Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mafíusíða á Facebook þykir uggvænleg Síða á samskiptavefnum Facebook, sem er eins konar aðdáendaklúbbur sumra alræmdustu mafíuforingja Ítalíu, hefur nú vakið ugg hjá samtökunum Libera sem berjast gegn mafíunni og áhrifum hennar. 14.1.2009 07:30
Sprengjuhótun seinkaði flugi til Pakistan Um 300 farþegum, sem fljúga áttu með pakistanska flugfélaginu PIA frá Gardermoen-flugvellinum í Ósló til Pakistan, var fylgt frá borði laust fyrir klukkan fimm í gærdag eftir að sprengjuhótun barst upplýsingaborði flugvallarins símleiðis frá Pakistan. 14.1.2009 07:26
Drukkinn dómari til ama í London Dómari á sextugsaldri við undirrétt í London hefur verið sviptur dómararéttindum í sex mánuði eftir að fylgja þurfti henni út úr réttarsalnum vegna ölvunar. 14.1.2009 07:23
Átta handteknir eftir póstrán Átta manns voru handteknir á sex stöðum í bresku borginni Birmingham í gærmorgun í mikilli lögregluaðgerð. 14.1.2009 07:21
Rússneskur togari fórst í Barentshafi Rússneskur togari sökk suðvestur af Bjarnarey í Barentshafi í gær og komst öll áhöfnin i björgunarbáta nema skipstjórinn, sem fórst. Áhöfninni var bjargað um borð í tvo aðra rússneska togara og sótti þyrla frá Svalbarða tvo slasaða úr áhöfninni og flaug með þá á sjúkrahús. 14.1.2009 07:18
Átján ökumenn ljóslausir Lögreglan á Selfossi stöðvaði átján ökumenn í gærkvöldi þar sem ljósabúnaður á bílum þeirra var ekki í lagi. Þeir voru skrifaðir upp og gefinn frestur til lagfæringa, en ekki sektaðir að svo stöddu. 14.1.2009 07:16
Brotist inn í kaffihús á Selfossi Brotist var inn í kaffihús á Selfossi í nótt og þaðan stolið fimmtán þúsund krónum í reiðufé úr sjóðsvélinni. 14.1.2009 07:14
Ölvaðir ökumenn gerðu víðreist í nótt Ölvaður ökumaður ók út af Eyjafjarðarbraut við Akureyri í gækvöldi og hafnaði ofan í skurði. Hann slapp ómeiddur en ökumaður sem kom þar að taldi hinn óheppna ekki með fullri rænu og hringdi á lögreglu. 14.1.2009 07:12
Veikur sjómaður sóttur á þyrlu Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi þegar það var statt 50 sjómílur norður af Horni síðdegis í gær. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og sendi Landhelgisgæslan þyrlu eftir manninum. 14.1.2009 07:10
Lýsa áhyggjum af breytingum á rekstri St. Jósefsspítala Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ lýsa áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á rekstri Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði. 14.1.2009 07:08
Óviðunandi ógn við ráðherra Lögreglumenn á vettvangi tóku ekki eftir því þegar mótmælandi við Alþingishúsið veittist að forsætisráðherra eftir að hafa stjakað við lögreglumanni. Forseti Alþingis segir tilburðina vera algerlega óviðunandi. 14.1.2009 06:45
Vilja bæta fyrir skemmdir á tækjabúnaði Stöðvar 2 Hópur mótmælenda býðst til að safna fé vegna skemmda sem urðu á tækjabúnaði Stöðvar 2 við Hótel Borg þegar Kryddsíldin fór þar fram á gamlársdag. Fólkið óskar eftir upplýsingum um skemmdirnar frá óháðum aðila. Jafnframt furðar hópurinn á sig því að Ari Edwald, forstjóri 365, telji sig hafa vald til að geta sagt lögreglu til hvernig hún eigi að haga störfum sínum. Undir bréfið skrifa Agnar Kr. Þorsteinsson, Björg Sigurðardóttir og Gunnar Gunnarsson. 13.1.2009 23:04
Hundrað mótmælendur handteknir í Kaupmannahöfn Hundrað manns voru handteknir í miðborg Kaupmannahafnar í dag þegar að fólk kom saman og krafðist friðar á Gaza. 13.1.2009 21:00
Minnir þingmenn Samfylkingarinnar á stefnu flokksins Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, minnir flokksfélaga sína á þingi á stefnu flokksins og sérstaklega á þann hluta hennar sem fjallar um lýðræðismál. Hún segir flokksfélaga um land uggandi vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Hlusti kjörnir fulltrúar ekki á raddir fólksins fá þeir umboð sitt ekki endurnýjað. 13.1.2009 20:41
Alda innbrota á höfuðborgarsvæðinu Alda innbrota gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið og er talið að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða í sumum tilfellum. Versnandi efnahagur er hugsanlega hluti af vandanum, segir yfirlögregluþjónn. 13.1.2009 19:45
Fjórir sendiherrabústaðir til sölu Utanríkisráðuneytið undirbýr nú sölu á fjórum sendiherrabústöðum. Um er að ræða bústaðina í New York, Washington, London og Osló. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður geti hagnast um 500 til 1000 milljónir króna á sölu fasteignanna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 13.1.2009 19:45
Óvíst með framvindu Héðinsfjarðarganga Óvissa ríkir um framvindu Héðinsfjarðarganga, þar sem kostnaður við framkvæmdina hefur stóraukist. Tékkneski verktakinn Metrostav á í vandræðum með að klára verkið. 13.1.2009 18:47
