Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ragna vill auka framlög til dómstóla Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra, hefur lagt til að fjárframlög til héraðsdómstóla verði aukinn og að héraðsdómurum verði fjölgað. Brýnt sé að bregaðast við vandann sem blasir við dómstólum. Þetta kom fram á þingfundi í dag. 12.11.2009 13:58
Síðasti bæjarstjórnarfundur bæjarstjórans Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund í gærkvöldi en hún tekur við sem sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli um næstu mánaðarmót. Ekki hefur verið greint frá því hver verður eftirmaður Jónu Kristínar í embætti bæjarstjóra. 12.11.2009 13:48
Sveitafélög á Suðurnesjum í samstarf með Umferðarstofu Sveitarfélög á Suðurnesjum skrifuðu undur samstarfssamning við Umferðarstofu um gerð umferðaröryggisáætlunar sem miðar að auknu umferðaröryggi í bæjarfélögunum og virkjar sem flesta hagsmunaaðila til þátttöku. 12.11.2009 13:26
Lækkunin setur fjármögnun framkvæmda í uppnám Lækkun á lánshæfismati Orkuveitu Reykjavíkur niður í ruslflokk setur fjármögnun framtíðar framkvæmda í uppnám. Þetta segir forstjóri Orkuveitunnar. Þetta hefur þó ekki áhrif á lán Evrópska fjárfestingabankans til orkuveitunnar. Höskuldur Kári Schram 12.11.2009 12:40
Gömul skinnhandrit ekki lengur í Þjóðmenningarhúsinu Óvíst er hvenær gömul skinnhandrit sem hafa verið til sýnis í Þjóðmenningarhúsi, verða sýnd þar að nýju. Handritin voru tekin þaðan um miðjan október, vegna framkvæmda í Þjóðmenningarhúsinu. 12.11.2009 12:24
Ólafur spyr um veiðiferðir borgarfulltrúa Ólafur F. Magnússon óskar þess á fundi borgarráðs í dag, að fá svör við því hverjir borgarfulltrúa hefðu þegið boð um veiði í Elliðaánum á kjörtímabilinu. Þá spyr hann einnig um kostnað vegna laxveiðinnar, enn fremur um boðsferðir borgarfulltrúa í leikhús og fleira. Meðal þess sem Ólafur vill að komi fram í dagsljósið er hversu mikið borgarfulltrúarnir þyrftu annars að greiða úr eigin vasa fyrir þessi hlunnindi. 12.11.2009 12:17
Mælti fyrir lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um þjóðaratkvæðagreiðslur. Frumvarpið var flutt á síðasta þingi en það var ekki afgreitt sem lög. 12.11.2009 12:07
Á annað hundrað DVD myndum stolið Brotist var inn í bíl í Árbæ í gær og úr honum stolið tveimur GPS-tækjum, DVD spilara og tösku sem í voru á annað hundrað DVD myndir. 12.11.2009 12:04
Sakar bæjaryfirvöld um að reisa grjótgarð á einkalandi Bóndinn og áhugaleikarinn Helgi Andersen á Þórkötlustöðum í Grindavík hefur sent formlegt erindi til bæjarstjórnar Grindavíkur vegna grjótgarðs sem yfirvöld reistu á landi hans. 12.11.2009 11:49
Fullviss um að Bæjarins besta hafi verið mörgum til ánægju Héraðsfréttablaðið Bæjarins besta á Ísafirði fagnar 25 ára afmæli sínu þessa dagana. „Þeir sem að Bæjarins besta standa eru þess fullvissir, að útgáfa blaðsins í aldarfjórðung hafi verið Vestfirðingum og mörgum öðrum til ánægju, gagnsemi og fróðleiks. Undirtektirnar hafa sýnt það. Fyrir þær skal þakkað sérstaklega á þessum tímamótum,“ segir í tilkynningu frá blaðinu. 12.11.2009 11:41
Forbes: Obama valdamesti maður jarðar Forbes tímaritið bandaríska hefur tekið saman lista yfir 67 valdamestu einstaklina jarðarkringlunnar. Á toppi listans trónir Barack Obama bandaríkjaforseti og í öðru sæti er kollegi hans í Kína, Hu Jintao. Þriðja sætið vermir síðan Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands og fyrrverandi forseti og í því fjórða er Ben S. Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. 12.11.2009 11:41
