Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tower of London að hverfa í skýjakljúfa Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sakað Breta um að vernda ekki Westminster höllina og Tower of London fyrir skýjakljúfum og íbúðablokkum. 8.9.2008 16:46
Í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Tveir Pólverjar, sem verið hafa í haldi lögreglunnar vegna gruns um aðild að hnífstunguárás í húsi við Mánagötu í Norðurmýri um hádegisbil í gær, voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram á föstudag, eða til 12. ágúst 8.9.2008 16:33
Kim Yong Il er löngu dauður Japanskur sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu segir að leiðtogi landsins, Kim Yong Il hafi látist úr sykursýki árið 2003. 8.9.2008 16:06
Fjórðungur útgjalda ríkisins til heilbrigðisráðuneytisins Um 500 manns starfa í þeim tólf ráðuneytum sem starfrækt eru hér á landi og eru þeir um 2,5 prósent af öllum ríkisstarfsmönnum. 8.9.2008 16:03
Saksóknari vildi Ágúst vistaðan á stofnun að lokinni afplánun Í réttarhöldunum yfir Ágústi Magnússyni krafðist ríkissaksóknari þess að Ágúst Magnússon yrði beittur öryggisráðstöfunum að lokinni afplánun á fangelsisdómi sínum. 8.9.2008 16:02
Grunaður fíkniefnasali sætir ekki síbrotagæslu Hæstiréttur staðfesti á föstudag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að hafna kröfu lögreglunnar á Suðurnesjum um að maður sæti síbrotagæslu. 8.9.2008 15:46
Orkuveitan hvetur til þess að gróðurskemmdir verði rannsakaðar Orkuveita Reykjavíkur hvetur til þess að gróðurskemmdir vestan Reykjafells á Hengilssvæðinu verði rannsakaðar ofan í kjölinn. Mbl.is greindi frá því í morgun að miklar skemmdir hafi orðið á mosa á svæðinu og sérfræðingur frá Náttúrufræðistofnun sagði nær öruggt að um sé að ræða mengun af völdum brennisteinsvetnis. Þetta vill Orkuveitan kanna, „sérstaklega með það fyrir augum að kanna hvort starfsemi Hellisheiðarvirkjunar hafi haft áhrif þarna á," segir í tilkynningu frá OR. 8.9.2008 15:46
Myrtu dótturina út af skilnaði Foreldrar sautján ára gamallar pakistanskrar stúlku myrtu hana þegar hún reyndi að skilja við 45 ára gamlan mann sem hún hafði verið gift þegar hún var níu ára gömul. 8.9.2008 15:36
Enn ekki hægt að ræða við konu vegna meintrar árásar eiginmanns Lögregla hefur ekki enn getað tekið skýrslu af konu sem lögð var inn á sjúkrahús í síðustu viku en grunur leikur á að eiginmaður hennar hafi gengið í skrokk á henni. Eins og fram kom í fréttum í síðustu viku var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins og rennur það út á morgun. 8.9.2008 15:18
Obama og McCain slíðra sverðin 11. september Bandarísku forsetaframbjóðendurnir John McCain og Barack Obama ætla að gera hlé á baráttunni um Hvíta húsið á fimmtudaginn kemur en þá eru sjö ár liðin frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001. 8.9.2008 15:10
Rússar lofa að fara frá Georgíu Rússar hafa lofað að draga herlið sitt frá Georgíu innan mánaðar. Þetta var tilkynnt eftir að Nicolaz Sarkozy forseti Frakklands átti í dag fund með Dmitry Medvedev, forseta Rússlands. 8.9.2008 15:04
Ákærður fyrir að segjast hafa myrt mann Karlmaður á fimmtugsaldri á yfir höfði sér refsingu verði hann sakfelldur fyrir að hafa gabbað lögreglu. 8.9.2008 14:27
Stútur gaf upp nafn tvíburabróður við afskipti lögreglu Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og sektaði hann um 60 þúsund krónur fyrir að aka ölvaður og segja rangt til um nafn sitt þegar lögregla hafði afskipti af honum. 8.9.2008 14:20
Rússar stöðvuðu Sameinuðu þjóðirnar í Georgíu Rússneskir hermenn gerðu í dag afturreka bílalest frá Hjálparstofnunum Sameinuðu þjóðanna sem var á ferð í Georgíu. 8.9.2008 14:04