Bankastjórastöður ríkisbankanna auglýstar Stöður bankastjóra ríkisbankanna verða auglýstar lausar til umsóknar á næstu dögum. Þetta var ákveðið í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar funduðu Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Matthiesen fjármálaráðherra með formönnum bankaráða Landsbanka, Glitnis og Kaupþings í dag. Á fundinum mun hafa verið farið yfir starfsmannamál bankanna og ráðherrarnir tilkynnt formönnum bankaráðanna að það væri vilji ríkisvaldsins, sem eiganda bankanna, að stöður bankastjóranna yrðu auglýstar lausar til umsóknar. 13.1.2009 18:30
Vilja að Guðlaugur endurskoði ákvörun um St. Jósefsspítala Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum vegna ákvörðunar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um stórfelldar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Starfsfólkið vill að Guðlaugur endurskoði ákvörðun sína. 13.1.2009 20:27
Ætlar að yfirtaka olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga Evrópusambandið ætlar að yfirtaka olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga í samræmi við leynilega valdheimild, að sögn breska blaðsins Daily Express. 13.1.2009 20:04
9000 kílómetra ferðalag fyrir ABC barnahjálp Tveir bræður leggja í næstu viku upp í níuþúsund kílómetra ferðalag þar sem tilgangurinn er að safna fé frir ABC barnahjálp. 13.1.2009 19:20
Lúðvík og Guðlaugur funduðu um St. Jósefsspítala Heilbrigðisráðherra og bæjarstjórinn í Hafnarfirði funduðu um Sánkti Jósefsspítala í dag og eru sammála um að skoða verði alla heilbrigðisþjónustuna í bænum í samhengi. Bæjarstjórinn segir spítalann mikilvægan í almennri heilbrigðisþjónustu í bænum. 13.1.2009 19:00
Örvæntingar gætir meðal umbjóðanda Vinnumálastofnunar Nýtt yfirlit Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði sýnir að tæplega átta þúsund manns - eða 4,8 prósent - voru skráðir atvinnulausir í desember síðast liðnum og hafði fólki án atvinnu fjölgað um 45 prósent frá því í mánuðinum á undan. Annir eru gríðarlegar á vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. 13.1.2009 18:51
Mótmælendur lausir úr haldi lögreglu Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru lausir úr haldi lögreglu. Þetta staðfesti varðstjóri í samtali við fréttastofu. 13.1.2009 18:09
Ingibjörg ráðlagði Sigurbjörgu fyrir borgarafundinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, ráðlagði Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, stjórnsýslufræðingi, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær að nálgast ræðu sína á fundinum af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn. 13.1.2009 17:58
Sótti um stöðu saksóknara vegna bankahrunsins eftir hvatningu Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skipaði í dag til að gegna embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerði það eftir hvatningu. Hann vill ekki greina frá því hvort að Björn hafi hvatt hann til að sækja um stöðuna. Dómsmálaráðherra hafði samráð við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis þegar hann skipaði Ólaf í starfið. Nýja starfið leggst afar vel í Ólaf. 13.1.2009 17:46
Fundar um fjárstyrki og hjálparstarf vegna jarðskjálftanna Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun á morgun greina frá fjárstyrkjum og hjálparstarfi til þeirra sem urðu fyrir tjóni vegna jarðskjálfanna á Suðurlandi 29. maí sem ekki fæst bætt með öðrum hætti. Geir mun greina frá þessu á fundi með blaðamönnum á Selfossi í fyrramálið. 13.1.2009 17:12
Ólafur Þór verður sérstakur saksóknari Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að höfðu samráði við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis, falið Ólafi Þór Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, að gegna embætti sérstaks saksóknara. 13.1.2009 16:11
400.000 króna sekt vegna fíkniefnaaksturs Karlmaður var dæmdur til að greiða 400.000 króna sekt í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að hafa þrisvar sinnum verið stöðvaður af lögreglu undir áhrifum fíkniefna og í eitt sinn verið farþegi í bíl sem lögregla fann fíkniefni í. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins. 13.1.2009 15:49
Lenti með dautt á öðrum hreyflinum Lögregla og slökkvilið voru í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli nú fyrir stundu þegar kennsluvél kom inn til lendingar með dautt á öðrum hreyflinum. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu lenti vélin heilu og höldnu á vellinum. Götum í nágrenni við flugvöllinn var lokað af þessum sökum, meðal annars Snorrabrautin, en slökkvilið segir það ávallt gert í tilvikum sem þessum. 13.1.2009 15:39
Íslendingar til Zimbabwe vegna kólerufaraldurs Hjúkrunarfræðingarnir Hildur Magnúsdóttir og Maríanna Csillaq halda til Zimbabwe í dag og á morgun til að taka þátt í neyðaraðgerðum Rauða krossins vegna kólerufaraldurs í landinu. Þær munu starfa með neyðarteymum norska og finnska Rauða krossins. Fyrir er í Zimbabwe Huld Ingimarsdóttir sendifulltrúi Rauða krossins sem hefur stjórnað matvæladreifingu í landinu frá því í október. 13.1.2009 15:33
30% með bílalán í erlendri mynt Í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ er lánasamsetning íslenskra heimila skoðuð. Þar kemur fram að langflestir eða 62% eru með verðtryggt húsnæðislán í íslenskum krónum. Næst algengust eru bílalán í erlendri mynt en 30% aðspurðra eru með slík lán. 13.1.2009 15:22
Skíðasvæðið á Siglufirði opið - gott færi Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá kl 16-20 við frábærar aðstæður. Í tilkynningu frá skíðasvæðinu segir að verður og færi séu eins og best verði á kosið, S-gola, -6c° og heiðskírt. 13.1.2009 15:02
Stakk hníf í gegnum hendi manns Tuttugu og sjö ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir fyrir að hafa stungið mann með eldhúshnífi í hægri hönd þannig að hnífurinn fór í gegnum höndina. Sauma þurfti saman skurðinn sem hlaust af hnífnum. Ákæra gegn manninum var gefin út 22 desember en málið var þingfest í héraðsdómi í gær. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins. 13.1.2009 14:46
Býður sig fram gegn Geir Haarde Listamaðurinn Snorri Ásmundsson er búinn að taka ákvörðun um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í lok mánaðarins. Snorri segist ekki vera neitt sérstakur pólitíkus en telur sig geta tekið til hendinni. Hann finnur fyrir gríðarlegum stuðningi innan flokksins og segist hafa talað við stjórnmálafræðinga sem styðji við bakið á sér. 13.1.2009 14:31
Mennirnir enn í haldi lögreglu Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru enn í haldi lögreglunnar. Búist er við því að teknar verði skýrslur af mönnunum síðar í dag og þeim síðan sleppt, eins og venja er í málum af þessu tagi. 13.1.2009 13:23
Níu stöðvaðir án ökuréttinda Níu réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Að sögn lögreglu höfðu fimm þeirra þegar verið sviptir ökuleyfi og fjórir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Á sama tímabili voru fimmtíu umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en þrjú þeirra má rekja til aksturs undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 13.1.2009 13:23
Miklar hættur í kringum okkur Það eru miklar hættur á ferðinni í nálægum löndum eins og við sjáum á viðbrögðum ríkisstjórna um allan heim, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund i dag. 13.1.2009 12:34
Kraftaverkabarn í Bretlandi Jayne Soliman upplifði aldrei að sjá dóttur sína. Hún var gengin 26 vikur þegar hún missti meðvitund á heimili sínu í Bracknell. 13.1.2009 12:21
Foringjar Hamas vígreifir Um hálf milljón manna býr í Gaza borg. Óvíst er hvort Ísraelar leggja í að fara með skriðdreka langt inn í borgina. Þeir eiga erfitt með að athafna sig nema helst á aðalgötum borgarinnar. 13.1.2009 12:15
Þingvallavegur lokaður í dag Þingvallavegi númer 36 var lokað klukkan níu í morgun og verður svo fram til klukkan fimm í dag, þar sem verið er að skipta um ræsi í veginum. Vegagerðin bendir vegfarendum á að aka Suðurlandsveg og Biskupstungnabraut að Þingvöllum á meðan. 13.1.2009 12:15
Vill tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá „Atvinnuleysi er því miður að aukast en okkar verkefni er að tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá og þeir séu þar sem styst," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 13.1.2009 12:07
Atvinnuleysi jókst um 45 prósent á milli mánaða Skráð atvinnuleysi var tæp fimm prósent í desember og jókst það um 45 prósent að meðaltali frá mánuðinum á undan. Búist er við að atvinnuleysi aukist verulega nú í janúar. 13.1.2009 12:01
Segist ekki hafa hótað ræðumanni á borgarafundi Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær, sagði í ræðu sinni að ónefndur ráðherra hefði hringt í sig fyrir fundinn og hvatt sig til þess að gæta orða sinna á fundinum vegna starfsheiðurs síns og framamöguleika. 13.1.2009 11:23
Ók á barn og stakk af Ekið var á barn í Suðurhólum í Breiðholti laust upp úr klukkkan átta í morgun þegar það var á leið í skólann. Þetta gerðist á móts við Hólabrekkuskóla, og ók ökumaður af vettvangi án þess að gæta að líðan barnsins. Það slasaðist lítið en var flutt á Slysadeild til skoðunar og aðhlynningar. 13.1.2009 10:41