Draumur vinstrimanna að hækka loksins skatta „Það getur vel verið að þetta sé hinn tæri draumur vinstrimanna að komast núna loksins í það að hækka almennilega skatta. Stóra einstaka málið er þó það sem ég bið stjórnarmenn að hugsa að hér um að ræða málfrelsi í þinginu,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um störf Alþingis í dag. 12.11.2009 11:15
Sjálfstæðismenn farnir að spyrja alvöru spurninga Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í dag ánægjulegt að sjálfstæðismenn væru farnir að spyrja alvöru spurninga varðandi ráðningar hjá hinu opinbera. Í umræðum um ráðningar í ráðuneytin án auglýsingar sagði Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, flokk sinn og aðra flokka sem sátu í ríkisstjórn á árum áður ekki hafa verið til fyrirmyndar í þessum efnum. 12.11.2009 10:54
Segir hugsanlegt fósturforeldri lofa hvolpi „Hún er búin að lofa honum hvolpi,“ segir Helga Elísdóttir, amma níu ára drengs sem átti að senda í fóstur á föstudaginn af Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Lögfræðingur Helgu, Dögg Pálsdóttir, kvartaði hinsvegar undan málsmeðferðinni og því hefur verið frestað að senda drenginn í fóstur. Að sögn Helgu þá er drengurinn núna í neyðarvistun í Reykjavík. Sjálf fær hún aðeins að umgangast hann í einn og hálfan tíma. 12.11.2009 10:49
Réttað yfir sjóðsstjóra og miðlara Aðalmeðferð er hafin í máli Ríkislögreglustjóra gegn sjóðstjórnanum Daníels Þórðarsonar og verðbréfamiðlaranum Stefni Inga Agnarssonar fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir störfuðu fyrir Kaupþing. Þeir hafa verið ákærðir fyrir að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista alls sex sinnum frá janúar til febrúar á síðasta ári. 12.11.2009 10:01
Fjárhagsstaða dómstóla rædd á þingi Fjárhagsstaða dómstóla verður rædd í umræðu utan dagskrár á Alþingi í dag að beiðni Ólafar Nordal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Til andsvara verður Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra. Umræðan hefst klukkan 13:30. 12.11.2009 09:57
Tyson handtekinn enn á ný Hnefaleikameistarinn fyrrverandi, Mike Tyson, var handtekinn á flugvellinum í Los Angeles í gær eftir að til átaka kom milli hans og ljósmyndara. 12.11.2009 08:58
Sonur Escobars biðst afsökunar Sonur kókaínbarónsins Pablo Escobar segist harma afbrot föður síns. 12.11.2009 08:53
Kínverjar reka ólögleg fangelsi Kínverjar reka fjölda ólöglegra fangelsa í hótelum, hjúkrunarheimilum og geðsjúkrahúsum í ríkiseigu. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch greina frá þessu og byggja upplýsingarnar á viðtölum við 38 manns sem verið hafa í haldi í slíkum fangelsum. 12.11.2009 08:51
Skátaforingi hafði mök við barn Danskur fyrrverandi skátaforingi á fertugsaldri hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa kynmök við skátastúlku undir lögaldri en brotin áttu sér stað frá því að stúlkan var 13 ára og þar til hún varð 15 ára. 12.11.2009 08:45
Vafasamur ljósmyndari í Bretlandi Breskur dómstóll hefur bannað þrítugum manni að bera myndavél á almannafæri í tvö ár auk þess sem honum er gert að sinna samfélagsþjónustu í eitt ár. 12.11.2009 08:41
Afhentu Svandísi hvirfilbyl Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál. Undirskriftunum hafði verið safnað á íspinnaprik við ýmsa gjörninga og atburði í sumar og haust og úr þeim var byggður hvirfilbylur sem er táknrænn fyrir þann vanda sem steðjar að jörðinni, verði ekkert að gert. 12.11.2009 08:23
Milljarðar í bónusa í varnarmálaráðuneyti Starfsfólk breska varnarmálaráðuneytisins hefur fengið 47 milljónir punda, jafnvirði tæpra tíu milljarða króna, í bónusgreiðslur það sem af er yfirstandandi fjárhagsári. 12.11.2009 08:21
Flughált á Fjarðarheiði Á Austurlandi, er flughált á Fjarðarheiði og víða hálka eða hálkublettir inn til landsins þótt autt sé með ströndinni. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og í Miðdölum en hálkublettir víðar. 12.11.2009 08:19
Ræður Obama frá því að auka við herliðið í Afganistan Sendiherra Bandaríkjanna í Kabúl hefur skrifað Bandaríkjaforseta bréf þar sem lagst er gegn því að auka við liðssöfnuð bandaríska hersins í Afganistan. Bréfinu hefur verið lekið til fjölmiðla en sendiherrann, Karl Eikenberry lýsir einnig efasemdum sínum um að Hamid Karzai forseti landsins og ríkisstjórn hans séu hæf til starfans. 12.11.2009 08:16
Oftar verði gripið til brottvísunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Útlendingastofnun hafa stillt saman strengi og sameinast um skilning á þeim ákvæðum laga um útlendinga sem snúa að heimildum til að vísa fólki úr landi leiki grunur á að það hafi í hyggju að fremja lögbrot. 12.11.2009 06:30
Þekktir fyrir ofbeldisverk hér á landi Menn í hópi fimm Litháa sem enn sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér, þar á meðal mansali, eru þekktir að ofbeldisverkum hér á landi. Fimmmenningarnir voru í gær úrskurðaðir í Héraðsdómi Reykjaness í áframhaldandi gæsluvarðhald til 2. desember eða í þrjár vikur til viðbótar, að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. 12.11.2009 06:00
Stillti saman strengi Samninganefnd Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið kom saman til síns fyrsta fundar í Þjóðmenningarhúsinu í gær. 12.11.2009 06:00
Nýtir skinn sem hefði annars verið fargað Skinn af lömbum sem drepast við burð eða drepast áður en þau eru rekin á fjall eru nú nýtt í nýrri fatalínu Eggerts Jóhannssonar feldskera. 12.11.2009 06:00
Geta greitt tæp tíu prósent Skilanefnd Landsbankans hefur stefnt eignarhaldsfélaginu Gift vegna skulda félagsins við bankann. Viðræður hafa átt sér stað um skuldina. Fyrirtaka fór fram í málinu í gær en var frestað fram í næsta mánuð. 12.11.2009 05:00
Ný þjófafæla er nú fáanleg „Þjófafælurnar eru farnar að tínast út,“ segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri verslunarinnar Glóeyjar sem selur nú nýtt tæki í baráttunni við innbrotsþjófa. Þetta er svokölluð FakeTV þjófafæla, sem gefur frá sér sams konar flöktandi birtu og sjónvarpstæki. 12.11.2009 04:00
Réðust á tvo lögreglumenn Ríkissaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að skalla lögreglumann, sem var við skyldustörf í Bankastræti, í ennið. Maðurinn játaði sök fyrir dómara í gær. Annar maður var einnig ákærður fyrir ofbeldi gegn lögreglumanni við skyldustörf. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. 12.11.2009 04:00
Slysum hefur fækkað um 34 prósent Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um 34 prósent milli áranna 2007 og 2009. Á fyrstu sjö mánuðum fyrrnefnda ársins urðu 343 slys í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu en á sama tímabili í ár urðu 228 slys. Frá þessu er greint í frétt lögreglunnar. 12.11.2009 04:00
Sjómannaafslátturinn ekki til tals við fjárlagagerðina Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, segir að afnám sjómannaafsláttar hafi ekki komið til umræðu í fjárlagavinnu fyrir árið 2010. 12.11.2009 03:45
Dópsalar földu hátt í milljón Fíkniefni, nær milljón í peningum og vopn fundust við húsleit í íbúð í Reykjavík síðdegis í fyrradag. Um var að ræða um fjörutíu grömm af hreinu amfetamíni, tíu grömm af hassi, þó nokkuð af sterum, marijúana og e-töflur 12.11.2009 03:15
Íslendingur vann 107 milljónir í Víkingalottóinu Tveir heppnir Víkingalottóspilarar skiptu með sér tvöföldum potti kvöldsins og fékk hvor um sig rúmar 107 milljón krónur og var annar miðinn seldur í Noregi og hinn hér á landi. Miðinn sem seldur var hér á Íslandi var seldur í Videómarkaðnum Hamraborg. 11.11.2009 20:01
Harmar umfjöllun um viðkvæmt barnaverndarmál Barnavernd Reykjavíkur harmar að viðkvæm málefni barns, sem nýtur stuðnings starfsmanna Barnaverndar Reykjavíkur, hafi orðið tilefni umfjöllunar í fjölmiðlum og í netheimum síðustu daga. 11.11.2009 19:48
Skipar vinnuhóp til að bæta eftirlit með skipulagðri glæpastarfsemi Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur skipað vinnuhóp til að kanna hvaða möguleikar eru fyrir hendi innan gildandi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að verið sé að nýta þær heimildir sem til staðar eru til að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. 11.11.2009 17:28
Stóra tóbaksmálið: Kosningahnappurinn minn svínvirkar „Ég er mannaskástur í þessu,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurður hvort hann sé drjúgur í neftóbaksneyslunni á Alþingi en þingmaður Hreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir, gagnrýndi neyslu tóbaksins harðlega fyrr í dag. Hún hélt þá ræðu undir liðnum störf þingsins og sagði meðal annars: 11.11.2009 16:20
Segir skötuselsákvæðið ekki klæðskerasniðið fyrir sig Sex vikum áður en sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp í gær um nýstárlega úthlutun skötuselskvóta keypti Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, þrjátíu tonna bát til að gera út á skötusel. Formaður Frjálslynda flokksins, Guðjón A. Kristjánsson, er nú sérlegur ráðgjafi ráðherra um breytingar á kvótakerfinu. 11.11.2009 18:45
Kosningakerfi Alþingis stíflað vegna grófrar neftóbaksneyslu Þingmaður Hreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir hélt ræðu á Alþingi undir liðnum störf Alþingis fyrr í dag og gagnrýndi þar harðlega neftóbaksneyslu þingmanna. Afleiðingar þessarar neyslu er meðal annars að kosningakerfi Alþingis virkar ekki alltaf sem skyldi vegna þess að kosningahnappar tóbaksþingmannanna stíflast af grófum kornum tóbaksins. 11.11.2009 14:44
Framsóknarmenn tryggja kynjakvóta Framsóknarmenn í Reykjavík munu halda sérstakan kjörfund laugardaginn 28. nóvember nk. þar sem kosið verður á milli frambjóðenda sem gefa kost á sér í sæti á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí 2010 samkvæmt kjörnefnd Framsóknar í Reykjavík. 11.11.2009 16:00
Þriðjungur allra flugslysa í Afríku Flugferðir yfir Aríku eru aðeins lítið brot af allri flugumferð í heiminum, telur um 4%, en hins vegar verður þriðjungur allra flugslysa í heiminum í Afríku, að því er fram kom á þriggja daga fundi um flugöryggismál í höfuðborg Tógó og greint er frá í tímariti Þróunarsamvinnustofnunar. 11.11.2009 14:32
Leggur til að Náttúruminjasafnið fái inn í Þjóðmenningahúsið Þingmaður Framsóknarflokksins, Siv Friðleifsdóttir, lagði til á þingi fyrir stundu að Náttúruminjasafn Íslands fengi inn í Þjóðmenningarhúsið. Tilurð umræðunnar var húsnæðisleysi safnsins. Siv sagði það jafnframt fráleitt að Íslendingar ættu ekkert náttúruminjasafn. 11.11.2009 14:29
Hrotti játar að hafa ráðist á lögreglumann Hinn tuttugu og sex ára gamli Björgvin Þór Kristjánsson játaði fyrir dómara í morgun að hafa brotið gegn valdstjórninni með því að hafa þann 1. apríl skallað lögreglumann á ennið þegar hann var við skyldustörf. Árásin átti sér stað fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur, en þar inni játaði Björgvin brot sín í morgun. 11.11.2009 14:17