íslands, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á fundi með fréttamönnum á Bessastöðum í dag. Hann sagði að eftir því sem leið á daginn í gær og í dag hafi skilningur á stöðu Íslands aukist mikið. Honum hafi gefist færi á að skýra afstöðu sína í fjölmörgum fjölmiðlum frá því að hann kynnti ákvörðun sína.

Ruslflokkur breytir engu fyrir sveitafélögin

„Ég get ekki séð að það breyti neinu í sjálfum sér,“ segir Halldór Halldórsson, formaður sambands íslenskra sveitafélaga, um lækkun lánshæfiseinkunnar sem fylgdi í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja lögum um ríkisábyrgð staðfestingu.

Ekki hægt að spyrja út í fyrirvarana

Þjóðaratkvæðagreiðslan sem ráðgert er að fari fram seinni hluta febrúarmánaðar eða í byrjun mars mun snúast um það hvort Icesave lögin haldi gildi sínu eða ekki.

Fálki gerði sér dagamun í Sólheimum

„Ég þurfti að fara upp á þrettándu hæð til þess að taka mynd af honum," segir húsvörðurinn Hörður Ástþórsson, en fálki gerði sér dagamun og sveif á millii blokkanna í Sólheimum í Reykjavík.

Össur búinn að ræða við Miliband

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti símafund með David Miliband, utanríkisráðherra Breta, eftir hádegið í dag. „Við fórum yfir stöðuna og það var alveg ljóst að hann þekkti hana mjög vel. Hann var vonsvikinn yfir þessu og það er þungt hljóð í Bretum" sagði Össur eftir símafundinn. Þá sagði Miliband ennfremur við Össur að það væru engar vísbendingar um að Bretar myndu beita sér gegn Íslendingum innan AGS.

Verð á ýsu hækkað um 5%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%.

Einkaþota hætt komin - búið að opna flugvöllinn

Einkaþota af gerðinni Falcon 2000 snérist á flugbraut Keflavíkurflugvallar og sprakk þá á dekki vélarinnar. Að sögn Friðþórs Eydals, upplýsingafulltrúa flugmálastjórnar þá var vellinum lokað í fimmtán mínútur.

Keflavíkurflugvelli lokað um stund

Keflavíkurflugvelli hefur verið lokað tímabundið vegna Falcon 2000 flugvélar sem er út á miðri flugbraut með tvö sprungin dekk. Þetta kemur fram á Víkurfréttum.

Snjósleða ekið á húsvegg

Snjósleða var ekið á húsvegg við Funhöfða í Reykjavík á öðrum tímanum í dag. Einn maður var fluttur á slysadeild, en ekki er vitað hvort hann hafi slasast alvarlega.

Steingrímur útilokar ekki nýjar samningaviðræður

Steingrímur J. Sigfússon útilokar ekki nýjar samningaviðræður með Bretum og Hollendingum um Icesave. Nú sé ríkisstjórnin hins vegar að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hvatti til þess í grein í Fréttablaðinu í dag að ný samninganefnd yrði skipuð.

Dagur B.: Einkavæðing Bílastæðasjóðs leiðir til hækkunar

Umsögn bílastæðasjóðs um tillögur VG í borgarráði um að kannað yrði með einkavæðingu bílastæðahúsa í eigu Bílastæðasjóðs var lögð fram í borgarráði í dag. Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á sínum tíma tillögu VG, en Samfylkingin sat hjá og gerði skýra fyrirvara að sögn Dags B. Eggertssonar, oddvita Samfylkingarinnar.

Greiðslur til borgarfulltrúa lækkaðar

Starfskostnaðargreiðslur til borgarfulltrúa lækkuðu um áramótin um níu prósent. Þá munu fyrstu varaborgarfulltrúar á næsta kjörtímabili hætta að fá föst laun sem hlutfall af launum borgarfulltrúa og munu í staðinn fá greidd laun fyrir störf sín í nefndum eftir sömu reglum og aðrir en borgarfulltrúar sem starfa í stjórnsýslu borgarinnar.

Miliband hafði ekki tíma til að tala við Össur

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti ekki símafund með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, í gær eins og stóð til. Ástæðan er mikið annríki hjá forystumönnum breska verkamannaflokksins vegna upplausnar sem varð í flokknum í gær þegar að tveir þingmenn hans lýstu vantrausti á Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins. Gert er ráð fyrir að Össur og Miliband ræði saman í dag.

Dæmd fyrir að svíkja leigubílstjóra

Kona á fertugsaldri var dæmd í mánaðarlangt fangelsi, skilorðsbundið til eins árs, fyrir að svíkja leigubílstjóra í júní á síðasta ári. Konan hringdi á leigubíl sem sótti hana á biljarðstofu í Faxafeni í Reykjavík.

