Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. ágúst 2026 06:58 Samkvæmt tilkynningu Klíníkurinnar komst siðanefnd að þeirri niðurstöðu að Hjörtur hefði vegið ómaklega að Klíníkinni og kollegum sínum. Siðanefnd Læknafélags Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hjörtur Georg Gíslason læknir hafi brotið gegn 16. grein siðareglna lækna í opinberri umfjöllun sinni um Klíníkina og lækna sem þar starfa. Þetta segir í tilkynningu frá Klíníkinni. „Nefndin telur að ummæli Hjartar hafi farið út fyrir mörk faglegrar, málefnalegrar og hófsamrar gagnrýni, kastað rýrð á störf og faglega getu annarra lækna og gefið í skyn yfirburði eigin starfsemi. Ekki hafi verið um einangrað tilvik að ræða heldur ítrekuð ummæli án þess að sýnt væri fram á stoð þeirra í sannreynanlegum gögnum,“ segir í tilkynningunni. Klíníkin kærði Hjört Georg til siðanefndar vegna greinar hans „Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi“ sem birtist á Vísi og ummæla hans í Bítinu á Bylgjunni þann 17. mars síðastliðinn. 16. grein siðareglna Læknafélags Íslands „Læknar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og við samstarfsfólk. Læknar skulu, eftir því sem við á, leitast við að taka þátt í eða leiða þverfaglega samvinnu til aukins hags sjúklinga. Læknum ber að auðsýna hver öðrum virðingu og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum, í ræðu og riti. Læknir skal forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna, vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína með því að hampa eða láta hampa menntun sinni, þekkingu, hæfni, afrekum, aðferðum eða vinsældum. Einelti, áreitni eða kynbundið ofbeldi gagnvart starfsfélögum eða nemendum er læknum ekki tilhlýðilegt.“ „Siðanefnd fjallaði meðal annars um fullyrðingu Hjartar um að engin einkarekin stofnun á Íslandi hefði faglega getu og kunnáttu til að sinna umræddum sjúklingahópi. Nefndin lýsir henni sem „afdráttarlausri, neikvæðri og einsleitri fullyrðingu án nokkurra gagna“ og telur að með henni hafi verið kastað rýrð á störf annarra lækna,“ segir í tilkynningu Klíníkurinnar. Í úrskurðinum segi að læknum sé heimilt og jafnvel skylt að taka þátt í opinberri faglegri umræðu um heilbrigðismál en hún þurfi að byggja á traustum gögnum og að læknar eigi að gæta hófs og sýna kollegum sínum virðingu. Þá segir í tilkynningu Klíníkurinnar að nefndin veki athygli á því að Hjörtur bjóði sjálfur upp á sambærilega starfsemi erlendis, þar sem efnaskiptaaðgerðir hafi verið framkvæmdar með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands, og sé því í beinni samkeppni við einkarekna starfsemi hér á landi. „Siðanefnd taldi Hjört einnig hafa gengið of langt í ályktunum um for- og eftirmeðferð, gæði þjónustu, eftirfylgni og ábyrgð Klíníkurinnar. Í viðtali sínu hélt hann meðal annars fram að sjúklingar væru teknir í aðgerðir hjá Klíníkinni án undirbúnings og að margir þeirra hefðu aldrei átt að fara í aðgerð. Nefndin taldi þetta alvarlegar ásakanir sem settar hefðu verið fram án haldbærra gagna og benti á að væru slíkar ásakanir á rökum reistar hefði verið eðlilegt að tilkynna viðeigandi stjórnvöldum um vanrækslu,“ segir í tilkynningunni. Nefndin er einnig sögð hafa gert athugasemdir við ummæli Hjartar um að gróðasjónarmið þyrftu að víkja fyrir faglegum metnaði og umhyggju og að Klíníkin þyrfti að „hysja upp um sig buxurnar“. „Við leituðum til siðanefndar vegna þess að ummælin vörðu fagmennsku starfsfólks okkar, öryggi sjúklinga og gæði þeirrar þjónustu sem hér hefur verið byggð upp. Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu og okkur þótti mikilvægt að fá óháð faglegt mat á málinu. Sú niðurstaða liggur nú fyrir og er skýr,“ er haft eftir Kristjáni Jóni Jónatanssyni, framkvæmdastjóra Klíníkurinnar. „Fagleg umræða og gagnrýni eru mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins og við fögnum málefnalegri umræðu um hvernig þjónusta við sjúklinga verður best veitt. Slík umræða þarf að byggjast á staðreyndum, gögnum og gagnkvæmri virðingu. Við ætlum áfram að einbeita okkur að því sem skiptir mestu máli: öruggri og góðri þjónustu og hag sjúklinga.“ Heilbrigðismál Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ Sjá meira
