Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alcoa segist stefna ótrautt á álver á Bakka Ráðamenn Alcoa segja engan bilbug á fyrirtækinu að reisa álver á Bakka við Húsavík. Það hafi lagt tæpan milljarð króna í undirbúning og muni sækjast eftir endurnýjun viljayfirlýsingar í haust. 4.5.2009 18:45
Unnur Brá hætt sem sveitarstjóri Unnur Brá Konráðsdóttir, nýkjörin þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, hefur látið af störfum sem sveitarstjóri Rangárþings eystra. Hún mun áfram sitja í sveitarstjórn. 4.5.2009 15:52
Árekstur við Öskjuhlíðina Árekstur átti sér stað nálægt Öskjuhlíðinni upp úr hálf átta í kvöld. Bifreið ók aftan á aðra bifreið. Ekki er vitað um meiðs á fólki og var lögreglan enn á vettvangi þegar haft var samband við varðstjóra. 4.5.2009 20:04
Borgarahreyfingin gegn skammtímalækningum Þinghópur Borgarahreyfingarinnar lýsir furðu sinni og vanþóknun á yfirlýsingum forsætisráðherra og viðskiptaráðherra vegna yfirvofandi greiðsluverkfalls, þetta kemur fram í tilkynningu sem hreyfingin sendi frá sér fyrr í dag. 4.5.2009 19:03
Ætlar að gera Fiat næst stærsta Í miðri kreppu vill stjórnandi Fiat gera fyrirtækið að næst stærsta bílaframleiðanda heims. Hann hefur áður ráðist í miklar framkvæmdir í niðursveiflu og þá á Íslandi. 4.5.2009 18:58
Gæsluvarðhald yfir Mávanesræningja staðfest Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir öðrum manninum sem ruddist inn á heimili aldraðra hjóna á Arnarnesinu fyrir um tveimur vikum síðan. 4.5.2009 17:46
Ísland í forystu hóps um verndun lífríkis Norðurslóða Ísland tók við formennsku í vinnuhóp Norðurskautsráðsins um vernd lífríkis Norðurslóða á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Tromsö í Noregi í síðustu viku. Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, er nýr formaður vinnuhópsins. 4.5.2009 16:36
Magnús Árni nýr forstöðumaður Magnús Árni Magnússon, stjórnmála- og hagfræðingur, hefur verið ráðinn forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Magnús tekur við starfinu af Friðrik H. Jónssyni, prófessor. 4.5.2009 14:02
Rúmlega helmingur ók yfir hámarkshraða 46 voru staðnir að hraðakstri á Álfhólsvegi í Kópavogi á miðvikudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Þá voru 141 ökumenn staðnir að hraðakstri á Strandvegi í Reykjavík á sama tíma. 4.5.2009 13:42
Þingflokkar stjórnarflokkanna funda Þingflokkar Samfylkingar og Vinstri grænna koma saman klukkan hálf tvö í dag og fara meðal annars fyrir stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðunum og nefndarstarfi flokkanna. Undirnefndir þeirra um Evrópu-, stjórnskipunar- og ríkisfjármál hafa verið að störfum undanfarna daga. 4.5.2009 13:25
Töluverð hreyfing á vinnumarkaði Nokkur hreyfing virðist nú vera á vinnumarkaði og atvinnuleysið stendur að mestu leyti í stað. Töluverð hreyfing er á vinnuaflinu og er svipað streymi inn og út af atvinnuleysisskrá. 4.5.2009 12:10
Ekki kynnt sér hugmyndir talsmanns neytenda til fulls - var í helgarfríi Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra segir ríkið ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að fara í miklar afskriftir íbúðalána. Hún er ekki búin að kynna sér tillögur talsmanns neytenda þar sem hún var í helgarfríi. 4.5.2009 12:03
Skammur tími til að endurvekja tiltrú erlendra fjárfesta Tíminn sem íslensk stjórnvöld hafa til að endurvekja tiltrú erlendra fjárfesta á íslensku efnahagslífi er stuttur að mati hagfræðiprófessors. Landsvirkjun gæti að óbreyttu lent í verulegum vandræðum með endurfjármögnun í lok næsta árs. 4.5.2009 12:02
Beraði kynfærin í Bláa Lóninu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart dreng í búningsklefa í Bláa Lóninu þarnn 7.apríl síðast liðinn. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í morgun en manninum er gefið að sök að hafa berað kynfæri sín og sýnt drengnum. Síðan á hann að hafa strokið honum frá öxl og niður á rasskinn innan klæða. 4.5.2009 11:43
Burðardýrin bentu á höfuðpaurinn Tvær belgískar konur, Ewelina Marcinkowska og Hafida Aousti, voru fyrir helgi dæmdar í tíu mánaða fangelsi fyrir innflutning á rúmum 350 grömmum af kókaíni en efnin földu stúlkurnar innvortis. Önnur stúlknanna var með rúm 150 grömm og hin 220 grömm. Til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem þær hafa setið í frá 13.apríl. 4.5.2009 11:22
Yfir 1000 staðfest svínaflensutilfelli Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) eða svínaflensunnar voru í morgun alls 1008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins. Engin tilfelli inflúensunnar hafa verið staðfest hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 4.5.2009 10:50
Stal nesti og nýjum skóm Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út ákæru á hendur tuttugu og fimm ára gamalli konu fyrir tvö þjófnaðarbrot í Reykjavík á síðasta ári. Málið verður þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 4.5.2009 10:30
Ástand Duncans óbreytt Ástand bandaríska tónlistarmannsins Duncan McKnight sem féll út um glugga á Skólavörðustígnum á föstudagsmorgun er óbreytt og er honum enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum. Við fallið hlaut hann höfuðkúpubrot og innvortis áverka. 4.5.2009 10:06
Stakk sambýlismann sinn í öxlina Kona á sextugs aldri var handtekin í Grafarvogi um klukkan hálfþrjú í nótt eftir að hafa stungið sambýlismann sinn með hnífi. Maðurinn sem er á svipuðum aldri og konan særðist á öxl en er þó ekki alvarlega slasaður og hringdi hann sjálfur á lögregluna sem kom á vettvang og handtók konuna. 4.5.2009 09:49
Ron Howard hvetur Vatíkansmenn til að sjá Engla og djöfla Leikstjórinn Ron Howard hvetur embættismenn Vatíkansins til að sjá kvikmyndina Englar og djöflar áður en þeir gagnrýna hana. 4.5.2009 08:30
Framtíð Boston Globe óljós Ekki er útilokað að dagblaðið Boston Globe hætti að koma út frá og með deginum í dag vegna fjárhagsvandræða. 4.5.2009 08:27
Léttvín í plastflöskum frá Foster's Ástralski vínframleiðandinn Foster's ríður nú á vaðið með léttvín í plastflöskum með umhverfissjónarmið fyrir augum. 4.5.2009 08:21
Líkfundur í skógi í Danmörku Lögreglan í Ringsted á Sjálandi rannsakar nú líkfund í skógi í nágrenni bæjarins en þar fann vegfarandi nokkur mannabein sem leiddu svo til þess að lögreglan fann niðurgrafnar jarðneskar leifar manneskju sem hafa legið í jörðu í allt að eitt ár. 4.5.2009 08:19
Búast við kraftmeiri flensu í haust Búast má við að svínaflensan skelli á Bretlandi af mun meiri krafti með haustinu, að sögn breska heilbrigðisráðherrans Alans Johnson sem bendir á að ýmis fyrri farsóttartilfelli hafi byrjað vægt en svo orðið mun sterkari í kjölfarið. 4.5.2009 08:14
Bretar voru dregnir inn í Íraksstríðið Bretar voru dregnir inn í stríðið í Írak þrátt fyrir að þátttaka í stríðinu hafi ávallt verið gegn þeirra betri vitund. Þetta segir Nigel Inkster, fyrrum yfirmaður hjá bresku leyniþjónustunni MI-6, og bætir því við að utanríkisráðuneyti landsins hafi sýnt mikla linkind 4.5.2009 08:11
Danska konungsfjölskyldan stækkar Maríu prinsessu og Jóakim prinsi af Danmörku fæddist sonur í nótt. Hann er 49 sentimetra langur og vegur rúmar tólf merkur. Hann fæddist aðeins fyrir tímann, en er þó við góða heilsu eins og móðirin. 4.5.2009 07:33
Grásleppuafli minni en í fyrra Grásleppuaflinn, það sem af er vertíðinni, er allt að fjórðungi minni en á sama tíma í fyrra þrátt fyrir að fleiri bátar stundi veiðarnar nú en í fyrra. Aðalástæðurnar eru ógæftir fyrir norðan, stórviðri sem eyðilagði net um það bil 80 báta á norðursvæðinu og treg veiði vestur af landinu. 4.5.2009 07:31
Fékk tóg í skrúfuna Sjómaður á lítilli trillu fékk tóg í skrúfuna þegar hann var staddur skammt utan við Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi. Við það drapst á vélinni og fór báturinn að reka. Sjómaðurinn kallaði eftir aðstoð og fór bátur út frá Hafnarfirði og sótti hann. Ekkert amaði að manninum. 4.5.2009 07:26
Olíuflekkur í Kópavogshöfn Olíuflekkur sást í Kópavogshöfn undir kvöld í gærkvöldi og var kallað á slökkviliðið. Það girti flekkinn af og dreifði yfir hann hreinsi- og felliefni. 4.5.2009 07:09
Nokkuð um ölvun í gærkvöldi og nótt Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og fram á nótt vegna ölvunar, bæði í heimahúsum og á víðavangi. Þó nokkrir gista fangageymslur lögreglunnar vegna þessa, en ekki kom til alvarlegra vandræða. Þá voru tveir teknir úr umferð vegna ölvunaraksturs. Fátítt er að erill vegna ölvunar sé aðfaranótt mánudags. 4.5.2009 07:05
Framtíð Internetfyrirtækja ógnað Orkuþörf internetsins ógnar framtíð margra internetfyrirtækja eins og Google, eftir því sem vísindamenn og stjórnendur Internetfyrirtækja fullyrða. 3.5.2009 22:00
Segir viðskiptaráðherra nánast hóta fólki Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, furðar sig á orðum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra í fréttum í dag um greiðsluaðlögun og greiðsluverkföll. 3.5.2009 20:27
Beðið eftir reglugerð um greiðsluaðlögun Greiðsluaðlögun er ekki enn orðin raunhæfur valkostur fyrir illa stödd heimili þar sem reglugerð með frumvarpinu hefur ekki verið endanlega útfærð. Frystingartímabili lána er í flestum tilfellum að ljúka þessa dagana og margir sitja uppi ráðalausir. 3.5.2009 18:36
Fundað um stjórnarmyndun í stjórnarráðinu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á von á því að myndun nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ljúki um næstu helgi. 3.5.2009 16:37
Bandaríkin biðja Þjóðverja um að taka við Guantanamo föngum Bandarísk stjórnvöld hafa beðið þýsk stjórnvöld um að taka við föngum úr Guantanamo Bay fangabúðunum, samkvæmt upplýsingum frá talsmanni þýska innanríkisráðuneytisins. Talsmaðurinn sagði við AFP fréttastofuna að listi með nöfnum fanganna hefði borist ráðuneytinu. Það kemur svo í hlut ráðuneytisins að ákveða hvort fallist verður á beiðnina. 3.5.2009 16:15
Kreppan mun bana 400 þúsund börnum Að minnsta kosti 56 þúsund börn í Asíu munu látast vegna alheimskreppunnar. Þetta er mat Asíska þróunarbankans. Rajat Nag, forstjóri Asíska þróunarbankans, segir að allt eins megi tala um félagslega kreppu eins og efnahagskreppu. 3.5.2009 14:57
Ingibjörg Sigurrós fundin Stúlkan sem lýst var eftir í dag, Ingibjörg Sigurrós Sigurðardóttir, er komin í leitirnar, heil á húfi. 3.5.2009 21:11
H1N1 veiran leggst aðallega á ungt fólk í Bandaríkjunum Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum segja að H1N1 veiran, eða svínaflensan, virðist vera mjög útbreidd um Bandaríkin. Veiran virðist einna helst sækja á ungt fólk og fáir yfir 50 ára væru smitaðir. 3.5.2009 18:22
Leita hjónabandsráðgjafar vegna efnahagserfiðleika Efnahagsaðstæður eru í öllum tilfellum nefndar sem ástæða fyrir því að fólk leitar sér hjónabandsráðgjafar, segir Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarfirði. Þórhallur hefur sýnt málefnum hjóna mikinn áhuga í starfi sínu sem prestur. Bæði hefur hann verið með námskeið fyrir hjón og verið með einkatíma. 3.5.2009 13:36
Líðan Duncans stöðug Líðan bandaríska tónlistarmannsins Duncan McKnight sem féll út um glugga íbúðar við Skólavörðustíg á föstudagsmorgun er stöðug og er honum enn haldið sofandi. 3.5.2009 12:12
Helsti hugmyndafræðingur repúblikana látinn Einn helsti hugmyndafræðingur stjórnmálastefnunnar sem kennd er við Ronald Reagan lést í gær. 3.5.2009 13:53
Jörð skalf í Gvatemala Jarðskjálfti, upp á 6,1 á Richter, skók Gvatemala í dagm, samkvæmt upplýsingum frá Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna. 3.5.2009 17:54
Lögreglan á Akureyri lýsir eftir stúlku Lögreglan á Akureyri lýsir eftir Ingibjörgu Sigurrósu Sigurðardóttur. 3.5.2009 15:06
Grái fiðringurinn gerir hjónaband Berlusconis að engu Forsætisráðherrafrúin á Ítalíu hyggst skilja við Silvio Berlusconi eiginmann sinn, eftir því sem fullyrt er í fjölmiðlum þar í landi. 3.5.2009 14:21
Miliband eyðir stórfé í einkaþotu David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, ætlar að eyða þúsundum sterlingspunda í einkaþotu til að ferðast um heiminn. 3.5.2009 12:08