Fiskeldið gefur þrjá milljarða 20. nóvember 2009 04:00 Bleikjueldi. Íslenskir eldismenn hafa náð góðum árangri í bleikjueldi. Þeir eiga meirihlutann af fimm þúsund tonna heimsmarkaði. mynd/guðbergur rúnarsson
Framleiðsluverðmæti íslensks fiskeldis er áætlað um þrír milljarðar á þessu ári en hefur verið á bilinu 1,7 til 3,3 milljarðar á undanförnum fimm árum. Í nýrri skýrslu Landssamtaka fiskeldisstöðva (LF) um stöðu fiskeldis hér á landi er því spáð að framleiðslan muni tvöfaldast til ársins 2015 og verði þá um tíu þúsund tonn. Framleiðslan hefur dregist saman á síðustu árum og er skýringarinnar að leita í samdrætti laxeldis. Á þessu ári segja áætlanir að fimm þúsund tonn verði framleidd, en það er sama magn og í fyrra. Bleikjueldið gefur mest af sér, um þrjú þúsund tonn, en í eldi bleikju standa Íslendingar fremstir og ráða heimsmarkaðnum að stórum hluta. Vaxtarspá LF tekur aðeins tillit til áforma þeirra fyrirtækja sem nú þegar eru í rekstri. Mikil óvissa er því um spána þar sem ákvörðun eins fyrirtækis um að hefja umfangsmikið eldi getur aukið framleiðsluna umtalsvert á þeim tíma sem horft er til. Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri LF, segir að rekstrarskilyrði fiskeldis hér á landi hafi batnað að undanförnu með fallandi gengi. „Gengið var eldinu afar óhagstætt árin 2006 og 2007 en því er öfugt farið nú. Gengið gerir það að verkum að rekstrarskilyrðin eru ágæt. Verðið hefur líka haldist gott, til dæmis á bleikjunni.“ Á móti hagstæðu gengi krónunnar koma hugmyndir stjórnvalda um orkuskatt. Það snertir strandeldi sérstaklega þar sem tíu til fimmtán prósent rekstrarkostnaðar eru orkukaup. Eldismenn hafa lengi reynt að fá orkuverð lækkað, en eins og hjá fleiri greinum hefur það verið án árangurs. Ársverk í fiskeldi á Íslandi eru um 150 og til viðbótar eru afleidd störf hjá þjónustufyrirtækjum og stofnunum. Fjölmörg rannsóknar- og þróunarverkefni hafa verið sett á koppinn, flest fyrir tilstilli AVS rannsóknasjóðs sjávarútvegsráðuneytisins. Sameiginleg viðfangsefni fyrir allar eldistegundir, lax, bleikju, þorsk og flatfisktegundir, er efling á sjúkdómaeftirliti og bætt aðstaða til sjúkdómarannsókna. Einnig upplýsingaöflun til markaðsstarfs. Guðbergur telur að fiskeldi á Íslandi eigi framtíð fyrir sér en sníða verði stakk eftir vexti. Hann lítur til Færeyja sem fyrirmyndar þar sem framleiðslan er um fjörutíu þúsund tonn á ári. - shá
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira