Innlent

Beðið eftir reglugerð um greiðsluaðlögun

Greiðsluaðlögun er ekki enn orðin raunhæfur valkostur fyrir illa stödd heimili þar sem reglugerð með frumvarpinu hefur ekki verið endanlega útfærð. Frystingartímabili lána er í flestum tilfellum að ljúka þessa dagana og margir sitja uppi ráðalausir.

Ljóst er að staða margra heimila er grafalvarleg, og til marks um það eru umræður manna á milli um að hætta að borga af lánum sínum. Slíkt hefur hins vegar í för með sér dráttarvexti og innheimtukostnað sem gerir byrðar fólks enn þyngri.

Fjölmargir nýttu sér þann möguleika að frysta afborganir lána þegar boðið var upp á slíkt í haust, en frystingartímabilið er nú í mörgum tilfellum að renna sitt skeið og er fjöldi fólks ráðalaus.

En hvaða úrræði eru þá í boði?



Bankarnir og Íbúðalánasjóður bjóða upp á það sem kallað er greiðslujöfnun erlendra lána, en það gengur út á að fólk greiðir sömu afborgun og greidd var 2. maí 2008. Ef krónan veikist bætist ofan á höfuðstólinn samhliða því og lánstíminn lengist og öfugt ef krónan styrkist. Lánstíminn lengist því fyrst um sinn, enda hefur krónan veikst um tæp 50% ef horft er aftur til byrjun maí 2008.



Við skulum nú skoða einfalt dæmi til að sýna hvaða áhrif þetta hefur á afborganir erlendra íbúðalána:


Ef 14 milljón króna lán til 30 ára í myntkörfu var tekið 28. janúar 2008 og greitt er af því á þriggja mánaða fresti, þá hefur greiðslujöfnunarúrræðið það í för með sér að þriggja mánaða afborgun lækkar úr 417 þúsund krónum niður í 330 þúsund krónur.

Nú þegar hafa 600 manns sótt um þetta úrræði hjá Íslandsbanka. Hjá Kaupþingi nýttu um 1200 manns sér frystingarúrræðið og því má gera ráð fyrir að þorri þess hóps sæki um greiðslujöfnun. Ekki hafa fengist nýjar tölur frá Íbúðalánasjóði og Landsbankanum um fjölda umsækjenda. Þess má geta að bankarnir bjóða einnig upp á úrræði fyrir verðtryggð lán en minni sókn er í þau.

Það verður ekki horft fram hjá því að greiðslujöfnunarúrræðin duga ekki öllum - enda sum heimili á barmi gjaldþrots. Í lok mars samþykkti Alþingi frumvarp um greiðsluaðlögun, en tilgangur þess er að koma til móts við þau heimili sem eru verst stödd. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur reglugerð með frumvarpinu hins vegar ekki verið endanlega útfærð- og það þýðir að bankarnir geta ekki ennþá boðið upp á þetta úrræði sem raunhæfan valkost.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×