Breytingum á skattkerfi víða mótmælt 20. nóvember 2009 04:00 Forvígismenn ýmissa samtaka verslunar og viðskipta sendu frá sér yfirlýsingar í gær þar sem skattaáætlunum stjórnvalda er mótmælt. Fréttablaðið/Anton
Hótel- og veitingamenn mótmæla harðlega misrétti sem þeir segja felast í tillögu ríkisstjórnarinnar um tvöfalt kerfi virðisaukaskatts á matarsölu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á árlegum haustfundi þeirra á Hótel Loftleiðum í gær. Í ályktun samtakanna er sérstaklega bent á sölu á tilbúnum mat sem ekki er neytt á staðnum og hefur því enga þjónustu í för með sér. „Tvöfalt kerfi virðisaukaskatts leiðir til þess að það fer eftir starfsleyfi söluaðilans hversu háan virðisaukaskatt viðskiptavinurinn greiðir fyrir nákvæmlega sama mat. Ef veitingaleyfi er á staðnum greiðir viðskiptavinurinn 14 prósenta virðisaukaskatt en ef sami tilbúni maturinn er keyptur í verslun eða sjoppu þá er greiddur sjö prósenta virðisaukaskattur.“ Þá skora Samtök ferðaþjónustunnar á stjórnvöld að draga tillöguna til baka enda leiði „flókið og óskiljanlegt“ skattkerfi til aukinnar svartrar atvinnustarfsemi. Samtökin segjast munu leita til samkeppnisyfirvalda vegna málsins. Þá kemur fram í tilkynningu sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér að ferðaþjónustufyrirtæki hafi fyrir löngu samið um verð vegna næsta árs og því sé ótækt að hækka skatta á þau fyrirvaralaust. Samtökin benda sömuleiðis á að kolefnisskattar og hækkun bensín- og olíugjalds muni leiða til þriggja til fjögurra prósenta hækkunar á eldsneytisverði sem hafi áhrif á flugrekstur, rekstur hópbifreiða, flestar tegundir afþreyingar og bílaleigur. „Gera má ráð fyrir að þetta þýði um það bil 300 milljónir í aukaálögur á íslensku flugfélögin.“ Í áliti sem Viðskiptaráð Íslands sendi frá sér í gær segir hins vegar að í kynningu stjórnvalda á aðgerðum skattamálum felist jákvæð tíðindi í þeirri staðreynd að heildaraukning skattheimtu sé minni en upphaflega hafi verið gert ráð fyrir. „Samanlagðar tekjur af almennum tekjuskatti einstaklinga og fjármagnstekjur eru þannig áætlaðar 117 milljarðar króna í stað upphaflegrar áætlunar um 143 milljarða króna skattheimtu,“ segir þar og um leið er bent á að áætlanir um auðlinda- og orkuskatt hafi líka verið endurskoðaðar til lækkunar. „Þrátt fyrir þetta er fyrirliggjandi endurskoðun skattkerfisins til mikils vansa og ljóst er að verulega mun draga úr samkeppnishæfni þess og skilvirkni,“ segir þó einnig í álitinu. „Í kjölfar efnahagsþrenginga líkt og nú standa yfir er veruleg hætta á varanlegum fólks- og fjármagnsflótta og breytingar af þessu tagi eru til þess fallnar að ýta frekar undir slíka þróun.“olikr@frettabladid.is
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Sjá meira