Fjármagnstekjuskattur einstaklinga lækkar um 20% milli ára 28. júlí 2009 15:35
Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga árið 2008 nemur 20,2 milljörðum króna og lækkar um 20% milli ára. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru 185.000 og hefur fjöldi þeirra nær tvöfaldast frá fyrra ári. Ástæða fjölgunarinnar er fyrst og fremst sú að nú er fjármálastofnunum gert skylt að senda upplýsingar óumbeðið til skattyfirvalda. Mikil breyting hefur orðið á samsetningu fjármagnstekna frá því sem verið hefur. Hagnaður af sölu hlutabréfa sem nam 58% af öllum fjármagnstekjum tekjuárið 2007 er nú 12%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðneytinu um skattaálagningu 2009. Mesta breytingin er á framtöldum tekjum af innistæðum í bönkum en þær eru nú 39% af fjármagnstekjum en voru 10%. Á þessu eru tvær skýringar. Annars vegar eru nú allar vaxtatekjur af innistæðum á framtölum en hins vegar uxu innistæður heimilanna í innlánsstofnunum verulega í kjölfar bankahrunsins þegar fé úr peningamarkaðssjóðum var flutt á innlánsreikninga. Það skal tekið fram að þótt upplýsingar um innistæður heimilanna hafi ekki alltaf skilað sér í framtölum hefur fjármagnstekjuskattur verið greiddur af þeim. Arðstekjur nema nú 27% af fjármagnstekjum og þær hafa vaxið milli ára um fimmtung. Helstu niðurstöður álagningarinnar nú eru eftirfarandi: Heildarfjöldi framteljenda við álagningu árið 2009 er 267.494. Fjölgun milli ára var 1,0%, sem er mun minni fjölgun en verið hefur undanfarin ár. Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars nemur 221,3 milljörðum króna og hækkar um 3,6% frá fyrra ári. Álagðir tekjuskattar til ríkissjóðs skiptast í tekjuskatt annars vegar og fjármagnstekjuskatt hins vegar en útsvarið er tekjustofn sveitarfélaga. Almennan tekjuskatt, 98,6 milljarða króna greiða 179.500 einstaklingar eða 75% þeirra sem höfðu jákvæðan tekjuskatts- og útsvarsstofn. Skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur að meðaltali hækkað um 6,7% milli ára. Skatthlutfallið nam 22,75% og var óbreytt milli ára en persónuafsláttur hækkaði um 5,9% frá fyrra ári. Útsvar til sveitarfélaga nemur alls 108,7 milljörðum króna og hækkar um 6,7% frá fyrra ári. Gjaldendur útsvars eru 257.000, nær jafn margir og árið áður. Álagt útsvar á hvern gjaldanda hækkar um 6,2% milli ára Framtaldar eignir heimilanna námu 3.657 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær aukist um 8,2% frá fyrra ári. Fasteignir töldust 2.436 milljarðar að verðmæti eða um 2/3 af eignum og verðmæti þeirra hafði aukist um 2,5% milli ára en eigendum fasteigna fjölgaði lítið. Framtaldar skuldir heimilanna námu alls 1.683 milljörðum króna í árslok 2007 og höfðu þær vaxið um fjórðung frá árinu 2006. Framtaldar skuldir vegna íbúðarkaupa jukust um 25,9%, og námu 1.058,1 milljörðum króna. Skuldir vegna íbúðarkaupa námu 43,4 % af verðmæti þeirra og hafði það hlutfall hækkað um 8 prósentur frá fyrra ári, mun meira en dæmi eru um. Á þessu ári verða greiddir út rúmir 9,6 milljarðar króna í barnabætur samanborið við 8,4 milljarða króna í fyrra sem er 14 % aukning. Barnabætur voru hækkaðar um 5,7% og tekjuskerðingarmörk hækkuð um 25% frá fyrra ári. Þeim sem bótanna njóta fjölgar um 3,9% frá síðasta ári. Meðalbætur á hverja fjölskyldu hækka um 7,9%. Frekara talnaefni um álagningu skatta á einstaklinga og ákvörðun barna- og vaxtabóta fyrir árið 2009 verður fljótlega að finna á vefsíðu ríkisskattstjóra (www.rsk.is).
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Fleiri fréttir Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Sjá meira