Tveir leituðu læknisaðstoðar eftir bílslys

Tveir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir árekstur á gatnamótum Engjavegar og Eyrarvegi á Selfossi á tíunda tímanum í morgun. Lögreglan á Selfossi taldi að meiðsl þeirra sem fluttir voru ekki alvarleg. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíl var ekið í veg fyrir jeppa en tildrög slyssins eru óljós að öðru leyti.

Segir framgöngu Breta og Hollendinga óhugnanlega

Utanríkisráðherra Lettlands, Maris Riekstins, hefur tekið upp hanskann fyrir Ísland á alþjóðavettvangi. Í viðtali á Reuters segir hann viðbrögð ríkja gagnvart ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að vísa Icesave-lögum í þjóðaatkvæðagreiðslu, óhugnanlega enda var Ísland að fylgja sínum lýðræðisreglum.

Lést í eldsvoða á Hverfisgötu

Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í eldsvoða í íbúðarhúsi við Hverfisgötu í Reykjavík í nótt. Lögreglumenn sýndu mikið áræði þegar þeir brutu sér leið inn í húsið til að vekja íbúana.

The Independent: Samskipti Breta við Íslendinga á pari við útlagaríki

Framkoma Breta við Íslendinga má líkja við gamaldags kúgun. Þetta segir í leiðara breska dagblaðsins The Independent í dag. Í leiðaranum sakar blaðið Breta um fantaskap gagnvart Íslendingum og segja afskipti breskra yfirvalda af Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum gagnvart Íslandi helst líkjast kúgun.

Höskuldur: Eigum að standa með sjálfum okkur

„Kosningabaráttan á að snúast um komandi kynslóðir, hvort við ætlum að velta byrðum nútímans yfir á börnin okkar og börnin þeirra,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Heilinn hennar ömmu

Fjölskylda í Bandaríkjunum hefur kært útfararþjónustuna sem sá um útför ömmu þeirra á dögunum. Útförin sjálf gekk að óskum en þegar fjölskyldumeðlimirnir fengu eigur ömmunnar, föt, skartgripi og annað sem hún hafði verið með þegar hún lést í bílslysi, slæddist óvenjulegur hlutur með í pakkanum.

Hafís færist nær

Hafís er að færast nær landi á Vestfjörðum og eru sjófarendur varaðir við ísnum. Í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær var ísinn 18 sjómílur norðvestur af Barðanum, 20 sjómílur norðvestur af Straumnesi og 22 sjómílur norðaustur af Horni.

Nærbuxnasprengjumaðurinn ákærður

Maðurinn sem reyndi að sprengja upp farþegaflugvél yfir bandarísku borginni Detroit var ákærður í gærkvöldi. Nígeríumaðurinn Umar Farouk Abdulmutallab er ákærður í sex liðum en hann reyndi að sprengja farþegaþotu með 290 farþega innanborðs í loft upp á jóladag með sprengju sem falin var í nærfötum hans.

Þak féll á þúsund danska grísi

Björgunarmenn í Danmörku vinna nú hörðum höndum að því að bjarga þúsund grísum á svínabúi í Sindal, en í nótt féll þak á svínabúinu ofan á grísina. Vonast er til þess að um 80 - 90 prósent dýranna hafi lifað af en þakið, sem er um 700 fermetrar að flatarmáli, féll á þau vegna þess að mikill snjór hafði safnast á það í vetrarhörkunum sem geysað hafa í Danmörku eins og annars staðar í Evrópu undanfarna daga.

Brown stóð af sér storminn

Talið er að Gordon Brown forsætisráðherra Breta hafi staðið af sér uppreisn samflokksmanna sinna í gær. Tveir fyrrverandi ráðherrar í ríkisstjórn Browns, þau Geoff Hoon og Patricia Hewitt hvöttu til þess í gær að þingmenn Verkamannaflokksins héldu leynilega kosningu þar sem skorið yrði úr um hvort Brown njóti enn trausts til þess að leiða flokkinn í komandi kosningum í vor.

Skotið á kirkjugesti

Sex eru látnir eftir að byssumenn skutu á hóp kirkjugesta sem voru að koma frá guðsþjónustu í austurhluta Egyptalands í gær. Kirkjan tilheyrir Koptí-reglunni sem heldur jóladag hátíðlegan 7. janúar og var skotið á kirkjugestina úr bíl sem ók hjá þegar fólkið kom út. Sjö slösuðust í skotárásinni. Um níu prósent Egypta tilheyra reglunni en 90 prósent þeirra eru múslimar.

