Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herinn kallaður út vegna flóða í Bretlandi Ellefu manna er saknað eftir gífurleg flóð í Bretlandi. Herinn hefur verið kallaður út til þess að veita aðstoð á flóðasvæðunum. 20.11.2009 10:10
Byssumanninum hugsanlega sleppt í dag Gæsluvarðhald yfir manninum sem hleypti fimm haglabyssuskotum á útidyrahurð íbúðahúss í Seljahverfi um síðustu helgi rennur út í dag. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort að óskað verði eftir því að maðurinn verði áfram í varðhaldi, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ákvörðun um það verður tekin síðar í dag. 20.11.2009 10:00
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent Íslenskir fjallaleiðsögumenn hlutu í gær umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir árið 2009. Þetta er í 15. skiptið sem verðlaunin eru veitt en Ferðamálastofa veitir árlega umhverfisverðlaun því fyrirtæki eða stofnun sem best þykir hafa staðið sig í umhverfismálum það árið. Að þessu sinni fengu 27 aðilar tilnefningu til verðlaunanna. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, afhenti verðlaunin. 20.11.2009 09:38
BHM: Stjórnvöld brjóta líklegast lög Bandalag háskólamanna (BHM) telur að ákvarðanir stjórnvalda um að skerða kjör félagsmanna aðildarfélaga bandalagsins, bæði þær sem til framkvæmdar eru komnar og þær sem fyrirhugaðar eru, grafa undan forsendum kjarasamninga stéttarfélaga við opinbera aðila og skapa aðstæður á vinnumarkaði sem erfitt er að sjá hvernig unnt verður að komast frá með friði. BHM telur ástæðu til að efast um að aðgerðir stjórnvalda séu í samræmi við gildandi réttarreglur og er reiðubúið að láta reyna á lögmæti þeirra ef á þarf að halda, að fram kemur í tilkynningu. 20.11.2009 09:29
Bíl prestsins í Keflavík stolið Lögreglan á Suðurnesjum leitar að bifreiðinni AE-976 sem er dökkgrá Volvo S60. Þeirri bifreið var stolið í Keflavík í gærkvöldi en hún mun vera í eigu sóknarprestsins í bænum. Þeir sem sjá til bílsins eru beðnir um að gera lögreglu viðvart. 20.11.2009 08:18
Þorskurinn í góðum málum 2008 árgangur þorks við Íslandsstrendur er sá sterkasti sem mælst hefur frá upphafi stofnmælinga að hausti en þær hófust 1996. Nýyfirstaðið haustrall Hafró leiddi þetta í ljós. Í frétt um málið á heimasíðu Hafró segir að þetta bendi til að árgangurinn gæti verið um eða yfir langtímameðaltali frá 1955. 20.11.2009 08:15
Austantjaldskaggarnir seljast sem heitar lummur Safnarar keppast um að komast yfir gamlar austantjaldsbifreiðar á borð við Trabant, Lödu og Skóda. 20.11.2009 08:08
Dönsk hegningarlög brotin nánast í heild sinni Maður um þrítugt gekk berserksgang í danska bænum Horsens á Austur-Jótlandi í gær. Hann byrjaði á því að heimta peninga af manni og lemja hann svo með kúbeini þegar hann neitaði. 20.11.2009 08:05
Siglt með slasaðan sjómann til hafnar Frystitogarinn Hrafn Sigurbjörnsson frá Grindavík kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi með slasaðan sjómann. Skipið hafði fengið á sig brotsjó og einn skipverjanna féll við það og meiddist á baki. Því var ákveðið að sigla til Vestmannaeyja og færa manninn undir læknishendur og taka nýjan skipverja um borð. 20.11.2009 07:43
Dularfullt leynifangelsi í litháískum reiðskóla Bandaríska leyniþjónustan CIA rak leynilegt fangelsi fyrir liðsmenn al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í gömlum reiðskóla í Litháen. 20.11.2009 07:17
Oprah lýkur keppni Spjallþáttajöfurinn Oprah Winfrey lýkur ferli sínum í þættinum The Oprah Winfrey Show 9. september 2011 eftir 25 ára farsælt starf en Oprah er talin hafa einna mest áhrif allra bandarískra fjölmiðlamanna á tíðarandann þar vestra og setti Forbes-tímaritið hana í 45. sætið yfir valdamesta fólk heimsins árið 2009. 20.11.2009 07:10
Gunnar Birgisson ætlar aftur í framboð Gunnar Birgisson fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðismanna í bænum fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Þetta staðfestir hann við Morgunblaðið í dag. 20.11.2009 07:07
Watergate-málið rannsakað á ný Rannsókn Watergate-málsins, sem rekur rætur sínar til ársins 1972, hefur verið tekin upp á nýjan leik. Ætlunin er að komast til botns í því hve mikið Richard Nixon, þáverandi Bandaríkjaforseti, vissi í raun um innbrotið í Watergate-bygginguna í Washington, höfuðstöðvar Demókrataflokksins. 20.11.2009 07:04
Tveir í haldi vegna líkamsárásar í Keflavík Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo menn í Keflavík í gærkvöldi vegna líkamsárásar. Mennirnir höfðu ráðist á þann þriðja inni á skemmtistað í bænum og veitt honum nokkra áverka. Maðurinn mun vera með bólgur í andliti og brotna tönn. 20.11.2009 06:55
Flestum foreldrum finnst unglingadrykkja sjálfsögð Rannsóknir sýna fram á að stór hluti foreldra unglinga í framhaldsskólum lítur svo á að áfengisdrykkja þeirra sé í góðu lagi. 20.11.2009 06:00
Kynferðisbrotafangar stelast ítrekað á netið Fangar á Litla-Hrauni sem ekki mega vera nettengdir í klefum sínum hafa sumir hverjir stundað netviðskipti eftir að hafa látið smygla inn til sín svokölluðum netpungum. 20.11.2009 05:45
Býst síður við að kæra útboðið Framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Fonsa segir það seinlegt og dýrt að kæra útboð borgarinnar á uppbyggingu á brunareitnum á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Endurbyggingu yrði líklega lokið áður en dómur félli. 20.11.2009 05:30
Gáfu skýrslu í rúma fjóra tíma Útlendingastofnun fékk hælisleitendurna Paul og Rosemary Ramses í skýrslutöku í síðustu viku, vegna umsóknar þeirra um hæli hér á landi. 20.11.2009 05:30
Orkuöflun fyrir álver gæti tekið tugi ára Uppbygging jarðhitasvæða til orkuöflunar hefur tekið áratugi og ljóst er að slík svæði á Reykjanesi verða ekki tilbúin í bráð. Enn á eftir að rannsaka svæðin og óljóst er hve mikla orku þau gefa eða hvenær hún verður nýtanleg. 20.11.2009 05:15
Kostnaður við rafmagn á bíla tíundi hluti bensínkostnaðar Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkur, segir að ef helmingur bílaflota Reykvíkinga notaði rafmagn í stað jarðefnaeldsneytis myndi allt að 5,4 milljörðum króna sparast árlega. 20.11.2009 04:45
Samkomulag tókst á síðustu stundu Herman Van Rompuy er lítt þekktur utan heimalands síns. Hann er hæglátur hagfræðingur, sem hefur gaman af japönskum hækum, en fær núna það hlutverk að vera eins konar andlit Evrópusambandsins. 20.11.2009 04:30
Vill draga úr stofnanavæðingunni Ísland á því sem næst heimsmet í að vista fólk á stofnunum og því þarf að breyta. Þetta segir í tilkynningu frá ViVe-verkefninu svokallaða um virkari velferð, sem skilaði niðurstöðum og tillögum að úrbótum til heilbrigðis- og félagsmálaráðherra í gær. 20.11.2009 04:30
Dansari fræðir um lesblindu Í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku hélt dansarinn Peter Anderson hjá Íslenska dansflokknum fyrirlestur um lesblindu í stuðningsáfanga fyrir lesblinda nemendur í Fjölbrautaskólanum í Ármúla á miðvikudag. 20.11.2009 04:15
Hannyrðafólk bíður spennt eftir nýjum prjónamynstrum „Við ætlum að prjóna saman barnavettlinga og gefa þá í söfnun Mæðrastyrksnefndar,“ segir Gerður Eðvarðsdóttir, sem á og rekur hannyrða- og kaffihúsið Heitt á prjónunum á Ísafirði. Hún reiknar með um fimmtán manns, allt frá átta ára til áttræðs, í prjónakaffi sem haldið verður í hannyrðaversluninni í dag í tilefni af útgáfu nýja prjónablaðsins Björk. 20.11.2009 04:15
Fiskeldið gefur þrjá milljarða Framleiðsluverðmæti íslensks fiskeldis er áætlað um þrír milljarðar á þessu ári en hefur verið á bilinu 1,7 til 3,3 milljarðar á undanförnum fimm árum. Í nýrri skýrslu Landssamtaka fiskeldisstöðva (LF) um stöðu fiskeldis hér á landi er því spáð að framleiðslan muni tvöfaldast til ársins 2015 og verði þá um tíu þúsund tonn. 20.11.2009 04:00
Breytingum á skattkerfi víða mótmælt Hótel- og veitingamenn mótmæla harðlega misrétti sem þeir segja felast í tillögu ríkisstjórnarinnar um tvöfalt kerfi virðisaukaskatts á matarsölu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á árlegum haustfundi þeirra á Hótel Loftleiðum í gær. 20.11.2009 04:00
Hvatning til að kjósa konur virkar vel í finnskum persónukosningum Það hefur gefið góða raun að hvetja fólk til að kjósa konur í persónukosningum í Finnlandi. Segja má að á þjóðþingi þar hafi kynjajafnvægi verið náð, eins og á Íslandi og í Svíþjóð. Svo segir Norræna kvenna- og kynjarannsóknastofnunin, sem nýverið kannaði „kyn og völd í stjórnmálum og atvinnulífi“, að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar. 20.11.2009 03:45
KSÍ biðst afsökunar á málinu Kampavíns- og nektarstaðarmál Knattspyrnusambands Íslands. 20.11.2009 00:01
Efast um að KSÍ geti samið siðareglur Guðný Gústafsdóttir, talskona femínista, segir afgreiðslu Knattspyrnusambands Íslands í máli fjármálastjóra sambandsins í kampavínsmálinu hlægilega. Hún efast um að þeir sem afgreiði málið með þessum hætti geti samið siðareglur fyrir sambandið, eins og stjórnin hyggst gera. Rætt var við Guðnýju í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins. 19.11.2009 22:11
Forsætisráðherra Belgíu verður fyrsti forseti ESB Leiðtogar 27 Evrópusambandsríkja hafa komið sér saman um að Herman van Rompuy, forsætisráðherra Belgíu, verði fyrsti forseti Evrópusambandsins. Þá hefur barónessan Catherine Ashton verið útnefnd yfirmaður utanríkismála hjá Evrópusambandinu og mun hún taka við embættinu af Javier Solana. 19.11.2009 20:15
Nýr formaður Alþjóða Rauða krossins Tadateru Konoé, formaður Rauða krossins í Japan, var kjörinn formaður Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans á aðalfundi landsfélaga sem nú stendur yfir í Naíróbí í Kenýa. Konoé mun gegna formannsembættinu næstu fjögur ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða kross Íslands. 19.11.2009 22:00
Stjórn KSÍ biðst afsökunar á kampavínsmálinu Stjórn KSí hyggst ekki aðhafast frekar í máli fjármálastjóra sambandsins en hann heimsótti strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. Fjármálastjórnin mun því starfa áfram hjá sambandinu. Stjórnin harmar tildrög málsins og biður þjóðina, knattspyrnuhreyfinguna og aðildarfélög sín afsökunar á því. 19.11.2009 19:03
Auglýst eftir skólameistara við nýjan framhaldsskóla Menntamálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti skólameistara við framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Stefnt er að því að byggja yfir skólann í Ólafsfirði fyrir allt að 120 nemendur. Samkomulag um skólann var undirritað í mars sl. 19.11.2009 21:47
Birgir: Leið ríkisstjórnarinnar mun dýpka kreppuna „Hækkun skatta á heimilin og fyrirtækin í landinu dregur úr getu þeirra til að takast á við stöðu, sem þegar er mjög erfið. Stór hluti íslenskra fyrirtækja berst í bökkum og heimilin berjast við að mæta stóraukinni skuldabyrði á sama tíma og tekjur fara lækkandi. Við þessar aðstæður geta skattahækkanir ekki haft aðrar afleiðingar en að dýpka kreppuna,“ segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í pistli sem birtist á vefsíðunni AMX.is 19.11.2009 20:02
Þvinguð á námskeið Velferðarráð Reykjavíkur vill að gerð verði sú breyting á lögum að þeir sem fá framfærslustyrk frá borginni verði skikkaðir til að mæta á námskeið. Að öðrum kosti fái fólk ekki bætur. 19.11.2009 19:30
Sorpbrennslan horfir til útlanda eftir verkefnum Til greina kemur að selja Sorpeyðingarstöð Suðurnesja til Þjóðverja og Bandaríkjamanna sem vilja brenna þar úrgangsolíu úr skipum. Einu verkefnunum sem hefur fjölgað að undanförnu er brennsla á eiturlyfjum. 19.11.2009 19:01
Skattbyrðinni dreift með sanngjörnum hætti Forseti Alþýðusambands Íslands hefur áhyggjur af áhrifum skattahækkana á kaupmátt og atvinnustig í landinu. Ríkisstjórninni hafi hins vegar tekist að dreifa skattbyrðinni með sanngjörnum hætti. 19.11.2009 18:54
Einsýnt að forsetinn staðfesti ekki Icesave Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd telja einsýnt að forseti Íslands muni hafna því að staðfesta Icesave frumvarpið enda séu fyrirvarar Alþingis frá í sumar sem forsetinn taldi mikilvæga, að engu orðnir. Þá muni samkomulagið fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. 19.11.2009 18:48
Klaga til samkeppnisyfirvalda Veitingamenn og ferðaþjónustuaðilar telja að boðaðar skattahækkanir dragi úr atvinnuuppbyggingu og nýsköpun í greininni. Þeir ætla að leita til samkeppnisyfirvalda vegna hækkunar á virðisaukaskatti. 19.11.2009 18:33
Flís úr krossi Krists sýnd í Páfagarði Flísin úr krossi Krists er felld inn í gullkross sem Jústiníus annar keisari gaf íbúum Rómar á sjöttu öld. Hann hefur verið varðveittur í Páfagarði síðastliðin 1500 ár. 19.11.2009 18:30
Meiðslin ekki talin alvarleg Ekið var á barn á mótum Hringbrautar og Bræðraborgarstígs í Reykjavík síðdegis. Barnið var að hjóla yfir götu en tildrög slyssins eru óþekkt að öðru leyti. Barnið var flutt á brott í sjúkrabíl. Eftir því sem næst verður komist slasaðist það ekki alvarlega. Hringbraut var lokuð um tíma en opnað hefur verið fyrir umferð á ný. 19.11.2009 18:27
Stjórn KSÍ fundar um kampavínsmálið Stjórn Knattspyrnusambands Íslands situr á fundi og ræðir mál Pálma Jónssonar, fjármálastjóra sambandsins. Eins og kunnugt er heimsótti hann strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. 19.11.2009 17:28
Hæstiréttur ómerkir slysadóm Hæstiréttur Íslands ómerkti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og sendir aftur í hérað. Um er að ræða sýknudóm yfir konu sem var að aka vestur Breiðholtsbrautarinnar í febrúar 2007. 19.11.2009 16:57
Ekið á barn á reiðhjóli Ekið var á barn á reiðhjóli við Hringbraut, skammt frá Bræðraborgarstíg, klukkan 25 mínútur í fjögur í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvort barnið hafi slasast alvarlega. En Vísir mun greina nánar frá slysinu þegar frekari upplýsingar hafa borist. 19.11.2009 16:52
Klessti á og sló lögregluþjón Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm yfir karlmanni sem sló lögregluþjón. Maðurinn sló lögregluþjóninn á Bústaðavegi árið 2007. 19.11.2009 16:47