„Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Freyja Þórisdóttir skrifar 23. ágúst 2026 23:20 Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir að unnið sé eins hratt og unnt sé en framkvæmdirnar séu mikilvægar og það þurfi því að flýta sér hægt. Aðsend/Vísir/Vilhelm Ein fárra leiða inn og út úr íbúðahverfinu á Kársnesi hefur verið lokuð vegna framkvæmda síðan í júlí en áætlað er að þeim ljúki í síðasta lagi í október og þá sé unnt að opna fyrir umferð út úr hverfinu á ný. Verið er að leggja nýja stofnlögn til að tryggja íbúum nægt heitt vatn til framtíðar en upplýsingafulltrúi Veitna segir mjög skiljanlegt að íbúum sé farið að finnast þetta heldur tímafrekar framkvæmdir.
Hringtorgi við Sunnuhlíð á Kársnesi var lokað í júlímánuði en upphaflega var áætlað að það yrði opnað aftur fyrir umferð um svæðið um mánaðarmótin júlí/ágúst. Framkvæmdir hafa tafist og búast má við því að ekki verði hægt að keyra út úr hverfinu fyrr en í síðasta lagi í október. Þá verður opnað fyrir umferð inn í hverfið á þriðjudaginn, 25. ágúst, nema eitthvað óvænt komi upp á. Þetta staðfestir Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna í samtali við blaðamann Vísis. Hægt er að skoða framkvæmdakort Veitna hér. Muni takast að klára verkið fyrir veturinn „Það er tenging, þarna akkúrat undir hringtorginu, þess vegna getum við ekki haft opið þarna,“ útskýrir hún en það verði vonandi opnað í september og aldrei seinna en í október. Hjólastígur og annað á svæðinu verði tilbúið á sama tíma en það sé erfitt að gefa upp nákvæmar dagsetningar þegar um svona viðamiklar framkvæmdir er að ræða. Í færslu Veitna í Facebook-hópnum Kársnesið okkar fylgdi þessi mynd með en meðal annars stóð: „Við skiljum vel að tafir á framkvæmdum og lokun hringtorgs hafi valdið óþægindum fyrir ykkur og þykir leitt að svo sé.“Facebook „Við skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu,“ segir Silja og ítrekar að það sé kappkostað að vinna hratt og örugglega á svæðinu. Þetta sé mjög mikilvæg framkvæmd fyrir Kársnesið. „Við erum að stækka stofnlögnina sem fer inn í hverfið og það er rosalega mikilvægt enda erum við bara í kappi við tímann að ná því fyrir veturinn og okkur mun takast það.“ Tryggja heitt vatn til framtíðar Slíkar framkvæmdir á stofnlögnum séu óalgengar en vegna fólksfjölgunar í hverfinu sé nauðsynlegt að hafa stofnlögnina í fullkomnu lagi. „Þá þurfum við að geta fært þeim meira heitt vatn af því að: Fleiri íbúar, meira vatn, eðli málsins samkvæmt,“ segir Silja og bætir við að „við viljum frekar, þótt það sé erfitt fyrir alla, það er það líka fyrir okkur, að þetta tefjist, að þá viljum við frekar gera það rétt svo við þurfum ekki að koma aftur.“ Frekar að gera þetta rosalega vel og tryggja íbúum á Kársnesi heitt vatn til framtíðar. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi er við hringtorgið og því þurfa þeir sem ætla sér þangað að keyra hring inni í hverfinu þegar komið er eða farið.Vísir/Vilhelm Þegar komi svo að því að tengja lögnina verði heitavatnslaust í hverfinu um stund, það verði tilkynnt með fyrirvara. „Við tilkynnum það bara um leið og við vitum hvenær við getum tengt og þó að það sé auðvitað leiðinlegt þegar maður hefur ekki heitt vatn þá er það líka svona merki, þú veist, já ókei, nú eruð þið að klára,“ segir hún og útskýrir að það sé lokaskref framkvæmdanna við stofnlögnina að tengja hana. Hitavatnsleysið muni vara í um það bil tólf klukkustundir. „Af því hún er svo stór og það þarf að sjóða svo mikið og saumurinn er svo langur,“ segir hún. Að loknum framkvæmdum taki Kópavogsbær við og ætli þá að klára göngu- og hjólastíginn. Hún vilji nýta tækifærið til að þakka Kársnesingum enn og aftur fyrir biðlundina. „Við vitum að þetta hefur verið erfitt og höfum fullan skilning á því. Við viljum gera þetta vel þannig að allir hafi nóg heitt vatn í vetur.“
Kópavogur Vatn Umferð Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira