Innlent

Lifa bara fyrir náð og miskun

Agnar Hansson
Agnar Hansson

„Við erum undir náð og miskunn opinberra aðila komnir, við getum ekki þrætt fyrir það,“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Sparisjóðbankans. Bankinn átti 150 milljarða króna kröfur í föllnu bönkunum. Kröfuhöfum á Sparisjóðabankann var í febrúar kynnt áætlun um niðurfellingu skulda, lengingu lána og breytingu krafna í hlutafé. Bankinn hefur einu greiðslumiðlunargáttina við útlönd fyrir utan Seðlabankann.

„Við erum að kanna möguleikana á að bjarga erlendu samböndunum. Það eru verðmæti í því að halda bankanum á lífi,“ segir Agnar. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×