Innlent

Hollenskir þingmenn á móti ESB umsókn Íslands

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Fáni Evrópusambandsins blaktandi við hún.
Fáni Evrópusambandsins blaktandi við hún.

Stjórnarandstöðuflokkur í hollenska þinginu gagnrýnir ráðherraráð Evrópusambandsins harðlega vegna umsóknar Íslands að sambandinu, að því er fram kemur í hollenska viðskiptablaðinu NRC. Í ráðherraráðinu eiga sæti utanríkisráðherrar aðildarríkjanna.

Ráðherraráðið ákvað í gær að vísa umsókninni til framkvæmdastjórnar ESB, sem kemur til með að leggja mat á hana.

Almennt er litið á slíkt mat framkvæmdastjórnarinnar sem fyrsta skref ríkis í þá átt að gerast aðildarríki. Í framhaldi þess að mat framkvæmdastjórnarinnar liggur fyrir er venjan sú að leiðtogafundur ESB taki ákvörðun um aðildarviðræður.

Holland studdi þá ákvörðun ráðherraráðsins að senda umsóknina til framkvæmdastjórnarinnar til umfjöllunar, að sögn því Ísland sé þannig í betri stöðu til að sýna fram á vilja sinn til að standa við skuldbindingar sínar.

Han ten Broeke, þingmaður hollenska stjórnarandstöðuflokksins VVD, segir ráðherrana hins vegar hafa sett ferli í gang sem ekki er hægt að stöðva með því að fela framkvæmdastjórn ESB umsóknina.

Hann hefði viljað sjá endanlega úrlausn Icesave deilunnar fyrst.

Þá gagnrýnir þingmaðurinn Maxime Verhagen, utanríkisráðherra Hollands, fyrir að hafa ekki verið viðstaddur fund ráðherraráðsins í gær.

Ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Kristilegi demókrataflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, hafa lýst andstöðu við að Ísland gangi í ESB fyrr en gengið hefur verið endanlega frá Icesave samkomulaginu.

Einstaka þingmenn, á borð við Luuk Blom úr Verkamannaflokknum, hafa hins vegar ekki lýst sig andsnúna því að Ísland fari í gegnum aðildarferlið á meðan, þar eð þjóðþing aðildarríkjanna taki endanlega afstöðu til umsóknar landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×