Ábyrgir foreldrar kæra Blátt áfram 10. mars 2009 15:25 Jóhann Kristjánsson, formaður Ábyrgra feðra á Akureyri, segir pott víða brotinn varðandi fjársöfnun.
Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hafa lagt inn kæru til sýslumanns á Akureyri á hendur forsvarmanni Blátt áfram, Sigríði Björnsdóttur, þar sem hún er sökum um lögbrot við fjársöfnun. Að auki kærir félagið Önnu Hermínu Gunnarsdóttur fyrir sama brot, en hún er ótengd Blátt áfram. Einnig er móðir sex ára stúlkubarns kærð fyrir fjársvik en hún er sögð hafa komið fram í Kompási í mars á síðasta ári. Þar á hún að hafa haldið því fram að faðir barnsins hefði beitt stúlkuna kynferðislegu ofbeldi. Hún hafði verið beitt dagssektum vegna brota varðandi umgengisrétt föður barnsins og segir í kæru að hún hafi lýst sögu sinni í þættinum, nafn hennar kom þó aldrei fram í þeirri umfjöllun. Fjársöfnun á barnalandi Í kjölfarið hóf Sigríður fjársöfnun en í kæru segir að söfnunin hafi verið á hennar kennitölu til að standa skil á dagsektum móðurinnar. Reikningurinn hafi ekki verið á kennitölu eða forræði Blátt áfram sem eru hagsmunasamtök fórnalamba kynferðisofbeldis. Forsvarsmenn ábyrgra foreldra á Akureyri halda því fram í kæru sem þeir sendu sýslumanni á Akureyri í desember síðastliðnum að þar hafi hún gerst brotleg við lög um opinerar fjársafnanir. Að auki saka þeir Önnu Hermínu um að hafa safnað fé á spjallsvæðinu Barnaland.is (er.is) undir heitinu, singulmom. Kæran á spjallsvæði „Það er pottur brotinn í þessu máli," segir Jóhann Kristjánsson formaður félags ábyrgra foreldra á Akureyri en hann segir félagið ætla að sækja málið hart. Hann segir málið í raun sérstaklega ljóta forræðisdeilu en kæruna mátti meðal annars finna á spjallsvæðinu malefni.com. Jóhann segir að félagið hafi ekki birt kæruna inn á því svæði og segist aðspurður ekki hafa vitneskju um það hver hafi verið að verki þar. Ósmekkleg samúð Uppruna málsins má finna í Kompásþætti sem var sýndur átjánda mars á síðasta ári. Þar kom kona fram undir nafnleynd og sagði frá því hvernig ríkið beitti hana dagsektum fyrir að brjóta gegn umgengisrétti föður stúlkunnar, sem þá var fjögurra ára gömul. Hún sakaði föður barnsins um að hafa misnotað stúlkuna og var málið kært til lögreglunnar. Eftir rannsókn á málinu var það látið niður falla. Hún var þó aldrei nafngreind og andlit hennar skyggt í þættinum. Í kæru á hendur móður barnsins er því haldið fram að hún hafi vakið samúð á afar ósmekklegan hátt í þættinum. „Það var ekkert sem sýndi fram á að barnið hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi," segir Jóhann og heldur því fram að vottorð þess eðlis liggi fyrir. Hann segir með vissu að sama kona hafi verið í Kompásþættinum, þá vegna þess að barnsfaðir hennar benti félaginu á það. Safnaði fé á eigin reikning Þátturinn vakti sterk viðbrögð og meðal annars á vefsvæðinu Barnaland.is, nú er.is. Þá strax hófst söfnun fyrir móður barnsins svo hún gæti staðið undir dagsektunum á vefnum. Í kæru segir að þegar kennitölunni sem var gefinn við söfnunina á barnalandi hafi verið flett upp þá kom upp nafn Önnu Hermínu. Jóhann heldur því fram að með söfnuninni sé einnig verið að draga úr mjög mikilvægu stjórntæki sem þingunarúrræði eins og dagsektir séu. „Það myndi gera lítið gagn ef það væri alltaf safnað fyrir stöðumælasektunum, þá hefði úrræðið ekki mikil áhrif," segir Jóhann. Aðspuður hvort faðir stúlkunnar sé skjólstæðingur samtakanna segir Jóhann svo ekki vera. Vilja refsingu Í lok kærunnar segir eftirfarandi: „Því er það mjög mikilvægt að lögregla taki mál þetta föstum tökum og rannsaki málið og komist verði til botns í því hvernig kærðu ráðstöfuðu því fé sem haft var af grunlausu fólki og fólkinu gefinn kostur á að fá tjón sitt bætt og gefin verði út ákæra á hendur kærðu og þeim gerð refsing." Kæran er til meðferðar hjá sýslumanni á Akureyri og hefur verið þar í rúma þrjá mánuði.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Minntu stjórnmálafræðing á Jónas frá Hriflu „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Sjá meira