Vilja nýja samninganefnd í stað þjóðaratkvæðagreiðslu 7. janúar 2010 06:45 Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Mynd/GVA
Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks telja koma til greina að skipuð verði þverpólitísk sáttanefnd í Icesave-deilunni sem fái það hlutverk að skipa nýja samninganefnd sem ræða ætti við Breta og Hollendinga um lausn Icesave-deilunnar. Undir það tekur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Hún segist vilja nýja sátta- og samninganefnd um Icesave. Hinn möguleikinn sé að samþykkja lög ríkisstjórnarinnar, en hætt sé við að það skerpi á ágreiningi innanlands í stað þess að greiða úr honum. „Ég óttast það mjög að sú vegferð sem við færum í með því að fara að takast á um þetta mál í hörku þjóðaratkvæðagreiðslu sé alls ekki til þess fallin að skapa sátt meðal þjóðarinnar," segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir Ríkisútvarpið vilja 67 prósent landsmanna að samið verði að nýju, en þriðjungur vill þjóðaratkvæðagreiðslu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er á sama máli. Hann segir eðlilegt að ríkisstjórnin haldi áfram að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu. Hægt sé að draga lögin til baka í stað þess að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu ef takist að ná þverpólitískri samstöðu í málinu. Einnig komi til greina að halda þjóðaratkvæðagreiðslu þó sátt hafi náðst, þá hafi þjóðin skýran valkost og viti hvað taki við hafni hún lögum ríkisstjórnarinnar. Sigmundur segir mjög hættulegt að fara út í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem líf stjórnarinnar sé undir. Það myndi leiða til harðrar baráttu þar sem ríkisstjórnin eigi allt sitt undir því að fréttir frá viðsemjendum Íslands séu sem verstar. Samningsstaða Íslands yrði mun betri ef samstaða væri hér á landi um ásættanlega niðurstöðu, að mati Bjarna og Sigmundar. Bjarni segir málefnastöðu Íslands sterka, en ef þjóðin sé klofin í herðar niður geti viðsemjendur Íslands nýtt sér það. Það muni gerast leggi ríkisstjórnin líf sitt að veði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Æskilegt væri að ný samninganefnd verði skipuð íslenskum og erlendum sérfræðingum, segir Sigmundur. Þá ætti að fá þriðja aðila til að miðla málum í deilunni, til dæmis Evrópusambandið. Bæði Bjarni og Sigmundur greiddu atkvæði með tillögu minnihlutans á Alþingi fyrir því að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu, áður frumvarp stjórnarinnar var samþykkt. Spurður um þetta segir Bjarni ekki um sinnaskipti að ræða. Tillaga minnihlutans hafi verið síðasta úrræðið til að reyna að stöðva samninga sem leggja myndu drápsklyfjar á þjóðina. - bj /
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira