Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ljósabekkir verði bannaðir innan átján Geislavarnastofnanir á Norðurlöndunum vilja að sett verði 18 ára aldurstakmark á notkun ljósabekkja. Þetta kemur fram á heimasíðu Geislavarna ríkisins. Þar segir að Norrænar geislavarnastofnanir hafi ráðlagt árið 2005, fólki undir 18 ára aldri og fólki með ljósa húð að nota ekki ljósabekki. Í nýrri sameiginlegri yfirlýsingu fjögurra geislavarnastofnana Finnlands, Svíþjóðar, Íslands og Noregs hafi hinsvegar verið gengið skrefi lengra og er nú lagt til að 18 ára aldursmark verði sett á notkun ljósabekkja. 11.11.2009 11:29
Tvö umferðaróhöpp í hálkunni Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Um áttaleytið valt jepplingur á Reykjanesbraut í Kópavogi. Ekki er ljóst hvað olli því en óhappið er hvorki rakið til hálku né hraðaksturs. 11.11.2009 11:17
Helmingur ók of hratt Brot 75 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í gær af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 11.11.2009 10:54
Haförn í Hvalfjarðarsveit Í síðustu viku sást til hafarnar norðan við Laxá í Hvalfjarðarsveit ofan við Stóra Lambhaga samkvæmt vef Hvalfjarðarsveitar. 11.11.2009 10:37
Brotist inn í fyrirtæki og bíla í nótt Nokkrar tilkynningar hafa borist til lögreglu vegna innbrota sem framin voru í nótt á höfuðborgarsvæðinu. Farið var inn í bíl á Suðurlandsbraut og þar tók þjófurinn sig til og spennti upp hurð bílsins til þess að komast inn. 11.11.2009 09:40
Að gera sem minnst í vinnunni Bandarískur rithöfundur segir fólk enn þá geta komist upp með að gera sem minnst í vinnunni, hvað sem kreppuástandi líður. 11.11.2009 08:45
Forseti ESB útnefndur í næstu viku Forseti Evrópusambandsins verður kosinn á fimmtudaginn í næstu viku, þann 19. nóvember að því er breska blaðið Financial Times hefur eftir Frederik Reinfreldt, forsætisráðherra Svíþjóðar. Kjörið fer fram á sérstökum aukafundi á meðal leiðtoga ríkja innan ESB og þykir líklegt að Herman van Rompuy forsætisráðherra Belga verði fyrir valinu. 11.11.2009 08:21
Varað við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli hálku víðast hvar í borginni. Að sögn varðstjóra er ástandið mjög varhugavert og brýnir hann fyrir ökumönnum að fara varlega á leið til vinnu sinnar. 11.11.2009 07:57
Ástralar hækka viðbúnaðarstig vegna hákarla Sumarið er fram undan í Ástralíu og miklar varúðarráðstafanir verða gerðar á baðströndum vegna tíðra hákarlaárása á þessu ári. 11.11.2009 07:18
Ölvaður flugstjóri handtekinn Lögregla á Heathrow-flugvellinum í London handtók bandarískan flugstjóra Boeing 767-farþegaþotu á mánudaginn, rétt fyrir fyrirhugað flugtak, en maðurinn, sem er á sextugsaldri, var undir töluverðum áfengisáhrifum. 11.11.2009 07:15
Muhammad tekinn af lífi í nótt John Allen Muhammad, maðurinn sem myrti tíu manns úr launsátri í úthverfum Washington borgar í Bandaríkjunum árið 2002 var tekinn af lífi í Virginíu í nótt. Aftakan fór fram með eitursprautu en verjendur Muhammads höfðu reynt allt til þess að fá aftökunni frestað. 11.11.2009 07:10
Rafmagnslaust í Brasilíu og Paraguay í gær Rafmagn fór af stórum hlutum Brasilíu og Paraguay í gærkvöldi, meðal annars voru stórborgirnar Rio de Janeiro og Sao Paulo rafmagnslausar. 11.11.2009 07:10
Flaug frá Íslandi til Skotlands á 14 tímum Fyrsti svanurinn af fimmtíu sem útbúnir voru staðsetningartækjum í Skotlandi í byrjun ársins er snúinn aftur eftir ferðalag til Íslands. Svanurinn sem kallaður er Supersonic Bill var snar í snúningum, en hann flaug 800 kílómetra leið frá Íslandsströndum til Skotlands á 14 klukkutímum. 11.11.2009 07:08
Lögregla skaut þriggja ára dreng Mikill styr er nú meðal íbúa bæjarins Klipfontein View í Suður-Afríku eftir að lögreglumaður skaut þriggja ára gamlan dreng þar til bana á laugardaginn. 11.11.2009 07:06
Refsingar fyrir hnífstunguárásir hertar í Bretlandi Jack Straw, dómsmálaráðherra Bretlands, hefur breytt hegningarlöggjöf landsins á þann veg, að refsing fyrir morð, þar sem eggvopni er beitt, verður eftirleiðis að lágmarki 25 ár í stað 15 ára. 11.11.2009 07:04
Orrusta herskipa við strendur Kóreu Átök milli herskipa frá Norður- og Suður-Kóreu hafa ekki orðið í sjö ár. Á þriðjudaginn skiptust herskip frá ríkjunum á skotum úti af vesturströnd ríkjanna. 11.11.2009 06:00
Stjórnarmaður KSÍ vill setja siðareglur Ingibjörg Hinriksdóttir, stjórnarmaður í Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ), telur að ekki hafi verið tekið rétt á málum fjármálastjóra sambandsins, en milljónir voru teknar af korti sambandsins sem hann var með á nektarstað í Sviss. Ingibjörg telur að málið hefði átt að vera opinbert frá fyrstu stundu. 11.11.2009 06:00
Orku- og umhverfisskattar verði 7,5 milljarðar króna Ríkisstjórnin er tilbúin að lækka þá upphæð sem umhverfis-, orku- og auðlindagjöld skila í ríkiskassann á næsta ári úr 16 milljörðum króna í 7,5 milljarða. Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafa mótmælt þessum gjöldum og er þetta tillaga til sáttar. Orkugjaldið verður, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, tólf aurar á kílóvattstund, ekki ein króna eins og lagt var til í fjárlagafrumvarpinu. 11.11.2009 06:00
Átta mánuði tók að svara tölvupósti Átta mánuðir liðu frá því að eftirlitssviði Lyfjastofnunar var send fyrirspurn í tölvupósti seint á árinu 2008 og þar til svar barst nú í sumar. Stofnunin hefur ekki enn skilað greinargerð vegna úttektar sem gerð var á ónefndu apóteki um mitt ár 2008. 11.11.2009 06:00
Björgólfur Thor á húsin í Gjábakka Björgólfur Thor Björgólfsson og Kristín Ólafsdóttir, kona hans, eiga sumarbústaðina þrjá í Gjábakka í Þingvallaþjóðgarðinum sem sagt var frá í Fréttablaðinu á mánudag. Upplýsingar úr þjóðskrá að Ólafur H. Jónsson, faðir Kristínar, væri eigandi tveggja einkahlutafélaga sem eiga sumarhúsin reyndust ekki vera réttar. 11.11.2009 05:00
Norrænn loftslagsdagur í dag Í dag er haldinn hátíðlegur norrænn loftslagsdagur, en hann er hluti af undirbúningi fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember. 11.11.2009 05:00
Öll gögn verði opin almenningi Forsætisráðherra á að lýsa því yfir hið fyrsta að öll gögn í umsjá opinberra aðila verði hér eftir opin og aðgengileg almenningi, nema brýnar ástæður séu til annars. Þetta segja tólf þingmenn úr öllum flokkum í nýlegri þingsályktunartillögu um opin gögn og rafrænan aðgang að þeim. 11.11.2009 05:00
Með nýtt frumvarp í smíðum Silvio Berlusconi forsætisráðherra og félagar hans á Ítalíuþingi ætla að leggja fram frumvarp sem myndi losa hann úr snöru réttarkerfisins vegna spillingarmála sem hann er ákærður fyrir. 11.11.2009 04:00
Seinkun og minna magn Afhendingu bóluefnis gegn svínainflúensu hingað til lands hefur seinkað í þessari viku og auk þess kemur minna magn en gert hafði verið ráð fyrir, að því er fram kemur á heimasíðu landlæknisembættisins. 11.11.2009 04:00
Lögmenn kanna leiðir til sátta Lögmenn taka sér þrjár vikur til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir sáttum í fimm af sex skuldamálum sem gamli Landsbankinn hefur höfðað á hendur eignarhaldsfélaginu Imoni. Málflutningur vegna frávísunarkröfu sjötta og stærsta málsins fer fram um miðjan janúar. 11.11.2009 04:00
Vill takmarka vöxt bankanna Aðgerðir ríkisstjórna víða um heim til bjargar fjármálageiranum kunna að leiða af sér fákeppni og markaðsmisnotkun á bankamarkaði. Svo mælir Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands. 11.11.2009 04:00
Ríkið selji kvótann á 120 krónur kílóið Ríkið mun selja viðbótarkvóta á skötusel á 120 krónur hvert kíló og afla sér þannig 240 milljóna króna tekna næstu tvö ár ef frumvarp sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra lagði fyrir Alþingi í gær verður að lögum. „Þetta er mjög sérstakt,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Þarna er bara verið að fara fyrningarleiðina með eina fisktegund.“ 11.11.2009 04:00
Lögreglan noti ekki rafbyssur Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingunni hvatti í gær dómsmálaráðherra til að koma í veg fyrir að lögregla beri rafbyssur. Ríkislögreglustjóri vill að sérsveitarmenn beri slík vopn en endanleg ákvörðun þar um hefur ekki verið tekin. 11.11.2009 04:00
Hart deilt enn á ný um fóstureyðingar Deilur um fóstureyðingar eru orðnar háværar enn á ný í Bandaríkjunum eftir að fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti að framlengja bann við því að ríkið taki þátt í að greiða kostnað við fóstureyðingar. 11.11.2009 03:30
Allt að 350 störf gætu tapast með hækkun tryggingargjalds Um 300 - 350 störf á vegum sveitarfélaganna gætu tapast vegna hækkunar tryggingargjalds, segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð. Grímur bendir á að við þá hækkun tryggingargjalds sem nú sé rætt um aukist álögur á sveitarfélögin um 1200 milljónir króna á næsta ári. 10.11.2009 20:01
Efnahags- og skattanefnd hittir fulltrúa Seðlabankans Fulltrúi frá Seðlabankanum hitti efnahags- og skattanefnd Alþingis á fundi nefndarinnar sem hófst laust eftir klukkan átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum á vef Alþingis er Icesave málið á dagskrá fundarins en einnig verða önnur mál rædd í þaula samkvæmt heimildum Vísis. 10.11.2009 20:17
Rösklega 40 ráðnir án auglýsinga Frá síðustu áramótum hafa 42 starfsmenn verið ráðnir til starfa í ráðuneytum án auglýsinga. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, á Alþingi. 10.11.2009 17:25
Veiða síld í kapp við sýkilinn Síldarkvóti, sem sjávarútvegsráðherra gaf út í dag á sýktu síldina, gæti skilað allt að fjögurra milljarða króna gjaldeyristekjum. Vinnslustöðar telja síldina hæfa til frystingar ef flotanum tekst að veiða hana nógu fljótt áður en sýkingin breiðist út í holdið. 10.11.2009 19:02
Ríkið byrjar að selja kvóta - sáttarrof segir LíÚ Ríkið ætlar að selja viðbótarkvóta í skötusel til ágóða fyrir ríkissjóð, en ekki að úthluta til þeirra sem hafa aflareynslu, samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegsráðherra lagði fram á Alþingi í dag. Sáttarrof, segir talsmaður útvegsmanna. 10.11.2009 18:47
Súludansmeyjar yfirheyrðar vegna mansalsmáls Lögreglan á Suðurnesjum hefur yfirheyrt erlendar dansmeyjar af súlustöðum hér á landi í tengslum við mansalsmálið sem kom upp um miðjan október. Málið er umfangsmikið og hafa fimm Litháar og einn íslendingur setið í gæsluvarðhaldi sem rennur út á morgun. 10.11.2009 18:30
Fullur vildi lengri opnunartíma Á miðvikudaginn var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á Akranesi vegna karlmanns sem var ölvaður og mjög æstur fyrir utan Vínbúðina rétt eftir lokun. Var hann mjög reiður starfsfólki Vínbúðarinnar en hann taldi að starfsmenn hefðu lokað of snemma. Samkvæmt lögreglunni liggja ekki fyrir upplýsingar um hvort sé réttara, klukka Vínbúðarinnar eða úr karlmannsins. 10.11.2009 16:55
Skattamál komin á dagskrá Alþingis Á fundi forseta Alþingis með þingflokksformönnum, sem er nýlokið, var ákveðið að efna til umræðu utan dagskrár næstkomandi föstudag, 13. nóvember, um skattamál, að viðstöddum fjármálaráðherra. 10.11.2009 16:28
Breiðavíkursamtökin fordæma forsjársviptingu Breiðavíkursamtökin fordæma Barnavernd Reykjavíkur vegna málsins þar sem Helga Elísdóttir hefur verið svipt umsjá annars dóttursinar síns, án undangengins dómsúrskurðar, og ætlar að senda í fóstur út á land. Þetta kemur fram í ályktun samtakanna sem þau sendu fjölmiðlum. 10.11.2009 15:59
Fundu 20 kannabisplöntur í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi síðdegis í gær. 10.11.2009 15:55
Segist hafa fengið gúmmítékka frá Sun Life Kennarinn og tónlistarmaðurinn Kári Friðriksson segist hafa fengið gúmmítékka frá séreignalífeyrissparnaðinum Sun Life eftir að hann var ofrukkaður af fyrirtækinu. Sjálfur tók hann út sparnaðinn sinn í apríl-maí á síðasta ári en átta mánuðum síðar fór Sun Life að taka aftur greiðslur út af greiðslukortinu hans. 10.11.2009 15:47
Hafnfirskir pörupiltar stálu bensíni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip tvo pilta um tvítugt glóðvolga í Hafnarfirði um miðnætti í gær þar sem þeir voru að stela bensíni af bíl. 10.11.2009 14:55
Ekið á litla stúlku Ekið var á 10 ára stúlku í miðborginni í gærmorgun. Betur fór þó en á horfðist því hún slapp með minniháttar áverka. 10.11.2009 14:50
Fyrsti fundur samninganefndar ESB á morgun Fyrsti fundur samninganefndar Íslands í væntanlegum aðildarviðræðum við ESB verður haldinn á morgun, miðvikudag klukkan tvö í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. 10.11.2009 14:37
Sjálfstæðismenn yfirgáfu þingsal og fengu þá orðið Upphlaup varð á Alþingi fyrir stuttu þar sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, leyfði ekki Sjálfstæðismönnum sem báðu um orðið, að ræða fundarstjórn forsetans undir liðnum Dagskrá þingsins. 10.11.2009 14:21
Sex stútar stöðvaðir Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 16-26 ára og tvær konur, 20 og 26 ára. 10.11.2009 13:43