Innlent

Efnahagsbrotadeild fær gögn

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er heimilt, samkvæmt dómi Hæstaréttar, að fá gögn um sölu fjögurra flugvéla, sem áður voru í eigu eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. Félagið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Efnahagsbrotadeildin rannsakar sölu á fjórum Dornier-skrúfuþotum úr þrotabúinu. Gunnar Þórarinsson stjórnarformaður félagsins kærði Atla Georg Árnason fyrrverandi stjórnarformann þess, Rúnar Árnason fyrrverandi framkvæmdastjóra og Ómar Benediktsson fyrrum stjórnarformann félagsins. Málið varðar meint fjársvik og fjárdrátt vegna flugvélasölu. - jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×