Innlent

Borgarahreyfingin gegn skammtímalækningum

Borgarahreyfingin.
Borgarahreyfingin.

Þinghópur Borgarahreyfingarinnar lýsir furðu sinni og vanþóknun á yfirlýsingum forsætisráðherra og viðskiptaráðherra vegna yfirvofandi greiðsluverkfalls, þetta kemur fram í tilkynningu sem hreyfingin sendi frá sér fyrr í dag.

 

Þinghópur Borgarhreyfingarinnar áréttar að skuldastaða heimilanna er alvarlegri en svo að ráðið verði bót á með smáskammtalækningum.

 

Greiðsluverkfall er örþrifaráð sem engir vilja grípa til nema þeir sem ekki sjá aðrar lausnir að mati Borgarahreyfingarinnar.

 

Þá segia þau einnig að með hverjum deginum sem líður verður brýnna að grípa til heildstæðra neyðarlausna á vanda þeirra þúsunda sem tóku verðtryggð eða myntkörfuhúsnæðislán í góðri trú.

 

Þinghópur Borgarahreyfingarinnar krefst þess að stjórnvöld grípi þegar í stað til róttækra almennra aðgerða til bjargar heimilinum í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×