Harmar umfjöllun um viðkvæmt barnaverndarmál Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. nóvember 2009 19:48 Sviðsett mynd.
Barnavernd Reykjavíkur harmar að viðkvæm málefni barns, sem nýtur stuðnings starfsmanna Barnaverndar Reykjavíkur, hafi orðið tilefni umfjöllunar í fjölmiðlum og í netheimum síðustu daga. Í tilkynningu frá Barnavernd Reykjavíkur kemur fram að starfsmenn hennar séu bundnir trúnaði um málefni einstakra barna og geti því aldrei útskýrt eða varið ákvarðanir og ferli nema í lokuðu þinghaldi fyrir dómsstólum eða gagnvart öðrum eftirlitsaðilum. Þessi trúnaður sé bæði lagalegur og siðferðilegur og snúi að því að vernda hagsmuni þeirra barna sem starfsmenn barnaverndar vinni fyrir og aðstandenda þeirra. Tilefni fréttatilkynningarinnar er frásögn fjölmiðla af máli tveggja drengja, en yngri drengurinn var tekinn úr umsjá ömmu sinnar fyrir síðustu helgi og hefur verið vistaður á vistheimili á Laugarásvegi. Í tilkynningunni frá Barnavernd Reykjavíkur segir að ferli þessa tiltekna máls hafi verið yfirfarið sérstaklega og telji Barnavernd að þar hafi verið unnið með bestu hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Starfsmenn hjá Barnavernd Reykjavíkur taki tillit til allra aðstæðna barna í þeim málum sem þeim sé falið að sinna, leitist við að styðja börnin í þroska þeirra og tryggja öryggi þeirra. Unnið er eftir lögum, ferlum og reglum. Ákvarðanir séu teknar af teymum eða eftir atvikum barnaverndarnefnd, eftir ítarlega yfirferð mála, ekki af einstökum starfsmönnum. Barnavernd segir að samkvæmt barnaverndarlögum séu allar tillögur barnaverndarstarfsmanna um forræðissviptingu lagðar fyrir barnaverndarnefndir til ákvörðunar. Barnaverndarnefndir og barnaverndarstarfsmenn lúti eftirliti Barnaverndarstofu. Komi upp ágreiningur um ákvarðanir og vinnslu mála geta aðstandendur barna kært meðferð mála til Barnaverndarstofu, kærunefndar barnaverndarmála, félags- og tryggingamálaráðuneytis og dómsstóla, allt eftir eðli máls. Í þessu tiltekna máli hafi lögmaður móður barnsins kært málið til kærunefndar barnaverndarmála. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur muni jafnframt á næstu dögum fjalla um málið. Komi eitthvað nýtt upp í málinu verði það tekið upp aftur
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Sjá meira