Sprengjur sprungu við tvo búlgarska nektardansstaði Fimm eru slasaðir eftir að sprengjur sprungu nær samtímis fyrir utan nektardansstaðina Panthers og Casablanca í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu í dag. Að minnsta kosti eitt fórnarlambanna er alvarlega slasað og telur lögregla öruggt að sprengingarnar tengist undirheimaátökum. 8.9.2008 14:02
Félagar í Saving Iceland sektaðir um hálfa milljón Héraðsdómur Suðurlands hefur sektað sjö félaga í Saving Iceland um samtals 550 þúsund krónur fyrir að hafa farið í heimildarleysi inn á vinnusvæði við Hellisheiðarvirkjuun og óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að hafa sig á brott. 8.9.2008 13:53
Ike yfir Kúbu Þessi gervihnattamynd sýnir fellibylinn Ike yfir Kúbu. Hann nú er sagður hafa náð fjórða styrktarstigistigi af fimm. 8.9.2008 13:44
Ákærður fyrir að kveikja í jakka annars manns Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, en til vara hættubrot, fyrir að hafa kveikt í jakka annars manns að aftanverðu. 8.9.2008 13:37
Fangelsismálastofnun leyfir Ágústi að ganga á guðs vegum Ágúst Magnússon er enn á reynslulausn og þarf því sérstakt leyfi frá fangelsismálayfirvöldum til þess að sækja biblíuskólann í Uppsölum. 8.9.2008 13:19
Lífrænar sláttuvélar slá í gegn Mæðgurnar Michelle Wendell og Angela Deaver í Nebraska lifa góðu lífi á rúmlega sexhundruð geitum sínum. 8.9.2008 13:19
Tafir vegna fjögurra bíla áreksturs á Miklubraut Nokkrar tafir eru nú á umferð á Miklubraut til móts við húsnæði 365 eftir að fjögurra bíla árekstur varð þar fyrir stundu. 8.9.2008 13:16
Futura á hausnum - Úrval-Útsýn leitar að nýju flugfélagi Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn leitar nú að nýjum aðila til að annast farþegaflug eftir að spænska flugfélagið Futura Airways var sett í tveggja daga flugbann af spænskum yfirvöldum þar til fullnægjandi greinargerð um rekstrargrundvöll félagsins liggur fyrir af hálfu stjórnenda þess. 8.9.2008 13:11
Björgvin í neytendatúr um landið Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hyggst á næstu tveimur vikum efna til funda víðs vegar um landið þar sem fjallað verður um neytendamál. 8.9.2008 12:53
Geimrusl veldur hættu Það er orðið hættulegra en áður að fara út í geiminn. Bandaríska geimeftirlitsstofnunin segir að um þrettán þúsund manngerðir hlutir sem eru stærri en tíu sentimetrar séu á braut um jörðu. 8.9.2008 12:49
Mikilvægt að breyta löggjöf á heimskautahöfunum Mikilvægt er að breyta löggjöf á heimaskautahöfunum vegna þeirra hröðu breytinga sem þar eiga sér stað Þetta segja erlendir fræðimenn sem nú sitja ráðstefnu á Akureyri. 8.9.2008 12:44
Steinmeier verður kanslaraefni jafnaðarmanna Jafnaðarmenn í Þýskalandi hafa valið Frank-Walter Steinmeier utanríkisráðherra sem næsta kanslarakandídat sinn 8.9.2008 12:20
Barnaníðingur í biblíuskóla Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð. 8.9.2008 12:15
Erfitt að koma í veg fyrir skemmdarverk ef brotaviljinn er einbeittur Erfitt er að koma í veg fyrir skemmdarverk á flugvélum sé brotaviljinn einbeittur, segir sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Spellvirkjar komust inn á Reykjavíkurflugvöll um helgina og unnu skemmdaverk á DC-3 vél Þristavinafélagsins. 8.9.2008 12:11
Með yfir 110 þúsund krónur í endaþarmi Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvö þjófnaðarbrot fyrr á þessu ári. 8.9.2008 11:58
Flott afmæli í Swazilandi Það var ekkert til sparað þegar Mswati konungur Swazilands varð fertugur á laugardaginn. Ríki hans fagnaði fertugsafmæli þennan sama dag. 8.9.2008 11:56
