Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kanadamenn kæra ESB vegna selamálsins Kanadísk stjórnvöld hyggjast kæra bann, sem Evrópusambandið hefur lagt við verslun með afurðir sela, til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. 28.7.2009 08:19
Segir lækni Jacksons hafa gefið honum Diprivan Doktor Conrad Murray, einkalæknir Michaels Jackson heitins, gaf söngvaranum svæfingarlyfið Diprivan um það bil sólarhring áður en hann lést og mun það hafa dregið hann til dauða. 28.7.2009 08:17
Gagnrýnir lúxus í unglingafangelsi Unglingafangelsið Warren Hill í Suffolk í Bretlandi sætir gagnrýni félagsmálayfirvalda þar eftir að fyrrverandi starfsmaður ljóstraði því upp að fangelsið minnti í besta falli á þægilegar sumarbúðir. 28.7.2009 08:13
Feðgar grunaðir um hryðjuverkaáætlanir Lögregla í Norður-Karólínu hefur handtekið og ákært sjö manns vegna gruns um að þeir hafi lagt á ráðin um að fremja hryðjuverk. 28.7.2009 07:28
Tveir grunaðir um fíkniefnaakstur í Keflavík Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í Keflavík í nótt grunaðir um fíkniefnaakstur. Ekki fundust fíkniefni í bílum þeirra en húsleit var gerð á heimili annars þeirra. 28.7.2009 07:22
Langþráð rigning á Akureyri Hellirigning var á Akureyri í nótt en stytti upp undir morgun. Aldrei þessu vant var rigningunni fagnað því varla hefur komið dropi úr lofti á Akureyri í langan tíma og var gróður orðinn mjög þurr. 28.7.2009 07:21
Eldur í garðyrkjustöð Töluvert tjón varð þegar eldur kom upp í garðyrkjustöð að Flúðum í Hrunamannahreppi í gærkvöldi í húsnæði, þar sem verið var að rækta græðlinga að tómataplöntum. 28.7.2009 07:13
Dómarar þurftu lögreglufylgd af vellinum Lögreglumenn voru kallaðir að Leiknisvelli í Breiðholti í gærkvöldi til þess aða tryggja að dómaratríóið kæmist klakklaust út í bíla sína að leik loknum. 28.7.2009 07:07
Gott gengi í upphafi varð okkur að falli „Eitt af því sem varð Íslandi að falli var of gott gengi í upphafi. Efnahagsumbætur eftir hrun þorsksins 1988 og opnun landsins á tíunda áratugnum gáfu landsmönnum góðan aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum og sköpuðu forsendur fyrir 15 ára velmegunartíma,” segir Ásgeir Jónsson, hagfræðingur og forstöðumaður greiningardeildar Nýja Kaupþings. „En því miður fórum við fram úr sjálfum okkur undir lokin með hrapallegum afleiðingum.“ 28.7.2009 06:15
Tæplega 30 prósenta fjölgun gjaldþrota Alls hafa 508 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 393 á sama tímabili fyrir ári. Þetta er rétt rúmlega 29 prósenta aukning á milli ára. Fjöldi gjaldþrota í júní var svipaður og fyrir ári, rétt rúmlega 90 talsins. 28.7.2009 06:00
Engin ákvörðun um afskriftir láns Björgólfsfeðga Ekki er búið að taka ákvörðun um afskriftir láns til Björgólfsfeðga. Lánið er til komið vegna kaupa þeirra á Landsbanka Íslands árið 2002. Þetta staðfesti Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, í samtali við Fréttablaðið. 28.7.2009 05:30
Bandaríkjamenn reyna að þrýsta á Ísraelsstjórn George Mitchell, sendifulltrúi Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, og Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, leggja nú hart að Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Ehud Barak varnarmálaráðherra um að hefja á ný samningaviðræður við Palestínumenn. 28.7.2009 05:00
Loftrýmisgæslu verði hætt Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að leggja eigi niður Varnarmálastofnun um áramótin. Í fjárlögum næsta árs eigi að vera skýrt hvaða verkefni hennar verði lögð niður og hvert hin verði færð. Árni Þór vill leggja loftrýmisgæslu niður. 28.7.2009 05:00
Engin lánveitingamál borist saksóknara Búast má við því að rannsóknum Fjármálaeftirlitsins (FME) á lánveitingum viðskiptabankanna þriggja til tengdra aðila ljúki fyrir lok ágúst, segir Gunnar Andersen, forstjóri FME. 28.7.2009 05:00
Segja Biden fallinn í sama far og Bush Ummæli Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna, þess efnis að efnahagserfiðleikar Rússa geri þá eftirgefanlegri í samningum við Bandaríkin um ýmis öryggismál, virðast hafa farið fyrir brjóstið á Rússum. 28.7.2009 04:00
Fyrrum samherjar neita samstarfi við Kristján á Álftanesi Viðræður um nýjan meirihluta á Álftanesi eru hafnar. Til stendur að þrír fulltrúar Á-lista fari í samstarf við þrjá fulltrúa D-lista. Sjö bæjarfulltrúar eru á Álftanesi og myndi þá einn bæjarfulltrúi standa eftir, Kristján Sveinbjörnsson, sem áður tilheyrði Á-listanum. Guðmundur D. Gunnarsson, oddviti D-listans, staðfestir þetta. 28.7.2009 04:00
Íslandsvinir á Appelsínbíl Fólk Þýsku hjónin Alex og Siglinde Hornunt hafa eingöngu ferðast til Íslands frá árinu 1993 og aka nú um landið á Land Rover-jeppa sem á sér fáa líka. Þau koma til landsins að minnsta kosti einu sinni á ári og hafa fundið sinn stað í tilverunni. 28.7.2009 04:00
Sjö nýjar minjagripaverslanir í miðbænum Sjö nýjar minjagripaverslanir hafa opnað í miðborginni frá því í maí og eru þær nú sextán. Ef bókabúðirnar eru taldar með, sem breytast að einhverju leyti í minjagripaverslanir á sumrin, eru þær nítján. Þetta segir Helgi Hrannarr Jónsson, framkvæmdastjóri Global Refund, sem annast umsýslu Tax Free á Íslandi. 28.7.2009 03:00
Veit ekki til þess að millifærslur séu til rannsóknar hjá FME Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segist ekki vita til þess að millifærslur þær sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar tvö annarsvegar og RÚV hinsvegar séu til rannsóknar hjá eftirlitinu. 27.7.2009 22:42
Enn enginn jarðskjálfti Minna varð úr stóra skjálftanum sem Lára Ólafsdóttir miðill spáði í tímaritinu Vikunni en efni stóðu til. 27.7.2009 23:21
Björgólfur Guðmundsson: Rætinn uppspuni frá rótum Björgólfur Guðmundsson hafði samband við fréttastofu í kjölfar kvöldfrétta Stöðvar tvö, þar sem hann var sagður hafa millifært fé í erlend skattaskjól. 27.7.2009 22:34
Kanadamenn æfir vegna selveiðibanns ESB Kanadamenn munu gera athugasemdir við selveiðibann Evrópusambandsins frammi fyrir Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO að því er haft er eftir milliríkjaviðskiptaráðherra landsins. 27.7.2009 22:11
Bandarískir ríkisborgarar grunaðir um aðild að hryðjuverkum Búið er að handtaka sjö Bandaríkjamenn í Norður Karólínu grunaða um undirbúning hryðjuverka. 27.7.2009 21:26
Fullir breskir þjófar sofnuðu í miðju innbroti Tveir breskir þjófar, þeir Keith Cullen og Paul Wiggins, létu þorstann eyðileggja fyrir sér innbrot í áfengislager. 27.7.2009 20:03
Karl Wernersson: Frétt Stöðvar tvö fjarstæða Karl Wernersson hafði samband við fréttastofu í kjölfar kvöldfrétta Stöðvar tvö og sagði fjarstæðu sem þar kom fram, að hann hafi millifært fé í erlend skattaskjól. 27.7.2009 19:36
Björgólfur Thor: Millifærði ekki fé í erlend skattaskjól Björgólfur Thor Björgólfsson hafði samband við fréttastofu í kjölfar kvöldfrétta Stöðvar tvö og sagðist ekki hafa millifært fé í erlend skattaskjól eins og þar kom fram. 27.7.2009 19:19
Tveggja barna móðir flúði eftir skjálftaspá miðils Þriggja barna móðir í Grindavík flúði heimili sitt í dag af ótta við jarðskjálfta sem spáð var í viðtali í tímaritinu Vikunni. Jarðskjálftafræðingur segir ekkert benda til að stór skjálfti sé í aðsigi. 27.7.2009 18:55
Framkvæmdastjóri Fitch: Lán frestast ef Icesave er hafnað Allar lánveitingar til Íslands frestast ef Alþingi samþykkir ekki Icesave. Lánin frá Norðurlöndunum eru háð endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en ekki öfugt. Þetta er mat framkvæmdastjóra hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch í London. 27.7.2009 18:49
Íslenskir læknar greina svínaflensu símleiðis Læknar eru sumir hverjir hættir að taka sýni vegna svínaflensunnar og greina sjúklinga á staðnum og jafnvel í gegnum síma. Tilfellum fer ört fjölgandi og hafa þrjátíu og fjórir nú smitast af flensunni hér á landi. 27.7.2009 18:43
Óvæntur ESB stuðningur frá Bretum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þarf að afgreiða umsókn Íslands á mettíma til þess að aðildarviðræður geti hafist í byrjun næsta árs. Utanríkisráðherra vonast til þess að svo verði. 27.7.2009 18:34
Auðmenn forðuðu milljörðum rétt fyrir hrun Björgólfur Thor Björgólfsson, Björgólfur Guðmundsson, Karl Wernersson og Magnús Þorsteinsson millifærðu milljarða úr Straumi yfir í erlend skattskjól á sama tíma og tilkynnt var um þjóðnýtingu Glitnis. 27.7.2009 18:24
Fjarvera annarra þingmanna hafði ekki áhrif á afgreiðslu Icesave Tveir þingmenn, utan Lilju Mósesdóttur, voru fjarverandi fund efnahags- og skattanefndar þegar umsögn um Icesave málið var afgreidd þaðan síðastliðinn miðvikudag. 27.7.2009 17:46
Sótti 47 milljónir úr Lottóinu Heppinn karlmaður, sem vann tæpar 47 milljónir króna, í íslenska Lottóinu á laugardag, gaf sig fram við Íslenska Getspá í dag. 27.7.2009 15:50
Ný lögreglubifreið á Sauðárkróki Bílamiðstöð ríkislögreglustjórans stefnir að því að viðhalda endurnýjun og uppbyggingu á ökutækjum lögreglunnar eins og verið hefur á undanförnum árum samkvæmt heimasíðu lögreglunnar. 27.7.2009 16:45
Hummer-ökumaður játar sök Í morgun játaði Jón Kristinn Ásgeirsson að hafa ekið Hummer-bifreið á 26 ára gamlan meistaranema í lögfræði og valda honum ævarandi örkumlun í janúar síðastliðnum. 27.7.2009 15:32
Ferðamaður gómaður utanvegar Lögreglan á Hvolsvelli fékk tilkynningu um utanvegaakstur á erlendri bifreið á Sprengisandsleið í gær. 27.7.2009 14:56
Eldur kviknaði í bíl á Flókagötu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Flókagötu rétt fyrir tvö í dag þar sem eldur logaði í fólksbíl. Eldurinn hafði að mestu leyti verið slökktur þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn og gekk þeim vel að ljúka við verkið. Þá var slökkviliðið kallað að húsi við Rauðarárstíg klukkan korter í eitt. Þar hafði pottur gleymst á eldavél svo mikinn reyk lagði frá eldavélinni. Enginn eldur kom þó upp í því tilfelli. 27.7.2009 14:34
Hollensk yfirvöld um borð í smyglskútu fyrir Íslandsför Hollensk tollayfirvöld fóru um borð í skútuna Sirtaki sem smyglaði yfir hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins áður en þeir komu til Íslands í apríl síðastliðnum. Þetta kom fram í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 27.7.2009 13:45
Fimm innbrot í Reykjavík tilkynnt lögreglu í morgun Lögreglan fékk tilkynningu um fimm innbrot á tímabilinu sjö til ellefu í morgun. Um var að ræða fjögur innbrot í bíla með stuttu millibili í Staðarhverfinu í Grafarvogi. Auk þess var brotist inn í vinnuskúr við Holtaveg. 27.7.2009 13:42
Guðfríður Lilja var ekki á áliti utanríkismálanefndar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, mætti ekki á fund utanríkismálanefndar Alþingis þegar gengið var frá umsögn nefndarinnar í Icesavemálinu fyrir helgi, samkvæmt heimildum fréttastofu. 27.7.2009 13:30
Sakborningar segja gleðikonur hafa verið skráðar fyrir Papeyjarskútunni Þrír sakborninga í Papeyjarmálinu sem eiga að hafa siglt fíkniefnunum til Íslands neita allir sök og segjast hafa verið í tveggja vikna fríi á skútunni. Nöfn þriggja íslenskra kvenna voru skráð í áhöfn skútunnar en tveir sakborninga segja þær hafa verið gleðikonur. Þær hafi aldrei komið um borð. 27.7.2009 12:04
Var hótað vegna Papeyjarmálsins Jónas Árni Lúðvíksson, einn af sex sakborningum í svokölluðu Papeyjarmáli, segir að honum hafi borist hótanir vegna smyglmálsins þegar hann varð laus úr einangrunarvist í fangelsinu. Menn sem hafi komið að skipulagningu smyglsins hafi sagt honum að honum væri hollast að hafa hljótt um málið. Þetta kom fram í máli Jónasar við aðalmeðferð þess í morgun. 27.7.2009 11:54
ESB biður framkvæmdanefndina um mat á Íslandi Utanríkisráðherrar ESB samþykktu í morgun að vísa umsókn Íslands um aðildarviðræður til framkvæmdanefndar sambandsins. Framkvæmdanefndinni er ætlað að meta umsókn Íslands. 27.7.2009 11:29
Sex ný svínaflensu tilfelli Sex tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1) síðustu tvo sólarhringa og hefur hún því greinst hjá samtals 29 einstaklingum frá því í maí síðastliðnum. 27.7.2009 10:33
Reykjanesbraut lokuð til suðurs Báðar akgreinar á Reykjanesbraut verða lokaðar til suðurs (til Keflavíkur) að mislægum gatnamótum við Ásbraut frá hringtorgi við N1 til klukkan tíu í kvöld. Rampar að og frá Reykjanesbraut verða einnig lokaðir á sama tíma við mislæg gatnamót við Kirkjugarðinn. 27.7.2009 10:10