Innlent

Verð á ýsu hækkað um 5%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%.

Í tilkynningu frá LÍÚ segir að verð á þorski og karfa er óbreytt frá síðustu ákvörðun. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 7. janúar 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×