Ekið á tvö ljósastaura og kveikt í þeim þriðja

Þrír ljósastaurar á höfuðborgarsvæðinu urðu fyrir áföllum í nótt. Fyrst ók ölvaður ökumaður á ljósastaur á Arnarnesvegi við Sólarsali. Staurinn féll og bíllinn stór skemmdist, en ökumaðurinn reyndist ölvaður.

Flughált á Bretlandseyjum

Hálkuviðvörun er nú í gildi um gjörvallt Bretland en landsmenn hafa á síðustu dögum upplifað lengsta kuldakast í að minnsta kosti þrjá áratugi.

Ólafur Ragnar í viðtali á BBC - myndband

Íslendingar ætla sér að standa við skuldbindingar sínar í Icesave málinu. Þetta var aðalinntakið í máli Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands sem í gærkvöldi var í viðtali í þættinum Newsnight á Breska ríkisútvaropinu BBC í gærkvöldi.

Vilja nýja samninganefnd í stað þjóðaratkvæðagreiðslu

Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks telja koma til greina að skipuð verði þverpólitísk sáttanefnd í Icesave-deilunni sem fái það hlutverk að skipa nýja samninganefnd sem ræða ætti við Breta og Hollendinga um lausn Icesave-deilunnar.

Skortur á einangrun endar með stórslysi

„Við þurfum að fá að vita hvenær og hverjar úrbætur verða gerðar á einangrunarmálum fanga hér á landi. Annars endar þetta bara með stórslysi.“ Þetta segir Erlendur S. Baldursson, aðstoðarmaður forstjóra Fangelsismálastofnunar.

Erlendu ríkin vilja aðstoða

Íslendingar ættu að greiða atkvæði með lögum þeim um ríkisábyrgð á Icesave sem forsetinn hefur vísað til þjóðarinnar. Þetta er mat Kaarlos Jännäris, finnska bankasérfræðingsins og fyrrverandi forstjóra finnska fjármálaeftirlitsins, sem stjórnvöld réðu sem ráðgjafa við endurskipulagningu bankakerfisins hér.

Ingibjörg Sólrún vill nýja sáttanefnd um Icesave

Stjórnmál Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan verða að slíðra sverðin og koma sér saman um pólitíska sátta- og samninganefnd til að leiða Ice­save-samningana til lykta, skrifar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, í Fréttablaðið í dag.

Ramos var settur í einangrun

Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos, sem hótaði fangaverði með eggvopni þegar hann reyndi að flýja frá fangavörðum í fyrradag, var beittur agaviðurlögum vegna málsins og settur í einangrun á Litla-Hrauni. Hann þarf að sæta einangrun í tíu daga og verður síðan að öllum líkindum vistaður á öryggisgangi á Litla-Hrauni, samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun.

Forseti náðaði veikan smyglara

Forseti Íslands náðaði í desember Þjóðverja á sjötugsaldri sem í janúar í fyrra var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að flytja rúm 20 kíló af hassi og 1,7 kíló af amfetamíni til Íslands. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.

Óvissa um hvaða lög gilda

Í yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um synjunina, er fullyrt að felli þjóðin lögin í þjóðaratkvæðagreiðslunni, séu eldri lög um ríkisábyrgð, sem samþykkt voru í lok ágúst, áfram í gildi. Lögspekingar virðast ekki jafnvissir um þetta og forsetinn.

Skera niður hjá dagforeldrum

Byggðaráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að lækka greiðslu vegna dagforeldra um 25 prósent. Er þetta hluti af sparnaðaraðgerðum. Einnig á að grípa til mikils sparnaðar í leikskólum sem verður lokað í fimm vikur næsta sumar. Endurskoða á reglur sem gilda um barnafjölda á hvert stöðugildi til að spara í mannahaldi. Fækkað verður á deildum í leikskólum þar sem barnafjöldi og aðstaða gefur tilefni til og draga á úr stjórnunarkostnaði. Starfsemi í leikskólanum í Varmalandi verður hætt um mitt þetta ár. - gar

Dæmdur í árs fangelsi

Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu skilorðsbundna í þrjú ár, fyrir tvær hrottalegar líkamsárásir árið 2008. Fyrst réðst maðurinn á annan mann fyrir utan Landsbankann á Laugavegi 77. Árásarmaðurinn sló hinn hnefahöggi í andlitið og síðan með glerflösku í höfuðið þannig að hann féll í jörðina. Síðan sparkaði hann í bringu fórnarlambsins, sem hlaut mar í kringum augnumgjörð og brotið bringubein. Síðar réðst ofstopamaðurinn á mann á Laugavegi. Hann kýldi manninn í andlitið og sparkaði í höfuð hans og líkama. Fórnarlambið hlaut beinbrot bæði á líkama og í andliti.

Sjá næstu 50 fréttir