Segir NTC borið röngum sökum 10. mars 2009 15:59 Svava Johansen
Svava Johansen eigandi tískukeðjunnar NTC segir að eigendur E-Label beri fyrirtæki sitt röngum sökum þegar því hefur verið haldið fram að NTC hafi látið stoppa framleiðslu E-Label. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Svövu Johansen sem sjá má hér að neðan. „Eigendur E-Label hafa undanfarna daga sakað NTC um aðför gegn sér og sakað NTC um að hafa komið í veg fyrir að ný fatalína E-label fáist framleidd hjá samstarfsaðila NTC í Frakklandi. Þessu hefur E-Label m.a. haldið fram í Fréttablaðinu sem og á Facebook síðu sinni þar sem fjölmargir lesendur hafa tjáð sig um málið. Okkur þykir miður hvernig málið er kynnt af E-Label og viljum við með þessari yfirlýsingu greina frá hvernig málið snýr að NTC. Málið kemur fyrst inn á borð til NTC um miðja síðustu viku þegar við heyrum af tilraunum E-Label til að fá vöru sína framleidda hjá samstarfsaðila okkar í Frakklandi. Annar eigandi E-Label hafði þá haft samband við samstarfsaðilann, kynnt sig sem fyrrverandi starfsmann NTC og viðrað hugmyndir um samstarf við E-Label. Þegar það kom upp að framleiðandinn væri bundin samningum við NTC var því svarað til að E-Label varan væri ekki seld í verslunum á Íslandi heldur væri varan fyrir Bretlandsmarkað. Með þessar upplýsingar tekur framleiðandinn viðskiptin á næsta stig sem er að skoða mögulega framleiðslu á hönnun E-Label og hvort pöntunarmagn sé í samræmi við kröfur verksmiðjunnar. Eins og fólk þekkir sem hefur komið nálægt framleiðslu fatnaðs þarf að vera samræmi á milli flækjustigs við framleiðslu, innkaupsverðs og framleiðslumagns til að framleiðandinn hafi eitthvað upp úr krafsinu. Til að gera langa sögu stutta þá var pöntunarmagn E-Label talsvert undir þeim lágmörkum sem framleiðandinn er vanur að vinna með ásamt því að varan þótti of flókin í framleiðslu og þar sat málið fast þegar NTC frétti af því. Framleiðslan var s.s. ekki hafin og engir samningar á borðinu um framleiðslumagn eða verð. Í síðustu viku þegar við heyrum sögur þess eðlis að NTC hafi stoppað framleiðslu E-Label höfum við samband við framleiðandann til að heyra hans hlið á málinu. Framleiðandinn greinir okkur frá því að hann hafi ekki getað framleitt fyrir E-Label vegna ofangreindra atriða og tjáð E-Label það. Það sé svo ranglega túlkun E-Label á þeim málalyktum að NTC hafi haft þar áhrif. Þetta leiðir svo af sér yfirlýsingar og fúkyrðakast af hálfu eiganda E-Label að NTC, jafnt fyrirtækinu, verslunum, vörum sem og eiganda. Varðandi ásakanir E-Label um að NTC sé að setja stein í götu íslenskra fatahönnuða viljum við koma því á framfæri að við höfum í gegnum tíðina selt vörur í verslunum okkar frá íslenskum hönnuðum svo sem EMAMI kjólinn, vörur frá BIRNU og Júníform. Einnig hefur NTC átt í farsælu samstarfi við Henson í gegnum tíðina. Innan NTC hafa margir hönnuðir hafið sinn feril og má þar nefna Andreu Magnúsdóttur sem átti stóran þátt í því að koma MOSS merkinu á laggirnar. Það hryggir okkur að sjá hvernig eigendur E-Label hafa ákveðið að kynna málið í fjölmiðlum og fyrir almenningi. Við sjáum ekki hvernig það er E-Label til framdráttar að tengja NTC ranglega við óheiðarlega viðskiptahætti. Við vonum að með yfirlýsingu þessari skýrist málið fyrir þeim sem ekki til þekkja og að fólk geti myndað sér sína eigin skoðun þegar hið rétta í málinu hefur komið fram. NTC vonar að hér með sé málinu lokið."
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Bílvelta á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent