Fleiri fréttir

Fá bóluefni send í pósti

Heilbrigðisyfirvöld í Noregi hafa varað fólk við því að fá sent til sín inflúensubóluefni í pósti frá öðrum löndum. Bóluefnið Pandemrix hefur verið notað gegn svínaflensunni en einhverjir hafa brugðið á það ráð að útvega sér annað lyf í pósti.

Kanna jarðhita á grískum eyjum

Verkfræðistofan Mannvit vinnur nú að kortlagningu jarðhitasvæðis á grísku eyjunum Milos og Komolos fyrir gríska náma­fyrirtækið S&B minerals. Verkefnið hefur falist í hagkvæmniathugun og viðnámsmælingum.

Saksóknari skoðar 49 mál

„Þessir fletir geta alltaf komið upp í rannsóknum á efnahagsbrotum. Við gefum þessu gaum ásamt öðru,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Í netútgáfu breska dagblaðsins Times sagði í gær að þeir sem rannsaki hrun Glitnis, Kaupþings og Landsbankans skoði hvort ásakanir um peningaþvætti eigi við rök að styðjast auk óvenjulegra lánveitinga til aðila þeim tengdum.

Mesti viðbúnaður í sögunni

Viðbúnaðurinn við svínaflensunni er sá mesti í Íslandssögunni að mati Haraldar Briem sóttvarnalæknis. „Ég hugsa að það hafi aldrei verið viðbúnaður í stíl við þetta nokkurn tímann á Íslandi. Við erum búin að undirbúa okkur nokkuð stíft í fjögur ár. Þá höfðum við í huga þessa

Þrjú hundruð verk mikilvæg þjóðararfi

Um 300 listaverk í eigu Íslandsbanka og Nýja Kaupþings eru talin mikilvæg þjóðararfi og eigi því ekki að fara úr ríkiseigu. Þetta kemur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, fram í mati sem unnið hefur verið á listaverkasöfnunum. Viðræður hafa verið í gangi á milli ríkisvaldsins og bankastjórnanna um verkin og er búist við að málið klárist í næstu viku.

Þrjár milljónir fyrir eina stöng í Alta

Verndarsjóður villtra laxastofna, NASF, undir stjórn Orra Vigfússonar, fékk í sinn hlut allt að fimmtán milljónir króna í árlegu veiðileyfauppboði sínu í Ósló. Meðal annars fengust þrjár milljónir fyrir eina stöng í tvo daga á frægasta veiðisvæði árinnar Alta í Noregi. Áin er nálægt bænum Alta sem er í Finnmörku í Norður-Noregi. Veiðivefurinn vötn&veiði segir frá þessu.

Félagsmálaráðherra bregst við gagnrýni á skuldavandafrumvarp

„Fjarstæða er að halda því fram að þeir sem veðjuðu á fall krónunnar fái skuldir sínar felldar niður en hirði gróðann samkvæmt nýrri löggjöf um lausn á skuldvanda einstaklinga, heimila og fyrirtækja,“ segir í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Sértæk skuldaaðlögun byggist á því að þeir sem eigi í miklum greiðsluerfiðleikum greiði eins stóran hlut af skuldum sínum og greiðslugeta þeirra leyfi og að eignir gangi jafnframt upp í skuldir.

Aðallífvörður Jóhannesar Páls páfa látinn

Camillo Cibin, yfirmaður lífvarðarsveitar Jóhannesar Páls páfa II, lést í morgun, 83 ára að aldri. Camillo Cibin var meðal annars viðstaddur þegar reynt var að ráða páfann af dögum árið 1981. Cibin lét af störfum árið 2006 eftir 58 ára störf í öryggisvarðarsveit Vatíkansins. Greint var frá andláti Cibin í Vatican Radio í morgun en ekki hefur verið greint frá dánarorsök.

Þrautarlending hafin í Þjóðmenningarhúsinu

Tugir verkalýðsforkólfa og fulltrúar atvinnurekenda mættu í Þjóðmenningarhúsið rétt fyrir klukkan þrjú þar sem þeir sitja á fundi með ríkisstjórninni og reyna til þrautar að bjarga stöðugleikasáttmálanum. Búist er við að fundurinn standi í um tvær klukkustundir.

Flosi Ólafsson látinn

Flosi Ólafsson leikari lést á sjúkrahúsi í gær. Flosi hefur dvalið á sjúkrahúsi undanfarna daga en hann slasaðist í alvarlegu bílslysi í vikunni.

Hálfur Dettifossvegur verri en enginn

Ferðaþjónustuaðilar á norðausturhorni landsins óttast hrun, þegar bara hálfur Dettifossvegur verður opnaður meðfram Jökulsárgljúfrum næsta sumar, og segja að ferðamennirnir muni sleppa Ásbyrgi og byggðunum við norðurströndina.

Fleiri síldartorfur finnast á sundum við Stykkishólm

Rannsóknaskipið Dröfn hefur staðfest að miklar síldartorfur eru nú við innanverðan Breiðafjörð á sundunum við Stykkishólm. Tvö síldveiðiskip eru á leið þangað. Menn bíða hins vegar milli vonar og ótta niðurstaðna um hversu alvarleg sýking er í síldinni.

Telur að forsetinn hafi eitthvað að fela

„Það er eitthvað segir manni að það sé eitthvað í þeim sem hann vill ekki að líti dagsins ljós," segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands að birta einungis hluta af þeim bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk frá honum.

Loftbelgjastöð á Egilsstöðum

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að veita byggingarleyfi fyrir loftbelgjastöð á Egilsstaðaflugvelli. Frá þessu er greint í vefritinu Austurglugganum. Flugstoðir sóttu um byggingarleyfi innan flugvallarins á Egilsstöðum fyrir aðstöðu háloftastöðvar fyrir veðurrannsóknaloftbelgi. Þaðan á að sleppa á sjálfvirkan hátt loftbelgjum með ýmsum mælitækjum til rannsókna á veðurfari í háloftunum yfir Íslandi.

Handteknir fyrir líkamsárás við Nasa

Tveir voru handteknir fyrir líkamsárás í nótt en þeir réðust á mann við skemmtistaðinn Nasa á Austurvelli. Sá sem fyrir árásinni varð missti meðvitund og var honum komið á slysadeild til aðhlynningar. Árásarmennirnir gistu fangageymslur yfir nóttina og bíða yfirheyrslu hjá lögreglu.

Bílstjórar óttaslegnir í Árósum

Århus Sporveje, sem er strætisvagnafyrirtæki í Árósum, á í mestu vandræðum með að fá strætisvagnabílstjóra til þess að keyra á tilteknu svæði í borginni. Ástæðan er sú að strætisvagnabílstjórar óttast óeirðir á svæðinu.

Kárahnjúkavinnubúðir verða hótel á Langanesi

Tafir á Helguvíkurframkvæmdum urðu til þess að vinnubúðir, sem áttu að fara þangað frá Kárahnjúkum, lentu í höndum hollenskrar konu, sem nú er að breyta þeim í íbúðahótel á Langanesi fyrir sextíu gesti.

Strembin varnarbarátta framundan hjá öryrkjum

Nýkjörinn formaður Öryrkjabandalags Íslands segir að framundan sé erfið og strembin varnarbarátta fyrir velferðarkerfinu. Hann segir að félagsmenn sínir séu áhyggjufullir yfir þeim mikla niðurskurði sem hefur verið boðaður.

Bóndinn sem hafnaði veginum fær 35 milljóna bætur

Bóndinn við Kópasker, sem hafnaði því að Hófaskarðsleið færi í gegnum land sitt, hefur fengið 35 milljónir króna í bætur frá Vegagerðinni. Nágrannar saka hann um einstrengingshátt en sjálfur neitar bóndinn að ræða málið. Íbúar á norðausturhorni landsins segja það hneyksli að ekki sé unnt að opna nær fullbúinn veg.

Telur að þingmeirihluti sé fyrir Icesave málinu

Björn V. Gíslason, þingmaður VG, gerir ráð fyrir að ríkisstjórnarflokkarnir geti klárað Icesave málið án stuðnings stjórnarandstöðunnar. „Mér heyrist það, á þeim sem hafa tekið til máls og tjáð sig í umræðunni, að þeir sem að höfðu efasemdir uppi um þetta í vor að þetta sé komið í þann búning sem ríkisstjórnarflokkarnir geti klárað þetta í," segir Björn Valur.

GSM símar geta verið hættulegir

Þeir sem nota GSM síma til langstíma eiga hættu á að fá krabbamein síðar á ævinni, samkvæmt langtímarannsókn sem breska blaðið Daily Express segir frá. Rannsóknin, sem verður birt síðar á þessu ári, bendir til þess að tengja megi mikla notkun farsíma við heilaæxli.

Forsetinn mærði Björgólf í bréfi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mærði Björgólf Thor Björgólfsson í bréfi sem hann sendi honum sumarið 2002 eftir ferð forsetans til Rússlands. Í bréfinu þakkar forsetinn Björgólfi, sem þá var ræðismaður Íslands í Rússlandi, fyrir þátttöku hans í undirbúningi og framkvæmd opinberrar heimsóknar forsetans til Rússlands.

Guðmundur Magnússon er nýr formaður ÖBÍ

Guðmundur Magnússon var kosinn formaður Öryrkjabandalags Íslands nú fyrir tæpri stundu. Guðmundur og Sigursteinn Másson sóttust tveir eftir formannsembættinu en atkvæði féllu þannig að Guðmundur fékk 43 atkvæði en Sigursteinn 30.

Nægar birgðir til af inflúensulyfjum

Nægar birgðir eru til að inflúensulyfjum til að bregðast við svokallarið svínaflensu, segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Embætti landlæknis beinir þeim tilmælum til lækna að þeir vísi fólki á þessi lyf, einkum þeim sem eru með undirliggjandi vandamál.

Sveitabæir á Héraði einangraðir

Sjö sveitabæir í Hjaltastaðaþinghá á Fljótsdalshéraði, þeirra á meðal kirkjustaðurinn Hjaltastaður, verða einangraðir um helgina vegna viðgerðar á fjörutíu metra langri brú yfir Selfljót. Brúnni var lokað á hádegi þegar sjö manna brúarvinnuflokkur undir stjórn Sveins Þórðarsonar hófst handa við að skipta um stálbita og brúargólf. Íbúum sveitabæjanna var tilkynnt um þessa lokun bréflega fyrir nokkrum dögum og þar miðað við að brúin yrði opnuð aftur síðdegis á morgun. Brúarvinnumennirnir segjast hins vegar ætla að vinna rösklega til að einangrunin verði sem styst fyrir fólkið og munu hugsanlega klára verkið í kvöld, að sögn Sveins flokksstjóra.

Niðurskurður hjá dómstólum gæti haft alvarlegar afleiðingar

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segir nauðsynlegt að fjölga dómurum, aðstoðarmönnum þeirra og öðru starfsfólki dómstóla. Verði fjárveitingar til dómstóla skornar niður eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 án þess að gerðar verði skipulags- og fjárhagsráðstafanir verði afleiðingarnar alvarlegar.

Vegagerðin stendur við áform um Vestfjarðaveg

Vegagerðin hyggst standa við fyrri áform um að þjóðvegurinn um sunnanverða Vestfirði verði lagður um Teigsskóg og þvert yfir Gufufjörð og Djúpafjörð. Vegamálastjóri segir að nýfallinn dómur Hæstaréttar komi ekki í veg fyrir þessa umdeildu vegarlagningu.

Bréf forsetans birt

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur birt á heimasíðu forsetaembættisins átta af þeim sautján bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk send. Segir á vefsíðu forsetans að þannig vilji hann koma til móts við óskir og umræður í samfélaginu. Þessi bréf séu til manna sem látið hafa af embætti auk tveggja annarra einstaklinga.

Síldin fundin

Íslenska sumargotssíldin er fundin. Síldveiðiskipið Sighvatur Bjarnason, sem er eitt fjögurra skipa í umfangsmikilli síldarleit á vegum Hafrannsóknarstofnunar, fann í gær miklar torfur á Breiðasundi skammt vestan Stykkishólms. Skipstjórinn, Jón Eyfjörð, segir að sér virðist að þarna sé talsvert af síld og telur hann útlitið bjart. Hafrannsóknaskipið Dröfn er einnig komið á Breiðafjörð til að kanna síldina en ekki kemur þó í ljós fyrr en eftir helgi hvort eitthvað af henni er sýkt. Annað leitarskip, Jóna Eðvalds, fann einnig síld undan suðausturlandi á Breiðamerkurdýpi og kastaði á hana og fékk 50 tonn. Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið en ef vel tekst til gæti síldarstofninn skilað nokkurra milljarða króna útflutningsverðmætum á næstu mánuðum.

Tekist á um formennsku í ÖBÍ

Tveir menn takast á um formannsembættið í Öryrkjabandalagi Íslands á aðalfundi sem hófst á Grand hóteli Reykjavík klukkan hálftíu í morgun. Þetta eru þeir Guðmundur Magnússon og Sigursteinn R. Másson.

Fólksbifreið stórskemmdist í eldi í Njarðvík

Fólksbifreið stórskemmdist þegar kveikt var í henni við íþróttahúsið við Njarðvíkurvelli um klukkan hálfsjö í morgun. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum var janframt farið inn í herbergi á íþróttahúsinu sjálfu og kveikt þar í. Það tókst giftusamlega að bjarga húsinu en áhöld sem notuð eru til íþróttaiðkunnar skemmdust eitthvað. Enginn hafði verið handtekinn klukkan níu í morgun.

Ráðist á mann við Landsbankann á Laugavegi

Ráðist var á mann fyrir framan Landsbankann á Laugavegi um klukkan korter yfir fjögur. Að sögn lögreglunnar var maðurinn að taka út úr hraðbanka þegar ráðist var á hann. Það blæddi úr nefi og bólgur sáust á vinstra eyra mannsins þannig að ákveðið var að aka honum á slysadeild til aðhlynningar. Þá var brotist inn í verslunina Súkkulaði og rósir á Hverfisgötu en ekki er vitað hverju var stolið þaðan.

Fréttablaðið höfðar til flestra

„Það er ánægjulegt að sjá að Fréttablaðið fellur vel í kramið hjá fólki. Stefnan hefur verið allt frá upphafi þess árið 2001 að Fréttablaðið yrði dagblað þjóðarinnar. Það takmark náðist mjög fljótt og það er ánægjulegt að blað sem ekki er orðið tíu ára gamalt skuli vera búið að ná tryggri stöðu. Við getum ekki annað en verið þakklát fyrir það,“ segir Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins.

Jón Ólafsson hafði betur gegn Bretum

„Ég fagna þessari niðurstöðu og vona að við Hannes finnum sátt og flöt í þessu máli sem verður okkur báðum til sóma,“ segir athafnamaðurinn Jón Ólafsson, sem í fyrradag hafði betur gegn breska ríkinu í meiðyrðamáli gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni.

Einblína á Helguvík og líta framhjá öðru

„Við höfum alls ekki dregið lappirnar í atvinnuuppbyggingunni. Aðilar að stöðugleikasáttmálanum hafa hins vegar einblínt á Helguvík og halda að hún sé alfa og omega í allri atvinnuuppbyggingu.“

Sprenging í smygli á kannabisfræjum

Tollgæslan hefur tekið á annað þúsund kannabisfræja sem reynt var að smygla til landsins á fyrstu níu mánuðum ársins. Segja má að um sprengingu sé að ræða, því allt árið í fyrra voru tekin 390 stykki.

Býst við 100 prósenta heimtum

Markaðurinn væntir þess að 100 prósent fáist upp í forgangskröfur í Landsbankann. Þetta kemur fram í skýrslu óháða matsfyrirtækisins IFS Ráðgjöf sem kom út á miðvikudag. Þetta er bjartsýnni spá en hjá skilanefnd bankans, en hún gerir ráð fyrir að níutíu prósenta endurheimtu­hlutfalli í forgangskröfur.

Segir ráðherra pínulítinn karl

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), segir félagsmálaráðherra hafa orðið sér til minnkunar.

Sjá næstu 50 fréttir