Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Breyta þarf lögum til að bæta réttarstöðu feðra Formaður Félags um foreldrajafnfrétti segir að breyta þurfi lögum strax til að bæta réttarstöðu feðra þegar kemur að umgengni þeirra við börn sín eftir skilnað. 8.11.2009 19:04
Keyrð 30 kílómetra leið í skólann Grunnskólakennslu hefur verið hætt á Kópaskeri og eru börnin nú keyrð 30 kílómetra leið í sveitaskóla. Bænaskjöl og kærumál heimamanna gegn þessari ráðstöfun hafa engu breytt. 8.11.2009 18:56
Afar spenntur fyrir rafrænu eftirliti Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, er afar spenntur fyrir hugmyndum um rafrænt eftirlit með föngum. Hann segir fjölda fanga treystandi til að ljúka afplánun sinni með þessum hætti. Páll bendir á að þetta form eftirlits geti verið kostnaðarsamt. 8.11.2009 16:44
Hvöttu Abbas til að halda áfram Fjölmargir Palestínumanna komu saman á útifundi á Vesturbakkanum og hvöttu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, til gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningunum sem haldnar verða í janúar næstkomandi. Forsetinn lýsti því yfir helgi að hann ætli ekki að taka þátt í kosningunum. 8.11.2009 16:16
Bæjarstjórinn himinlifandi með úrslitin Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, er himinlifandi með úrslitin í prófkjöri sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu sem fram fór í gær. Þar fékk Ásgerður afgerandi kosningu til að leiða flokkinn í bæjarstjórnarkosningunum í maí á ári en stutt er síðan hún tók við sem bæjarstjóri. 8.11.2009 15:59
Gróðursettu 300 haustlauka Íbúar á Grímstaðarholti jafnt ungir sem aldnir sem og fyrrum íbúar á svæðinu létu hendur standa fram úr ermum í dag og gróðursettu á þriðja hundruð haustlauka á Lynghagaleikvellinum í vesturhluta Reykjavíkur í dag. 8.11.2009 15:39
Á morgun verða 20 ár frá falli Berlínarmúrsins Þess verður minnst á morgun að 20 ár eru frá falli Berlínarmúrsins í Þýskalandi. Hann var að mestu leyti rifinn niður árið 1989 þegar Sovétríkin liðuðust í sundur og kommúnisminn hrundi í Austur-Evrópu. 8.11.2009 15:33
Ráðamenn hvattir til að liðka fyrir atvinnuuppbyggingu Keflavíkurgöngu hinni nýju lauk með samstöðufundi við Kúagerði um tvöleytið þar sem Páll Pálsson, forsvarsmaður Virkjunar fyrir atvinnulausa ávarpaði fundinn. Síðan var fulltrúum ráðamanna afhent áskorun frá þverpólitískum undirbúningshópi göngunnar þar sem ráðamenn eru hvattir til að ganga í takt við ástandið á Reykjanesi, en þar ganga nú um 1600 manns atvinnulausir. 8.11.2009 15:27
Enginn afsláttur gefinn með rafrænu eftirliti Í dóms- og mannréttindaráðuneytinu er unnið að gerð frumvarps sem felur meðal annars í sér í sér að innleiddar verði reglur sem gera afbrotamönnum kleift að ljúka hluta afplánunar með rafrænu eftirliti. Rafrænt eftirlit er mjög íþyngjandi að mati Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannaréttindaráðherra. Hún segir að ekki sé verið að gefa neinn afslátt af refsingu fanga. 8.11.2009 15:14
Óttast að skólarnir geti ekki sinnt lögbundnum skyldum sínum Mikill niðurskurður á fjárveitingum til framhaldsskóla er sérstakt áhyggjuefni þar sem þeim hefur í mörg ár verið skorinn mjög þröngur stakkur í rekstri. Því verður að telja hættu á að skólarnir geti ekki sinnt lögbundnum skyldum sínum við nemendur ef fyrirfram er ákveðið að greiða ekki nauðsynlegan viðurkenndan kostnað af námsvist þeirra. Þetta kemur fram á ályktun Félags framhaldsskólakennara um fjárlagafrumvarpið og fyrirhugaðan niðurskurð á fjárveitingum til framhaldsskóla. 8.11.2009 13:36
Tveggja bíla árekstur á Kringlumýrarbraut Tveggja bíla árekstur varð á ellefta tímanum í morgun á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Kalla þurfti út dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eftir að olía lak úr öðrum bílnum. Ekki urðu alvarleg slys á fólk en einn var fluttur á slysadeild til skoðunar. 8.11.2009 13:11
Mannskæð sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti 12 féllu og 35 særðust í sjálfsmorðsprengjuárás á markaði í bæ skammt frá borginni Peshawar í Pakistan í morgun. Talið er að tilræðinu hafi verið beint bæjarstjóranum sem var staddur á markaðnum þegar sprengjan sprakk en hann var meðal hinna látnu. Fram kemur á vef BBS að bæjarstjórinn hafi verið mikill andstæðingur Talibana. 8.11.2009 13:10
Katrín gengur til móts við Suðurnesjamenn Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, ætlar að hitta þátttakendur í Keflavíkurgöngunni þegar hópurinn kemur í Kúagerði á eftir. Þetta kemur fram á Facebook síðu ráðherrans. Um 300 taka þátt í göngunni. 8.11.2009 12:52
Obama: Söguleg niðurstaða Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í nótt umdeilt frumvarp Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um breytingar á heilbrigðiskerfinu þar í landi. Sjálfur segir Obama að niðurstaðan sé söguleg. Hann er sannfærður um að öldungadeildin samþykki frumvarpið á næstu vikum og vonast til þess að það verði orðið að lögum fyrir áramót. 8.11.2009 12:38
„Þegar mitt fólk leit út um gluggann var albjart á svæðinu“ Íslensk hjón sluppu naumlega ásamt tveimur börnum sínum þegar eldur kom upp í húsbíl þeirra á tjaldstæði í Noregi í fyrrinótt. 8.11.2009 12:00
Konur missa vinnuna í niðurskurði Margrét Sverrisdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, óttast ekki að lögum um fæðingarorlof verði breytt vegna efnahagsástandsins. Hún vill að stjórnvöld meti framkvæmdir út frá hag kynjanna áður en ráðist er viðkomandi framkvæmd. Ábyrgð stjórnvalda sé mikil. „Með auknum niðurskurði hjá hinu opinbera þá munu fylgja fjöldauppsagnir kvenna, til að mynda í heilbrigðiskerfinu,“ sagði Margrét sem var gestur í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. 8.11.2009 11:39
Jólamaturinn gerður upptækur á Þingvöllum Jólamaturinn var gerður upptækur hjá tveimur rjúpnaskyttum í gær þegar þær voru staðnar að ólöglegum veiðum innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. 8.11.2009 11:06
Vilja réttarbætur fyrir transfólk Átta þingmenn allra flokka hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til þess að gera tillögur að úrbótum á stöðu transfólks, einnig kallað transgender, á Íslandi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. 8.11.2009 10:57
Umbótafrumvarp Obama samþykkt Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í nótt umdeilt frumvarp Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um breytingar á heilbrigðiskerfinu þar í landi. Það þykir mikill sigur fyrir Obama að frumvarpið hafi verið samþykkt. 8.11.2009 10:02
Keflavíkurgangan farin í dag Keflavíkurganga verður farin í dag en gengnir verða 10 kílómetrar frá Vogaafleggjara, klukkan 11:30, að Kúagerði þar sem samstöðufundur verður haldin klukkan tvö. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka ætla að mæta hópnum á miðri leið eins og segir í tilkynningu og munu ávarpa fundinn við Kúagerði. 8.11.2009 09:58
Víða hálka Hálkublettir eru á Hellisheiði, Þrengslum og í allri Árnessýslu. Á Vesturlandi eru hálkublettir á milli Grundarfjarðar og Stykkishólms og á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði. 8.11.2009 09:52
Vilja jafnan rétt til að umgangast börnin sín Félag um foreldrajafnrétti skorar á ríkisstjórn Íslands að taka á jafnrétti foreldra til að umgangast börnin sín en talið er að um 20.000 skilnaðarbörn séu á Íslandi. 8.11.2009 09:50
Sex líkamsárásarmál í nótt Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komu upp sex líkamsárásarmál en þau voru minniháttar, að sögn varðstjóra. Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna aksturs undir áhrifum áfengis. Sex gistu fangageymslur lögreglu í nótt. Þá var töluvert um hávaðaútköll í heimahús. 8.11.2009 09:45
Ökuníðingur á ofsahraða hafnaði utanvegar Bifreið hafnaði utanvegar við Norðausturveg í Öxarfirði á ellefta tímanum í gærkvöldi eftir að lögreglumenn á Húsavík veittu bílnum eftirför. Lögreglumennirnir ætlaðu að athuga ástand ökumannsins en hann virti ekki stöðvunarmerki og jók þess í stað hraðann. Við tók eftirför þar sem bifreiðinni var ekið á allt að 170 kílómetrahraða en að lokum hafnaði bifreiðin utanvegar. Ökumaðurinn, karlmaður á tvítugsaldri, slasaðist ekki en hann reyndist talsvert ölvaður. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum. 8.11.2009 09:06
Reyndi að smygla lyfjum í fangelsið á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók í gærkvöldi stúlku á tvítugsaldri þegar hún reyndi að kasta pakka inn í fangelsisgarðinn á Akureyri. Pakkinn reyndist innihalda lyfseðilskyld lyf, sprautur og nálar. Fram kemur í tilkynningu að stúlkan var handtekin á Akureyri fyrir viku síðan vegna gruns um fíkniefnamisferli. 8.11.2009 08:58
Heilbrigðisráðherrann bólusettur í beinni Bólusetning gegn svínaflensu hófst í Saudi-Arabíu í gær þegar heilbrigðisráðherra landsins var bólusettur fyrstur landsmanna. Atburðinum var sjónvarpað um land allt en með sjónvarpsútsendingunni vildu yfirvöld draga úr ótta almennings við bólusetningu gegn flensunni. Auk þess er það vilji ráðamenn að reyna að koma í veg fyrir að fjöldi pílagríma sem eru á leið til lSaudi-Arabíu smitist af svínaflensu eða dreifi henni séu þeir sýktir. Pílagrílmarnir verða að öllum líkindum sprautaðir þegar þeir koma til landsins. 8.11.2009 06:45
Pelosi: Fulltrúadeildin mun samþykkja umbótafrumvarpið Demókratinn Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fullyrðir að fulltrúadeildin muni samþykkja umdeilt frumvarp Bandaríkjaforseta um umbætur í heilbrigðiskerfinu. Að auki lýsti repúblíkaninn Mike Pence því yfir í gær að barátta repúblíkana væri töpuð og að frumvarpið yrði að lögum. Um leið og hann gaf út þessa yfirlýsingu fordæmdi hann frumvarpið og vinnubrögð demókrata. 8.11.2009 04:30
Tvöfaldur í næstu viku Enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni og verður fyrsti vinningur því tvöfaldur í næstu viku. Einn var með fjórar réttar tölur auk bónustölunnar og hlýtur hann rúmlega 200 þúsund í vinning. Miðinn var seldur í Ak-inn við Hörgárbraut á Akureyri. 7.11.2009 20:06
Vill skipta á húsinu sínu fyrir bújörð Fjögurra manna fjölskylda úr Hafnafirði er búinn að setja húsið sitt á sölu og vill skipta því fyrir bújörð. Gamall draumur að gerast bóndi segir heimilisfaðirinn sem er þreyttur á hraðanum í borginni. 7.11.2009 18:58
Fjöldi ótryggðra ökutækja hefur tvöfaldast Fjöldi ótryggðra ökutækja í umferðinni hefur nærri tvöfaldast á undanförnum fjórum árum. Vanskil vegna bílatrygginga jukust verulega í kringum bankahrunið. 7.11.2009 18:52
Utanríkisráðuneytið styður umsókn Ingibjargar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra, er meðal umsækjenda um starf mansalsfulltrúa ÖSE, öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Utanríkisráðuneytið styður umsókn Ingibjargar og hefur beitt sér fyrir hennar hönd, að sögn Urðar Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 7.11.2009 18:10
Slökkvilið kallað út vegna reyks í Kópavogi Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning á sjötta tímanum í dag um að reykur kæmi út um glugga í fjölbýlishúsi við Álfatún í Kópavogi. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að um minniháttar mál var að ræða. Reykurinn reyndist koma frá potti eldavél. 7.11.2009 17:42
Höskuldur biðst ekki afsökunar Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að biðja Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra, afsökunar vegna orða sem hann lét falla á þingfundi í vikunni. Eðlilegra væri að Þórunn bæði sig afsökunar. 7.11.2009 17:15
Góð kjörsókn á Seltjarnarnesi Fyrsta prófkjörið vegna sveitarstjórnarkosninganna í maí á næsta ári fer fram í dag, en það eru sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi sem vilja í efstu sæti framboðslista síns. 7.11.2009 17:02
Brown vill nýjan skatt til auka ábyrgð bankanna Forsætisráðherra Bretlands vill skoða hvort skattleggja eigi sérstaklega millifærslur fjármálafyrirtækja til að koma í veg fyrir aðra krísu í fjármálaheiminum. 7.11.2009 16:33
Uppsagnir og strætisvagnar seldir verði farið í útboð „Það er ekki hægt að afgreiða svona tillögur til frekari vinnslu og um leið segja engar kollsteypur fyrirhugaðar," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, sem gefur lítið fyrir yfirlýsingar stjórnarformanns Strætós bs. um tillögur sem fela sér að rekstur á öllum strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verði boðinn út til einkaaðila. Dagur segir að verði farið í útboð þýði það að strætisvagnarnir verði seldir og auk þess verði öllum vagnstjórum sagt upp. 7.11.2009 16:24
Fimm þúsund kassar sendir til Úkraínu Það eru síðustu forvöð hjá fólki sem vill senda börnum í Úkraínu jól í skókassa að setja eitthvað fallegt í kassa og koma honum til KFUM og K. Verkefninu lýkur í dag og nú um hádegi voru þegar komnir á þriðja þúsund kassa í hús KFUM og KFUK á Íslandi, Holtavegi 28. 7.11.2009 15:13
Brúarsmíði yfir Hvítá Uppundir 150 manns unnu í gærdag og fram á kvöld að einhverju viðamesta steypuverkefni sem um getur hérlendis, að steypa nýju Hvítárbrúna við Flúðir í Árnessýslu. 32 steypubílar eru í stöðugum ferðum fram á morgundaginn, bæði frá Selfossi og úr Reykjavík. Fjallað var um framkvæmdina í fréttum Stöðvar 2 í gær. Myndirnar sem fylgja þessari frétt tók Þórir Tryggvason flugmaður um tíuleytið í morgun. 7.11.2009 15:05
Ísraelar áhyggjufullir vegna yfirlýsinga Abbas Háttsettir embættismenn í Ísrael eru áhyggjufullir vegna nýlegra yfirlýsinga Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, um að bjóða sig ekki fram til endurkjörs í forsetakosningunum sem haldnar verða í janúar næstkomandi. Þeir telja að hugsanlegt brotthvarf Abbas muni koma til með að torvelda allar friðarviðræður á svæðinu. 7.11.2009 14:45
Vilja að stjórn KSÍ segi af sér vegna heimsóknar á strípibúllu Femínistafélag Íslands fordæmir framferði fjármálastjóra Knattspyrnufélags Íslands og viðbrögð sambandsins við næturheimsókn fjármálastjórans á nektarstað í Sviss. Félagið krefst þess að stjórnin segi af sér og fjármálastjóranum verði vikið úr starfi hið fyrsta. 7.11.2009 14:03
Stendur ekki til að umbylta rekstri Strætós Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætós bs, segir að ekki standi til að ráðast í róttækar breytingar á rekstri byggðarsamlagsins. Hún segir ýmislegt jákvætt í nýlegum tillögum sem ráðgjafarfyrirtæki vann að beiðni stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. 7.11.2009 14:00
Mikill stuðningur við mögulega ESB aðild Íslands „Allar vísbendingar eru í þá átt að innan Evrópusambandsins sé mikill stuðningur við mögulega aðild okkar,“ segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið sem skipuð var í vikunni. Rætt er við Stefán í Fréttablaðinu í dag. 7.11.2009 13:15
Keflavíkurgangan er markaðstilraun Grímur Atlason, sveitarstjóri Dalabyggðar, gefur lítið fyrir fyrirhugaða göngu á milli Vogaafleggjara og Kúagerði sem kölluð hefur verið Keflavíkurganga og verður farin á á morgun. Sveitarstjórinn kallar gönguna Kúagerðisgönguna og segir hana markaðstilraun til að beina athygli frá raunverulegum vanda Suðurnesjamanna. 7.11.2009 13:05
Seld strax eftir fæðingu Eins árs gömul stúlka sem talið er að læknar hafi selt strax eftir fæðingu er nú komin aftur til móður sinnar í Mexíkóborg. Læknarnir sögðu móðurinni að stúlkan hefði látist skömmu eftir fæðingu. 7.11.2009 12:46
Óeðlilegt ef ekki er lánað á ákveðnum svæðum Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir óeðlilegt ef lífeyrissjóðir láni ekki út á hús í tilteknum landshlutum. Lífeyrissjóðir starfsmanna sveitarfélaga lánar ekki fé út á fasteignir á svæðum sem sjóðurinn skilgreinir illseljanleg. 7.11.2009 12:25