Fleiri fréttir

Ráðherra fær einkum vín og bækur

Áfengi og bækur er það sem fyrirtæki, einstaklingar og fulltrúar erlendra ríkja hafa einkum gefið Þórunni Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, eftir að hún tók við embætti. Umhverfisráðuneytið hefur sent fréttastofu Stöðvar 2 lista yfir allar gjafir til Þórunnar eftir að hún settist í ráðherrastól.

Börn læri að segja NEI

Framkvæmdastjóri samtakanna Blátta áfram segir að börn geti komið í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi með því að læra segja NEI. Fjölskylduskemmtun var haldin í Vetrargarðinum í Smáralindinni til styrktar samtökunum í dag.

Bílvelta á Vesturlandsvegi

Bíll velti á Vesturlandsvegi við Fitjar fyrir ofan Mosfellsveit nú á sjöunda tímanum í kvöld. Sjúkrabíll og lögregla voru kvödd á staðinn en að sögn sjúkraflutningamanna komst fólkið út úr bílnum aðstoðarlaust og ekki er vitað um alvarleg meiðsl á þeim.

Enn lýst eftir vitnum að banaslysi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir vitnum að banaslysi sem varð á Kringlumýrabraut á tíunda tímanum í gærkvöldi.

Fjórir handteknir grunaðir um alvarlega líkamsárás

Lögreglan hefur handtekið fjóra menn, grunaða um aðild að alvarlegri líkamsárás í Breiðholti nú síðdegis. Lögreglan verst allra frétta að svo stöddu, en samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliði voru tveir fluttir á slysadeild.

Subaru bifreið varð alelda

Subaru bifreið varð alelda á Akureyri um fimmleytið í dag. Að sögn sjónarvotta byrjaði að rjúka úr honum í akstri.

Gámur með rækjutroll brann á Siglufirði

Talsverðar skemmdir urðu þegar eldur kviknaði í gám með rækjutroll á Siglufirði um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglunnar á Siglufirði var um að ræða mikið plast sem bráðnaði og því kom mikill reykur. Lögreglan segir að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn. Þá kviknaði í húsbíl við Stórholt 10 á Akureyri fyrir stundu og er unnið að slökkvistarfi þar.

Móðir morðingjanna baðst fyrirgefningar

Móðir tveggja drengja, sem urðu blaðaburðardreng að bana í Kaupmannahöfn fyrir helgi, baðst fyrirgefningar á gjörðum sona sinna í viðtali TV2 sjónvarpsstöðina í dag.

Líkur á að neðanjarðarhaf sé að finna á Titan

Töluverðar líkur eru á því að á Titan einu af tunglum Satrúnusar sé neðanjarðarhaf að finna. Radarmyndir frá geimfarinu Cassini sýna þetta en greint er frá málinu í nýjasta hefti tímaritsins Science.

Alvarleg kynlífskreppa herjar á Japani

Ný rannsókn hefur leitt í ljós að alvarleg kynlífskreppa herjar nú á Japani. Í ljós hefur komið að eitt af hverjum fjórum giftum pörum í landinu hefur ekki stundað kynlíf síðasta árið eða lengur.

Hitabylgjur og úrhelli dynja á Norðurlandabúum

Norðurlandabúar eiga eftir að upplifa lengri hitabylgjur og meira regn. Til dæmis er gert ráð fyrir hitatímabilum í nánustu framtíð sem standa munu níu dögum lengur en í dag.

Aftur mótmæli við kínverska sendiráðið í dag

Í dag klukkan 13, er boðað til mótmæla fyrir utan kínverska sendiráðið, Víðimel 29. Tilgangur mótmælana er að þrýsta á kínversk yfirvöld að virða mannréttindi Tíbeta og hleypa alþjóðlegum mannréttindasamtökum inn í landið og sýna Tíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í sínu eigin landi.

Áhyggjur á Ítalíu af eitruðum mozzarella-osti

Framleiðendur hins þekkta mozzarella osts á Ítalíu keyptu heilsíðu auglýsingar í öllum helstu blöðum landsins í gær til að segja neytendum að ostur þeirra væri hættulaus.

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er lokað vegna hvassviðris

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er lokað vegna hvassviðris. Búið var að boða tónleika þar eftir hádegið en að sögn framkvæmdastjóra svæðisins verður annaðhvort að fresta þeim fram á páskadag eða annan í páskum.

Banaslys á Kringlumýrabraut

Banaslys varð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík á tíunda tímanum í kvöld. Karlmaður fæddur árið 1984 sem ók mótorhjóli rétt sunnan við Listabraut lést. Tildrög slyssins eru að öðru leyti ekki kunn

Obama krefst rannsóknar í vegabréfamálinu

Barack Obama krafðist þess í dag að rannsókn verði gerð á því hvers vegna verktakar hjá utanríkisráðuneytinu í Bandaríkjunum voru að hnýsast í vegabréfaumsóknir frambjóðenda til forseta þar í landi. Komið hefur í ljós að þrír starfsmenn ráðuneytisins hafa skoðað skýrslur um þau Obama, Hillary Clinton og John McCain án heimildar.

Farið fram á gæsluvarðhald yfir sprautunálaræningjum

Mennirnir þrír sem handteknir voru fyrr í dag í Breiðholti eru nú formlega grunaðir um að hafa framið ránið á Select stöðinni í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim en verið er að kanna hvort þeir eigi aðild að öðru ráni og tveimur ránstilraunum í Breiðholti.

Einn látinn eftir skotárás í Gautaborg

Annar þeirra sem skotinn var í Gautaborg fyrr í dag er nú látinn. Tveir menn voru skotnir í árás sem átti sér stað á sporvagnastöð í borginni í dag. Vitni sáu mann um fertugt hlaupa af vettvangi með skammbyssu í hönd. Fórnarlömin eru á þrítugsaldri og fékk annar skot í bakið en hinn í brjóstkassann.

Össur segir vert að skoða þjóðaratkvæði um aðildarviðræður

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir á pistli á heimasíðu sinni að vert sé að kanna vilja þjóðarinnar til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í pistli sínum hendir Össur á lofti ummæli Björns Bjarnasonar í þættinum Mannamál á Stöð 2 þar sem hann ræddi nauðsyn þess að Íslendingar komi sér upp vegvísi um hvað eigi að gera í Evrópumálum.

Krossfestur í tilefni dagsins

Á Fillipseyjum hefur það tíðkast hjá strangtrúuðum kaþólikkum að láta krossfesta sig á Föstudaginn langa til þess að minnast þess þegar Jesús Kristur var krossfestur á sínum tíma.

Miklar skipulagsbreytingar framundan á Egilsstöðum

Miklar skipulagsbreytingar eru framundan á Egilsstöðum en til stendur að breyta miðbæ staðarins.Gert er ráð fyrir að breytingar á muni kosta tæpan milljarð króna og er reiknað með að þeim ljúki eftir 3 ár.

Slegið í gegn í Héðinsfjarðargöngum

Söguleg tímamót urðu nú undir kvöld þegar bormenn rufu einangrun Héðinsfjarðar þegar þeir sprengdu síðasta haftið í jarðgöngunum til Siglufjarðar.

Heimskur þjófur

Það eru til margar sögur af heimskum þjófum sem skildu eftir sönnunargögn á staðnum.

Veitti sprautunálaræningjanum eftirför eftir ránið

Ungur Íslendingur sem staddur er hér á landi í páskafríi varð vitni að sprautunálarráninu á Select stöðinni í morgun. Hann veitti ræningjanum eftirför og gaf síðan lögreglu skýrslu. Hann segir að ræninginn hafi verið einn á ferð.

Brúðhjónin 10 og 11 ára

Mohammed al-Rashidi er ellefu ára gamall. Hann er kvæntur frænku sinni sem er tíu ára. Það er þegar búið að gefa börnin saman en þau ætla ekki að halda upp á það fyrr en í sumar. Þá eru þau í fríi frá skólanum sínum í Saudi-Arabíu.

Verkamenn á Grenimel beðnir um að fara sér hægt

Lögreglan hafði í morgun afskipti af fjórum verkamönnum í nýbyggingu við Grenimel í Reykjavík. Ástæðan var ekki sú að banna mönnunum að vinna á þessum helga degi, heldur snérist málið um hve snemma þeir hófu vinnu sína.

Jóga og bingó í blíðviðrinu á Austurvelli

Bingóspilarar og jógaiðkendur komu saman á Austurvelli í blíðskaparveðri í dag. Bingóspilararnir voru frá Vantrú, félagi trúleysingja, en með uppákomunni voru þeir að brýna fyrir fólki að engin ástæða sé til að láta sér leiðast á föstudaginn langa þrátt fyrir að helgidagalöggjöf banni bingó og aðrar skemmtanir á þessum degi.

Sjá næstu 50 fréttir