Ákærður fyrir að misnota vikugamla dóttur Átján ára gamall faðir í Forrest City í Arkansas er í haldi lögreglu og hefur verið ákærður fyrir kynferðislega misnotkun og ofbeldi gegn átta daga gamalli dóttur sinni. Barnið liggur nú á barnaspítalanum í Little Rock í Arkansas meðal annars með alvarlega höfuðáverka. 8.9.2008 11:46
Bandaríkjafloti gerir við hakakross Bandaríski flotinn er að verja allnokkrum milljónum króna í að gera upp fjörutíu ára gamla íbúðarskála fyrir sjóliða sína. 8.9.2008 11:36
Enn á gjörgæsludeild með lífshættulega áverka Manninum sem fannst með lífshættulega áverka við Hátún á laugardagsmorgun er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. 8.9.2008 11:33
Þriðjungur framhalds- og háskólanema vill í strætó Sex þúsund nemar hafa skilað inn umsókn um nemakort Strætós á þeim þremur vikum sem liðnar eru frá því að opnað var fyrir umsóknir. 8.9.2008 11:24
Raddir fyrir Tíbet ekki þagnaðar Nokkur vonbrigði urðu með aðsókn á samkomuna Raddir fyrir Tíbet sem samtökin Vinir Tíbets stóðu fyrir 24. ágúst, síðasta dag Ólympíuleikanna í Peking. Birgitta Jónsdóttir, formaður samtakanna, lætur þó ekki deigan síga og hyggst halda söfnuninni opinni til 15. september 8.9.2008 11:09
Verða að sníkja far með Rússum út í geiminn Útlit er fyrir að bandarískir geimfarar verði að biðja Rússa um far út í geiminn næstu fjögur árin. Ákveðið hefur verið að leggja bandarísku geimferjunum á næsta ári. 8.9.2008 10:58
Grímseyjarmál komið til saksóknara - Byrgismál á leiðinni Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur lokið rannsókn á meintum brotum fyrrverandi sveitarstjóra Grímseyjarhrepps og sent það til saksóknara til ákvörðunar um saksókn. Þá er rannsókn á meintum efnahagsbrotum í Byrgismálinu svokallað að ljúka og málið á leið til saksóknara. 8.9.2008 10:57
Ike orðinn annars stigs bylur Áfram hefur dregið úr styrk fellibyljarins Ike en hann gekk á land á Kúbu í nótt. Hann telst nú annars stigs fellibylur en var í gærmorgun fjórða stigs bylur samkvæmt hinum svokallaða Saffir-Simpson kvarða. 8.9.2008 10:37
Fjármagnar frekari leit að Maddie Breskur milljarðamæringur hefur boðið foreldrum Madeleine McCann að fjármagna héðan í frá frekari leit að telpunni. 8.9.2008 10:20
Kalli Bjarni aftur ákærður fyrir fíkniefnabrot Klukkan 10:05 var í Héraðsdómi Reykjavíkur þingfest ákæra á hendur Karli Bjarna Guðmundssyni Idolstjörnu. Ákæran varðar rúm 64 grömm af amfetamíni sem Karl Bjarni var tekinn með þegar hann dvaldi á Hótel Vík í Síðumúla þann 28. mars síðastliðinn. 8.9.2008 10:05
Fólk snyrti gróður sem vex út fyrir lóðamörk Borgaryfirvöld hvetja nú borgarbúa til þess að snyrta gróður sem vex út fyrir lóðamörk og hindrar umferð eða hylur umferðarmerki. 8.9.2008 09:29
Evrópusambandstríó á fund Medvedevs Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, heldur í dag til Rússlands þar sem hann hyggst ræða við starfsbróður sinn, Dmítrí Medvedev, um málefni Georgíu. 8.9.2008 09:17
Hefur ekið póstbíl milljón mílur Bílstjóri hjá hraðsendingafyrirtækinu UPS í Bandaríkjunum fagnaði þeim tímamótum um helgina að vegmælirinn í vinnubílnum hans, sem framleiddur er af General Motors, sýndi á ný stöðuna núll þar sem bílnum hafði verið ekið eina milljón mílna. 8.9.2008 09:02
Umferðaröngþveiti rænir Dani frítíma Danir kvarta nú sáran yfir því að tafir í umferðaröngþveiti séu farnar að ræna þá dýrmætum frí- og fjölskyldutíma í æ ríkara mæli en áður. 8.9.2008 08:57
Varað við fiskeldiskvíum á reki í Ísafjarðardjúpi Landhelgisgæslan sendi í nótt út siglingaviðvörun til skipa á Ísafjarðardjúpi vegna tveggja fiskeldisflotkvía, sem taldar eru vera á reki undan Óshlíð á millli Ísafjaðrar og Bolungarvíkur. 8.9.2008 08:50