Innlent

Fundað um stjórnarmyndun í stjórnarráðinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á von á því að myndun nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ljúki um næstu helgi. Aðalsamninganefnd flokkanna hittist í stjórnarráðinu klukkan fjögur í dag til þess að fara yfir stöðuna.

Á fundinum er farið yfir gang mála í nefndarstarfi flokkanna, en nefndir um evrópumál, stjórnskipunarmál og ríkisfjármála hafa verið að störfum undanfarna daga. Jóhanna Sigurðardóttir segir að starfinu miði vel áfram. Rætt verður við forsætisráðherra um stjórnarmyndun og skuldir heimilanna í fréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálfsjö.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×