Innlent

Flughált á Fjarðarheiði

Á Austurlandi, er flughált á Fjarðarheiði og víða hálka eða hálkublettir inn til landsins þótt autt sé með ströndinni. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og í Miðdölum en hálkublettir víðar.

Hálkublettir eru einnig nokkuð víða á Vestfjörðum en hálka á Kleifaheiði og Hrafnseirarheiði að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Norðurlandi er víðast hvar einhver hálka, ýmist skráð sem hálka eða hálkublettir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×