Innlent

Greiðslur til borgarfulltrúa lækkaðar

Starfskostnaðargreiðslur til borgarfulltrúa lækkuðu um áramótin um níu prósent. Þá munu fyrstu varaborgarfulltrúar á næsta kjörtímabili hætta að fá föst laun sem hlutfall af launum borgarfulltrúa og munu í staðinn fá greidd laun fyrir störf sín í nefndum eftir sömu reglum og aðrir en borgarfulltrúar sem starfa í stjórnsýslu borgarinnar.

Laun borgarfulltrúa og annarra kjörinn fulltrúa hjá Reykjavíkurborg eru ákveðið hlutfall af þingfararkaupi alþingismanna eins og það er hverju sinni, en það er í samræmi við samþykkt forsætisnefndar borgarinnar. Þannig að þegar laun alþingmanna breytast breytast laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg í sama hlutfalli.

Hinn 29. janúar á síðasta ári lækkuðu laun borgarfulltrúa um tíu prósent í samræmi við launalækkun hjá þingmönnum. Hinn 11. desember síðastliðinn gerði forsætisnefnd Reykjavíkurborgar breytingar á samþykktinni sem fela í sér að fyrstu varaborgarfulltrúar munu frá og með næsta kjörtímabili, sem miðast við mitt þetta ár, hætta að þiggja föst laun sem hlutfall af launum borgarfulltrúa og munu þess í stað taka laun eftir sömu reglum og aðrir en kjörnir borgarfulltrúar. Þar með munu fyrstu varaborgarfulltrúar fá greidd laun fyrir nefndarsetu og önnur störf sem þeir taka að sér. Með þessari breytingu verða fyrstu varaborgarfulltrúar fyrir töluverðri kjaraskerðingu en í staðinn greiðast laun þeirra í samræmi við störf þeirra og framlag til stjórnsýslu borgarinnar. Á mannamáli mætti segja að fyrstu varaborgarfulltrúar verði ekki lengur áskrifendur að laununum sínum.

Þá hefur forsætisnefnd borgarinnar tekið þá ákvörðun að lækka greiddan farsímakostnað borgarfulltrúa lítillega. Til þessa hefur borgin greitt gsm-kostnað borgarfulltrúa að 25 þúsund krónum á mánuði. Þetta hefur verið lækkað niður í 20 þúsund krónur á mánuði. Miðað við meðalverð hjá farsímafyrirtækjunum eru þetta rúmlega 1.400 mínútur á mánuði eða tvö þúsund sms-skilaboð á mánuði sem skattgreiðendur í Reykjavíkurborg greiða fyrir hjá hverjum borgarfulltrúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×