Breyta þarf lögum til að bæta réttarstöðu feðra 8. nóvember 2009 19:04 Úr myndasafni.
Formaður Félags um foreldrajafnfrétti segir að breyta þurfi lögum strax til að bæta réttarstöðu feðra þegar kemur að umgengni þeirra við börn sín eftir skilnað. Forsvarsmenn Félags um foreldrajafnrétti segja að jafnrétti kynjanna í forsjár- og umgengnismálum sé ekki viðurkennt á Íslandi, en feðradagurinn er í dag. Sýslumannsembættin skammti flestum skilnaðarbörnum 4 til 6 daga í mánuði með feðrum sínum. Þá telji sýslumannsembættin að skilnaðarbörn eigi ekki að dvelja hjá feðrum sínum á hátíðisdögum og feður séu látnir greiða meðlög algjörlega óháð samvistum við börn sín. „Það liggur fyrir að 92-95% barna eru með lögheimili hjá móður eftir skilnað. Það mikilvægasta í dag finnst mér að það þarf að koma á heimild dómara til að dæma sameiginlega forsjá," segir Heimir Hilmarsson. Heimir segir að rannsóknir sýni að foreldrar vilji breytingar á löggjöf í átt til foreldrajafnréttis. Félag um foreldrajafnrétti vill að umgengnismál verði hluti af dómskerfinu. Þá vill félagið að dómarar fái heimild til að dæma umgengni í allt að sjö daga af fjórtán. Félagið vill jafnframt að tvöfalt lögheimili barns verði gert valkvætt. Heimir er sjálfur þriggja barna faðir, en einkasonur hans sem er átta ára gamall og jafnframt yngsta barnið, dvelst hjá móður sinni. Móðir drengsins fer með forsjá en Heimir nýtur umgengnisréttar við hann. Umgengnismál eru rekin fyrir sýslumönnum, en það er eitt af því sem Heimir og félagar hans vilja breyta. „Sýslumaðurinn hefur engin tæki til að kanna aðstæður. Hann kannar ekki viðhorf barnanna og kannar yfir höfuð ekki aðstæður hjá foreldrum," segir Heimir.
Tengdar fréttir Vilja jafnan rétt til að umgangast börnin sín Félag um foreldrajafnrétti skorar á ríkisstjórn Íslands að taka á jafnrétti foreldra til að umgangast börnin sín en talið er að um 20.000 skilnaðarbörn séu á Íslandi. 8. nóvember 2009 09:50 Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Erlent Fleiri fréttir Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Sjá meira
Vilja jafnan rétt til að umgangast börnin sín Félag um foreldrajafnrétti skorar á ríkisstjórn Íslands að taka á jafnrétti foreldra til að umgangast börnin sín en talið er að um 20.000 skilnaðarbörn séu á Íslandi. 8. nóvember 2009 09:50