Kjartan Ólafsson: Vill selja listaverk bankanna 10. mars 2009 13:44 Kjartan Ólafsson.
Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, vill að listaverkasafnið sem nýverið komst í hendur ríkisins þegar bankarnir hrundu, verði selt. Í áskorun til forsætisráðherra segir hann að á þessum þrengingatímum þurfi Íslendingar að leita allra skynsamlegra leiða til að afla fjármagns svo ríkisvaldið geti komið til bjargar fólki og fyrirtækjum í landinu. „Nægir þar ekki að horfa eingöngu til hefðbundinna tekjustofna heldur verðum við jafnframt að leita nýrra leiða," segir þingmaðurinn. „Í því augnamiði skora ég á þig að beita þér í því að láta selja öll þau um það bil 4.000 listaverk sem voru í eigu föllnu bankanna en eru nú í eigu ríkisins; fólksins í landinu. Þjóðin þarf á þeim fjármunum að halda sem falin eru í þessum listaverkum. Hugsanlega mætti selja þessi verk á opnum uppboðum, sem haldin yrðu með reglulegu millibili næstu misserin, eða með öðrum hætti með það að markmiði að hámarka söluandvirði verkanna," segir í áskorun Kjartans. Hann segir að við eftirgrennslan hafi hann komist að því að líklega sé ekkert þessara verka undir einni milljón króna að verðmæti og mörg sem verðmetin hafi verið á marga tugi milljóna króna. Lauslega áætlað sýnist honum að að með þessum hætti geti þjóðarbúið fengið fjóra til átta milljarða króna og bendir Kjartan á að það séu miklir fjármunir þegar litlu er til að dreifa. „Það sem skiptir svo ekki minna máli er að þarna er ekki um að ræða fjármuni sem færðir eru frá einni stofnun til annarrar eða aflað með niðurskurði á þjónustu hins opinbera eða lækkun launa. Þetta eru vannýttir fjármunir sem liggja að mestu í geymslum og eru þar þjóðinni til lítils yndisauka. Við höfum ekki efni á öðru en nýta þessa fjármuni eins og málum er nú háttað hjá íslensku þjóðinni," segir Kjartan og lýkur áskorun sinni á því að segja að „eðlileg forgangsröðun, í þeirri erfiðu stöðu sem við nú erum, hlýtur að miðast að því að halda bönkunum opnum, og að þeir geti veitt almenningi og fyrirtækjum eðlilega þjónustu, frekar en bankarnir safni málverkum á veggi og í geymslur."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Minntu stjórnmálafræðing á Jónas frá Hriflu „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Sjá meira