„Nefndin telur að ummæli Hjartar hafi farið út fyrir mörk faglegrar, málefnalegrar og hófsamrar gagnrýni, kastað rýrð á störf og faglega getu annarra lækna og gefið í skyn yfirburði eigin starfsemi. Ekki hafi verið um einangrað tilvik að ræða heldur ítrekuð ummæli án þess að sýnt væri fram á stoð þeirra í sannreynanlegum gögnum,“ segir í tilkynningunni. Klíníkin kærði Hjört Georg til siðanefndar vegna greinar hans „Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi“ sem birtist á Vísi og ummæla hans í Bítinu á Bylgjunni þann 17. mars síðastliðinn. 16. grein siðareglna Læknafélags Íslands „Læknar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og við samstarfsfólk. Læknar skulu, eftir því sem við á, leitast við að taka þátt í eða leiða þverfaglega samvinnu til aukins hags sjúklinga. Læknum ber að auðsýna hver öðrum virðingu og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum, í ræðu og riti. Læknir skal forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna, vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína með því að hampa eða láta hampa menntun sinni, þekkingu, hæfni, afrekum, aðferðum eða vinsældum. Einelti, áreitni eða kynbundið ofbeldi gagnvart starfsfélögum eða nemendum er læknum ekki tilhlýðilegt.“ „Siðanefnd fjallaði meðal annars um fullyrðingu Hjartar um að engin einkarekin stofnun á Íslandi hefði faglega getu og kunnáttu til að sinna umræddum sjúklingahópi. Nefndin lýsir henni sem „afdráttarlausri, neikvæðri og einsleitri fullyrðingu án nokkurra gagna“ og telur að með henni hafi verið kastað rýrð á störf annarra lækna,“ segir í tilkynningu Klíníkurinnar. Í úrskurðinum segi að læknum sé heimilt og jafnvel skylt að taka þátt í opinberri faglegri umræðu um heilbrigðismál en hún þurfi að byggja á traustum gögnum og að læknar eigi að gæta hófs og sýna kollegum sínum virðingu. Þá segir í tilkynningu Klíníkurinnar að nefndin veki athygli á því að Hjörtur bjóði sjálfur upp á sambærilega starfsemi erlendis, þar sem efnaskiptaaðgerðir hafi verið framkvæmdar með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands, og sé því í beinni samkeppni við einkarekna starfsemi hér á landi. „Siðanefnd taldi Hjört einnig hafa gengið of langt í ályktunum um for- og eftirmeðferð, gæði þjónustu, eftirfylgni og ábyrgð Klíníkurinnar. Í viðtali sínu hélt hann meðal annars fram að sjúklingar væru teknir í aðgerðir hjá Klíníkinni án undirbúnings og að margir þeirra hefðu aldrei átt að fara í aðgerð. Nefndin taldi þetta alvarlegar ásakanir sem settar hefðu verið fram án haldbærra gagna og benti á að væru slíkar ásakanir á rökum reistar hefði verið eðlilegt að tilkynna viðeigandi stjórnvöldum um vanrækslu,“ segir í tilkynningunni. Nefndin er einnig sögð hafa gert athugasemdir við ummæli Hjartar um að gróðasjónarmið þyrftu að víkja fyrir faglegum metnaði og umhyggju og að Klíníkin þyrfti að „hysja upp um sig buxurnar“. „Við leituðum til siðanefndar vegna þess að ummælin vörðu fagmennsku starfsfólks okkar, öryggi sjúklinga og gæði þeirrar þjónustu sem hér hefur verið byggð upp. Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu og okkur þótti mikilvægt að fá óháð faglegt mat á málinu. Sú niðurstaða liggur nú fyrir og er skýr,“ er haft eftir Kristjáni Jóni Jónatanssyni, framkvæmdastjóra Klíníkurinnar. „Fagleg umræða og gagnrýni eru mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins og við fögnum málefnalegri umræðu um hvernig þjónusta við sjúklinga verður best veitt. Slík umræða þarf að byggjast á staðreyndum, gögnum og gagnkvæmri virðingu. Við ætlum áfram að einbeita okkur að því sem skiptir mestu máli: öruggri og góðri þjónustu og hag sjúklinga.“
16. grein siðareglna Læknafélags Íslands „Læknar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og við samstarfsfólk. Læknar skulu, eftir því sem við á, leitast við að taka þátt í eða leiða þverfaglega samvinnu til aukins hags sjúklinga. Læknum ber að auðsýna hver öðrum virðingu og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum, í ræðu og riti. Læknir skal forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna, vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína með því að hampa eða láta hampa menntun sinni, þekkingu, hæfni, afrekum, aðferðum eða vinsældum. Einelti, áreitni eða kynbundið ofbeldi gagnvart starfsfélögum eða nemendum er læknum ekki tilhlýðilegt.“
Heilbrigðismál Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ Sjá meira