Síldin fundin 24. október 2009 09:59
Íslenska sumargotssíldin er fundin. Síldveiðiskipið Sighvatur Bjarnason, sem er eitt fjögurra skipa í umfangsmikilli síldarleit á vegum Hafrannsóknarstofnunar, fann í gær miklar torfur á Breiðasundi skammt vestan Stykkishólms. Skipstjórinn, Jón Eyfjörð, segir að sér virðist að þarna sé talsvert af síld og telur hann útlitið bjart. Hafrannsóknaskipið Dröfn er einnig komið á Breiðafjörð til að kanna síldina en ekki kemur þó í ljós fyrr en eftir helgi hvort eitthvað af henni er sýkt, þegar sýni hafa verið rannsökuð. Sýking í síldinni hafði slæm áhrif í fyrra og dró verulega úr verðmætunum. Annað leitarskip, Jóna Eðvalds, fann einnig síld undan Suðausturlandi á Breiðamerkurdýpi og kastaði á hana og fékk 50 tonn. Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið en ef vel tekst til gæti síldarstofninn skilað nokkurra milljarða króna útflutningsverðmætum á næstu mánuðum. Sannkallað síldarævintýri hefur myndast nokkrar undanfarnar vertíðir á þröngum svæðum innarlega á Breiðafirði, fyrst á Grundarfirði, og síðan við Stykkishólm, þar sem síldveiðiskipin mokuðu upp milljarðaverðmætum á fáum vikum, og benda þessi tíðindi nú til þess að sú saga gæti endurtekið sig.
Mest lesið Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Maðurinn fundinn Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Fleiri fréttir Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Sjá meira