Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lán frá AGS dregst líklega til loka ágúst Líklegast er að fyrirgreiðsla frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) frestist fram til loka ágúst. Taka á málefni Íslands fyrir hjá AGS næsta mánudag, 3. ágúst. Stjórnarliðar segja ástæðu frestunarinnar vera að ekki hafi náðst að klára Icesave-málið, sem ekki verður rætt fyrr en í fyrsta lagi 4. ágúst. Aðrar heimildir Fréttablaðsins herma að ástæðan sé líklega sú að ekki sé búið að ljúka endurfjármögnun bankanna, sem ljúka átti í febrúar. Eftir fund AGS 3. ágúst fer sjóðurinn í hlé til ágústloka. 29.7.2009 06:00
Steingrímur: Orð Jóns koma ekki á óvart „Það kemur mér ekkert á óvart að það sé sjónarmið hans að það sé ekki brýnt mál að fara í þessar viðræður,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG eftir ríkisstjórnarfund í gær, um ummæli Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um að fresta skuli aðildarviðræðum að ESB. 29.7.2009 06:00
Framkvæmdir enn á dagskrá í haust „Við áttum ekki von á öðru en að þessi skýrsla yrði neikvæð,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, um skýrslu Skipulagsstofnunar vegna fyrirhugaðrar stækkunar Reykjanesvirkjunar, sem er í eigu HS Orku, sem Fréttablaðið greindi frá á mánudag. 29.7.2009 05:30
Forseti FIFA í Hvíta húsinu: Obama vill HM vestur um haf Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fundaði í gær með Sepp Blatter, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA), í Hvíta húsinu í Washington. Á fundinum hvatti Obama Blatter til að beita sér fyrir því að heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu (HM) árið 2018 verði haldin í Bandaríkjunum. 29.7.2009 05:00
Bæjarstjórinn á Álftanesi er umboðslaus Málin hafa orðið enn snúnari á Álftanesi eftir að Margrét Jónsdóttir, bæjarstjóri Á-lista, sagði sig úr Á-listanum í gær þar sem hún taldi forsendur fyrir áframhaldandi samstarfi brostnar. Hafi hún lengi deilt á vinnubrögð Sigurðar Magnússonar, bæjarstjóra fyrir Á-lista. 29.7.2009 05:00
Safnaði 1,3 milljónum í hlaupi Gunnlaugur Júlíusson hlaupari safnaði rúmlega 1,3 milljónum til styrktar Grensásdeild á hlaupi sínu frá Reykjavík til Akureyrar á dögunum. Hann afhenti féð í gær og voru það Hollvinasamtök Grensásdeildar og Edda Heiðrún Backman leikkona sem tóku á móti fénu. 29.7.2009 04:15
Helmingi fleiri þiggja aðstoð frá Reykjavíkurborg Fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Reykjavíkurborg hefur aukist um rúmlega 50 prósent fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Rúmlega 1.800 manns njóta nú aðstoðar borgarinnar. 29.7.2009 04:00
Spænskt útibú veitingastaðarins Caruso gengur vel „Það gengur mjög vel,“ segir Þrúður Sjöfn Sigurðardóttir, annar eigenda veitingastaðarins Caruso, um nýtt útibú staðarins í Torrevieja á Spáni sem opnað var í vor. 29.7.2009 04:00
Forseti Kína hvetur fólk til að vera til friðs Hu Jintao, forseti Kína, tjáði sig í gær í fyrsta sinn opinberlega um átökin í Xinjiang-héraði í Kína, þar sem Úígúrum lenti saman við Han-Kínverja. 29.7.2009 03:00
Samkynhneigð með fjögur gull fyrstu tvo dagana „Ef ég á að segja alveg eins og er þá bjuggumst við allt eins við svona góðum árangri, því íslensku keppendurnir eru mjög sterkir,“ segir Jón Þór Þorleifsson, stjórnarmaður í Íþróttafélaginu Styrmi, sem þessa dagana tekur þátt í Outgames-leikunum í Kaupmannahöfn. 29.7.2009 03:00
Spyr hvort Varnarmálastofnun hafi brotið NATO reglur Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, veltir fyrir sér í dagbókarfærslu á heimasíðu sinni hvort Varnarmálastofnun hafi brotið gegn reglum NATO þegar hún birti opinberlega upplýsingar um ferðir rússneskra kafbáta á Drekasvæðinu. 28.7.2009 23:45
Frjálslyndir: Í nýju húsi og lofa bombu Í frétt sem birtist á heimasíðu Frjálslynda flokksins í kvöld er sagt frá fjárhagslegri endurskipulagningu flokksins og hún sögð ganga samkvæmt áætlun. 28.7.2009 23:14
Leitað á heimili læknis Jackson Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum leituðu á heimili læknisins Conrad Murray í Las vegas í dag vegna rannsóknar á láti poppstjörnunnar Michael Jackson. 28.7.2009 22:05
Bíræfinn hjólaþjófnaður um hábjartan dag - myndir Bíræfinn þjófur stal reiðhjóli fyrir framan Borgartún 23 klukkan 14:52 í dag. Eigandi hjólsins er ungur starfsmaður fyrirtækis í húsinu og hafði skotist inn fyrir og skilið hjólið eftir ólæst. 28.7.2009 21:22
Fleiri handteknir vegna lánasjóðssvikamyllu Tveir ungir menn, 21 og 23 ára gamlir, voru í dag handteknir í Leifsstöð við komuna erlendis frá í tengslum við fjársvikamál sem efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er með til rannsóknar. 28.7.2009 21:03
Skiptastjóri Samson sér ekki ummerki um millifærslur Helgi Birgisson, skiptastjóri þrotabús Samson, eignarhaldsfélags Björgólfsfeðga, getur ekki séð að neinar háar millifærslur tengdar fyrirtækinu hafi átt sér stað á því tímabili sem greint var frá í fréttum Stöðvar tvö í gær. 28.7.2009 20:18
Atvinnulausir fá ekki greitt fyrir Verslunarmannahelgina „Þetta verður borgað út á fyrsta virka degi næsta mánaðar eins og segir í lögunum," segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, en atvinnulausir fá ekki greiddar út bætur fyrir Verslunarmannahelgina. 28.7.2009 19:57
Steingrímur: Ástæðulaust að eyða peningum í loftrýmisgæslu Ástæðulaust er að eyða peningum í loftrýmisgæslu og eðlilegt að henni verði hætt að mati fjármálaráðherra. 28.7.2009 19:29
Mikið álag á læknavakt vegna svínaflensu Mikið álag hefur verið hjá læknavaktinni vegna svínaflensunnar. Fæstir fá þó lyf þar sem flensan er enn frekar væg. 28.7.2009 19:23
Flestir til Eyja um helgina Útlit er fyrir að langflestir leggi leið sína til Vestmannaeyja á þjóðhátíð um verslunarmannahelgina. 28.7.2009 19:12
Íslendingar í óvenjugóðum tengslum við hið yfirnáttúrulega Íslendingar eru í betri tengslum við yfirnáttúrulegar verur en aðrar þjóðir. Þetta segir svissneskur sérfræðingur sem hefur rannsakað hin ósýnilegu öfl náttúrunnar í rúmlega þrjá áratugi. 28.7.2009 19:07
Dularfullar skemmdir á nýrri háskólabyggingu Ein nýjasta bygging Háskóla Íslands er stórskemmd vegna galla í klæðningu hússins. Aðeins fimm ár eru síðan húsið var formlega tekið í notkun. Hvorki innlendir né erlendir aðilar hafa komist að því hvað veldur skemmdunum. 28.7.2009 19:00
Steingrímur: Ekki hika við að frysta eignir ef efni standa til Fjármálaráðherra segir að þjóðin sé vanmegnug að takast á við þær risavöxnu aðstæður sem bankahrunið felur í sér. Tugir mála séu í rannsókn og kerfið að kikna undan álagi. Menn eigi ekki að hika við að frysta eignir ef efni standi til. 28.7.2009 18:54
Yfirlýsing frá Björgólfi Thor vegna frétta Stöðvar tvö í gær Í bréfi sem fréttastofu barst rétt í þessu má finna yfirlýsingu Björgólfs Thors vegna þess sem hann segir rangfærslur í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöld. 28.7.2009 18:44
Trúnaðarmál: Ákvæði uppgjörssamnings Icesave opinberuð Íslendingar geta einungis leitað til breskra dómstóla komi upp ágreiningur í tengslum Icesave samkomulagið. Bretar geta hins vegar leitað til hvaða dómsstóls sem er. Þetta kemur fram í uppgjörssamningi milli íslenska og breska innistæðutryggingasjóðsins. 28.7.2009 18:31
Lán Svía háð mati AGS Svíar ætla ekki að lána Íslendingum fyrr en stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkir endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þetta kemur fram í svari sænskra stjórnvalda við fyrirspurn fréttastofu. 28.7.2009 18:27
Hollenskir þingmenn á móti ESB umsókn Íslands Stjórnarandstöðuflokkur í hollenska þinginu gagnrýnir ráðherraráð Evrópusambandsins harðlega vegna umsóknar Íslands að sambandinu, að því er fram kemur í hollenska viðskiptablaðinu NRC. Í ráðherraráðinu eiga sæti utanríkisráðherrar aðildarríkjanna. 28.7.2009 17:50
Ólína segist ekki hafa hlegið að eineltisræðu „[...] Þór Saari réðist á mig heiftúðlega með ósannindum um að ég hefði hlegið að eineltistali Birgittu Jónsdóttur á þinginu á föstudag og verið með frammíköll," skrifar Ólína Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar um bloggfærslu Þórs Saari, þingmanns Borgarahreyfingarinnar sem Vísir sagði frá í síðustu viku. 28.7.2009 16:53
Lífeyrisþegar verða krafðir um 4 milljarða í endurgreiðslu Alls var 4,1 milljarður greiddur til lífeyrisþega umfram rétt árið 2008 og verða þeir sem fengu ofgreitt krafðir um endurgreiðslu. Um 700 milljónir króna voru vangreiddar og eiga um 9000 lífeyrisþegar inneign hjá Tryggingastofnun, sem greidd verður út á næstu dögum. 28.7.2009 16:40
Bjarni flutti líka fjármagn til Íslands Auðmaðurinn Bjarni Ármannsson segist hafa flutt 85,1 milljón íslenskra króna samkvæmt fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér vegna fréttar ríkissjónvarpsins í gærkvöldi um fjármagnsflutninga Bjarna og annarra auðmana tengdum Glitni. 28.7.2009 16:40
SP - Fjármögnun: Útlánareglur ekki brotnar „Það er ekkert í okkar útlánareglum sem hefur verið brotið varðandi þetta mál," segir Haraldur Ólafsson, forstöðumaður- verkefna- og þjónustusviðs SP - Fjármögnunar varðandi frétt sem Vísir sagði frá fyrr í dag um andlega veikan mann sem hefur verið stefnt vegna bílaláns sem hann tók. 28.7.2009 15:43
Fjármagnstekjuskattur einstaklinga lækkar um 20% milli ára Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 20,2 milljörðum króna og lækkar um 20% milli ára. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru 185.000 og hefur fjöldi þeirra nær tvöfaldast frá fyrra ári. 28.7.2009 15:35
Umboðsmaður Alþingis óskar staðfestingar á frétt Vísis Umboðsmaður Alþingis ritaði forstjóra Vinnumálastofnunar bréf á miðvikudag í síðustu viku og óskaði eftir upplýsingum og skýringum á nokkrum atriðum varðandi greiðslu atvinnuleysisbóta. 28.7.2009 15:27
Skuldabréfaveltan nam 10,8 milljörðum Skuldabréfaveltan nam 10,8 milljörðum kr. í kauphöllinni í dag. Rólegra var yfir kauphöllinni en þar lækkuðu þrjú félög. 28.7.2009 15:56
Kjötbollur í brúnni sósu innkallaðar Í varúðarskyni hefur Ora ákveðið að innkalla kjötbollur í brúnni sósu í 850 gr. dósum vegna hugsanlegs framleiðslugalla. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér. 28.7.2009 15:52
Fimmtán ára tekinn fyrir ölvunarakstur Fimmtán ára piltur var tekinn fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Hann tók bíl fjölskyldumeðlims í óleyfi og fór á rúntinn. Með honum í för voru fjórir kunningjar hans á svipuðu reki. 28.7.2009 15:00
Óþarft og erfitt að breyta lögum um eignafrystingu Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir það algjöran óþarfa að breyta lögum um frystingu eigna. Slíkt yrði jafnframt mjög erfitt því alls kyns túlkanir tengdar slíkum lagabreytingum gætu orðið mjög erfiðar. Töluverðar umræður hafa verið um frystingu eigna vegna gruns um að menn sem voru fyrirferðamiklir í íslensku viðskiptalífi hafi flutt fjármagn frá Íslandi skömmu fyrir bankahrun. 28.7.2009 14:45
Siggi segir góðar veðurhorfur fyrir verslunarmannahelgina „Ég myndi segja að horfurnar séu bara nokkuð hagstæðar þó suðurhelmingur landins hafi óumdeilanlega vinninginn í veðrinu. 28.7.2009 13:00
Geðklofa stefnt vegna bílaláns „Mér finnst það ótrúlegt ábyrgðarleysi að manni sé lánaðar tvær milljónir án þess að greiðslugeta viðkomandi sé skoðuð," segir sonur fimmtugs manns sem er haldin alvarlegum geðklofa en SP-Fjármögnun lánaði honum rúmar tvær milljónir árið 2006. Peninginn notaði maðurinn til þess að kaupa sér Citroen bifreið. 28.7.2009 12:20
Nýr forstjóri Landspítalans ráðinn tímabundið Björn Zoëga hefur verið settur tímabundið sem forstjóri Landspítalans í eitt ár, frá fyrsta október næstkomandi. 28.7.2009 12:08
Fjármálaráðherra segir heimild fyrir kyrrsetningu eigna í lögum Fjármálaráðherra segir ástæðu til að skoða hvers vegna eignir hafa ekki verið kyrrsettar enn. Heimildir séu fyrir því í lögum. Hann segir að Vinstri-græna vilja setja sjálfstæðar lagaheimildir sem auðvelda tímabundna kyrrsetningu eigna til að gæta hagsmuna þjóðarbúsins. 28.7.2009 12:00
Magnús Þorsteinsson hyggst stefna Stöð 2 Magnús Þorsteinsson athafnamaður segir að frétt Stöðvar 2 frá því í gærkvöldi, þar sem því var haldið fram að hann hafi flutt mikla fjármuni frá Íslandi til skattaskjóla, í gegnum fjárfestingabankann Straum, sé helber ósannindi. Hann hafi aldrei átt fjármuni inni á reikningum í bankanum. 28.7.2009 11:59
Iðnaðarráðherra varð ekkert vör við mótmælendur „Ég varð ekkert vör við þetta sjálf en ég fékk þær upplýsingar frá húsvörslunni að þeir hefðu eitthvað átt við lásinn á hurðinni," segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Um liðna nótt lokaði Saving Iceland aðgerðarhópur skrifstofum fyrirtækja og stofnanna sem gerst hafa meðsek um stórfelld náttúruspjöll. 28.7.2009 10:58
Varað við ferðum óprúttinna náunga á Þjóðhátíð Grunur leikur á að að óprúttnir náungar ætli að bjóða upp á ferðir, gegn gjaldi, á milli Landeyjarhafnar í Bakkafjöru og Vestmannaeyja um þjóðhátíðina, þar sem allar ferðir með Herjólfi og í flugi eru að verða uppseldar. 28.7.2009 10:42
Ekkert umburðarlyndi á Íslendingahátíð Það verður ekkert umburðarlyndi sýnt af hálfu lögreglunnar á Íslendingahátíðinni í Gimli um næstu helgi. Lögreglan mun koma í veg fyrir neyslu áfengis á almannafæri, drykkju ungmenna og almennar óspektir hvar sem slík athæfi sjást. 28.7.2009 10:04