Leita hjónabandsráðgjafar vegna efnahagserfiðleika Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. maí 2009 13:36 Þórhallur Heimisson segir að þegar öllu sé á botninn hvolft séu efnahagserfiðleikar yfirleitt ástæða fyrir erfiðleikum í hjónabandinu.
Efnahagsaðstæður eru í öllum tilfellum nefndar sem ástæða fyrir því að fólk leitar sér hjónabandsráðgjafar, segir Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarfirði. Þórhallur hefur verið með hjónanámskeið og verið með einkatíma fyrir hjón í erfiðleikum. Kaþóska kirkjan á Írlandi gaf um helgina út skýrslu þar sem fram kemur að stöðugt fleiri nefna efnahagsaðstæður sem ástæður erfiðleika í hjónabandinu. Hið sama virðist eiga við um Íslendinga. „Það má segja að þegar fólk leitar sér ásjár þá er það alltaf út af fjölbreyttum ástæðum, það er aldrei neitt eitt. En ég verð að segja að núna í vor að þá finnst mér að öll pör sem koma, þó að það séu alls konar ástæður, að það eru alltaf efnahagserfiðleikar líka sem valda því að fólk er í svo mikilli klemmu við að finna lausn á öðrum vandræðum," segir Þórhallur. Þegar öllu sé á botninn hvolft séu efnahagsaðstæður alltaf stór þáttur í erfiðleikum fólks. Þá segist Þórhallur jafnframt finna fyrir því að fólk sé að lenda í greiðsluerfiðleikum. Þórhallur segir þó ekki að aðsókn hjóna í einkaviðtöl hjá sér hafi aukist, en aðsóknin hafi reyndar alltaf verið mikil í gegnum tíðina. Hann segist hins vegar hafa byrjað með svokölluð hamingjunámskeið í vor, þar sem hann fjallar um það hvað hægt sé að gera til að fást við aðstæður eins og þær eru núna. Aðsókn að þessum námskeiðum hafi vaxið jafnt og þétt þangað til að hann fór að tala fyrir fullu húsi.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira