Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvær villur við Tjörnina til sölu Tvö hús á besta stað í miðbænum eru komin á sölu hjá Eignamiðlun. Annað er á Tjarnargötu og hitt á Suðurgötu. Fermetraverðið á báðum húsum er yfir 400 þúsund krónur. 4.2.2008 10:43
Krapastífla í Elliðaám rakin til kuldakastsins Búið er að opna vegi við ósa Elliðaánna aftur en þeim þurfti að loka í morgun vegna krapastíflu sem myndaðist í ánum. Krapastífluna má rekja til kuldakastsins að undanförnu og þegar Elliðárstöðin var ræst aftur í morgun flæddi áin yfir bakka sína. 4.2.2008 10:40
Vilja gera út hryðjuverkamenn frá Noregi Islamskir öfgamenn í Noregi eru farnir að reyna að fá unga múslima til þess að heyja heilagt stríð í öðrum löndum. 4.2.2008 10:38
Réðst að gjaldkerum með orðum og öxi „Það réðst hérna maður inn með öxi og ógnaði gjaldkerum bæði með orðum og öxinni sjálfri,“ segir Már Másson upplýsingafulltrúi Glitnis en vopnað rán var framið í útibúi bankans í Lækjargötu í morgun. 4.2.2008 10:38
Tal um evruna skilar engum árangri að mati Valgerðar Valgerður Sverrisdóttir þingmaður Framsóknar segir að Samfylkingin sé ekki að ná neinum árangri með tali sínu um evruna. 4.2.2008 10:37
Tímabundin ráðstöfun að vista fanga saman í klefa Sú ráðstöfun sem gripið hefur verið til á Litla-Hrauni, að vista fanga saman í klefa, er tímabundin að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra. Hann segir að það sé aðeins í fáum klefum sem þetta sé gert. 4.2.2008 10:37
Vopnað rán í Glitni Rán var framið í útibúi Glitnis í Lækjargötu í Reykjavík nú á tíunda tímanum, eða skömmu eftir að bankinn opnaði. 4.2.2008 09:56
Einn látinn eftir sjálfsmorðsárás í Ísrael Einn hið minnsta er sagður látinn eftir að palestínskur sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sjálfan sig í loft upp í bænum Dimona í Ísrael í morgun. 4.2.2008 09:51
Furðulegt nýtt spendýr fannst í Tanzaníu Vísindamenn hafa fundið furðulegt nýtt spendýr af nagdýraætt í fjöllum Tanzaníu. Skepnan hefur hlotið latneska heitið Rhynochocyon udzungwensis og er lýst sem blöndu af lítilli antilópu og smávaxinni mauraætu. 4.2.2008 09:21
Vegum lokað vegna flóðs í Elliðaánum Búið er að loka Rafstöðvarveginum við Elliðaárnar þar sem árnar hafa flætt yfir bakka sína. 4.2.2008 09:09
Þinglýstum kaupsamningum fækkar áfram Sjötíu og tveimur kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. 4.2.2008 08:30
Níu látnir í bruna í Þýskalandi Níu manns, þar á meðal fimm börn, eru látnir eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi borginni Luwigshafen í vesturhluta Þýskalands. 4.2.2008 08:21
Spice Girls stoppa tónleikaferð sína um heiminn Spice Girls hafa aflýst því sem eftir er af tónleikaferðalagi þeirra um heiminn. Ástæðu þessa segja Kryddpíurnar vera önnur verkefni sem hafi forgang þar á meðal fjölskyldulíf þeirra. 4.2.2008 08:15
Verkfalli handritshöfunda í Hollywood að ljúka Skriður er nú kominn á samningaviðræður handritshöfunda og kvikmyndaframleiðslufyrirtækja í Hollywood. Töluverð bjartsýni ríkir í báðum herbúðum um að samkomulag sé í augsýn, jafnvel innan viku. 4.2.2008 08:11
Danir ánægðir með reykingabann á vinnustöðum Átta af hverjum tíu Dönum eru ánægðir með reykingarbann á vinnustöðum sínum sem nýlega var sett í landinu. 4.2.2008 08:07
Rólegir hveitibrauðsdagar hjá Sarkozy-hjónunum Nicolas Sarkozy, hinn nýgifti forseti Frakklands, mun ekki fara í brúðkaupsferð með annarri eiginkonu sinni, Cörlu Bruni. 4.2.2008 08:05
Samgöngur að komast á í Kína að nýju Vetrarveðrinu í suðurhluta Kína slotaði aðeins um helgina og samgöngur hafa komist á. 4.2.2008 08:03
Umsátrinu um forsetahöllina í Tsjad lokið Stjórnarhernum í Tsjad hefur tekist að leysa upp umsátur uppreisnarmanna í kringum forsetahöllina í höfuðborg landsins. 4.2.2008 08:01
Fundu 2,5 tonn af kókaíni í flutningaskipi Tollverðir og lögregla í Afríkuríkinu Líberíu lögðu hald á metmagn af kókaíni um helgina er þeir réðust um borð í flutningaskip undan ströndum landsins. Um borð voru 2,5 tonn af kókaíni. 4.2.2008 07:58
Mikil spenna fyrir forkosningarnar á morgun Á morgun þriðjudag gæti orðið ljóst hverjir verða frambjóðendur demókrata og repúblikana í forsetakosningunum seint á þessu ári í Bandaríkjunum. Kosið verður í 24 ríkjum þar á meðal tveimur hinna fjölmennustu, Kaliforníu og New York. 4.2.2008 07:54
Hálka víða á landinu og verið að moka vegi á Norðurlandi Hálka og hálkublettir eru víða á Suðurlandi, þó aðallega í uppsveitum. Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á öllum aðalleiðum. Hálka er á Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. 4.2.2008 07:41
Tólf tilboð í skráningu sjúkraskrá á Landspítalanum Tólf tilboð bárust í skráningu sjúkraskráa fyrir slysadeild Landspítalans í útboði á vegum ríkisins. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 4.2.2008 07:30
Grunaður um fíkniefnaakstur með þýfi í bílnum Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gær ökumann í Grindavík fyrir akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna. 4.2.2008 07:15
Segja fangelsið á Lilta-Hrauni yfirfullt Fullyrt er á vef Afstöðu, félags fanga, að fangelsið á Litla-Hrauni sé nú yfirfullt og því hafi verið gripið til þess ráðs að vista fanga saman í klefa. 4.2.2008 07:06
Tadic sigurvegari forsetakosninga í Serbíu Núverandi forseti Serbíu Boris Tadic hlaut meira en 50 prósent atkvæða í úrslitaumferð forsetakosninganna í landinu í dag. Kosningaþátttaka var sú mesta frá árinu 2000. Keppinautur hans Tomislav Nikolic viðurkenndi ósigur. 3.2.2008 22:50
Engum hollt að hafa völd of lengi Jón Ólafsson athafnamaður og vatnsútflytjandi sagði í Mannamáli í kvöld að hann hefði verið búinn að fá nóg þegar hann fór af landi brott og settist að í Bretlandi. Sigumundur Ernir hafði spurt hvort Jón hefði verið hrakinn burt af öflum í Sjálfstæðisflokknum. Jón svaraði að mikil átök hefðu átt sér stað en hann væri enn í flokknum. Engum flokki væri þó hollt að hafa völd of lengi. 3.2.2008 19:38
Frumvarp um varalið í undirbúningi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist vera að undirbúa frumvarp til laga um varalið þar sem björgunarsveitarmenn geti komið inn í verkefni lögreglunnar á álagspunktum. Í Silfri Egils í dag nefndi hann leiðtogafund Raegan og Gorbatsjov í Höfða sem dæmi um tilfelli þar sem varalið yrði kallað út samkvæmt lagaheimildum. 3.2.2008 19:00
Íslendingar þurfa að huga betur að sparnaði Íslendingar þurfa að herða sultarólina og huga betur að sparnaði segir hagfræðingur hjá Glitni. Skuldir heimilanna jukust um tæpa 14 milljarða á síðasta ári. 3.2.2008 18:50
Hundruð útlendinga fluttir á brott frá Tsjad Frakkar fluttu hundruð útlendinga frá Tsjad í dag. Barist er í höfuðborg landsins en forsetinn verst enn í höll sinni. 3.2.2008 18:45
Vill að allur fiskur verði vigtaður hérlendis Gunnar Bragi Guðmundsson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda segir samtökin vilja að allur fiskur verði vigtaður hér á landi áður en hann er fluttur út. Hann gefir lítið fyrir þau rök sjávarútvegsráðherra að aukning á útflutningi óunnins botnsfisks skýrist að mestu af aflaaukningu á ýsu. 3.2.2008 18:30
Neyðarteymi hjálpar fórnarlömbum mansals Í það minnsta 20 einstaklingar hafa verið seldir mansali hingað til lands síðustu ár. Buið er að stofna neyðarteymi hér á landi sem ætlað er að hjálpa einstaklingum sem seldir hafa verið mansali. 3.2.2008 18:30
38 látast í jarðskjálfta í Rúanda og Kongó Tveir snarpir jarðskjálftar urðu að minnsta kosti 38 manns að bana í Afríkuríkjunum Rúanda og Kongó í dag. Skjálftarnir voru 5,0 og 6,0 á Richter og urðu á virku eldfjallasvæði í afríska sprungudalnum. Auk þeirra sem létu lífið slösuðust að minnsta kosti 550. 3.2.2008 18:15
Telja nauðsynlegt að breyta tóbaksvarnarlögum Hópur þingmanna telur nauðsynlegt að breyta tóbaksvarnarlögum þannig að veitingamönnum verði leyft að koma upp lokuðu rými innandyra fyrir reykingamenn. Frumvarp þessa efnis er nú í smíðum. 3.2.2008 17:58
Hvalur drapst í höfn í Ísrael Ekki tókst að bjarga langreyði sem svamlaði inn í olíuhöfn í borginni Ashkelon í Ísrael í gær. Hvalurinn synti um í höfninni og þó að í fyrstu tækist að koma honum út í Miðjarðarhaf þá fór hann aftur inn í höfnina. Þar synti hann um stund en gaf svo upp öndina. 3.2.2008 17:56
Margir taka bolluforskot Þótt bolludagur sé ekki fyrr en á morgun tóku margir forskot á sæluna í dag og fengu sér súkkulaðibollu með kaffinu. Bakarar gera ráð fyrir góðri sölu en talið er að Íslendingar borði alls um 500 þúsund bollur í kringum bolludaginn. 3.2.2008 17:50
Átta létust þegar bygging hrundi á Indlandi Átta manns létu lífið á Indlandi þegar fjögurra hæða bygging hrundi í dag. Að minnsta kosti tólf slösuðust. Grunnur sem var verið að grafa í grenndinni virðist hafa veikt undirstöðu byggingarinnar, sem í var banki og hótel. 3.2.2008 17:46
Egyptar búnir að loka fyrir gat á landamærum Egyskir hermenn lokuðu í dag síðasta gatinu í landamæramúrnum við Gaza. Hamas-liðar, sem sprengdu op í múrinn fyrir ellefu dögum, stóðu nú við landamærin og bönnuðu Palestínumönnum að fara yfir til Egyptalands. 3.2.2008 17:29
Fálkinn kominn langt með fýlinn Hungraður fálki sem náði fýl í Vestmannaeyjum í gær er búinn að éta meirihlutann af honum. Gísli Óskarsson fréttaritari Stöðvar 2 í Eyjum segir að það líti út fyrir að fýllinn hafi lent í átökum við fálkann og barist fyrir lífi sínu. Það megi merkja á því að lýsi sé á fjöðrum fálkans. Þannig hafi fýllinn náð að spýja lýsi á mótherja sinn áður en hann varð undir í baráttunni. 3.2.2008 17:06
Reykingamenn leituðu skjóls í Land Rover á Búðum Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins lýsir á bloggsíðu sinni skemmtilegri dvöl á Hótel Búðum um helgina. Fyrir utan frábært eldhús og skemmtilega gátur Ævars Arnar Jósepssonar og Davíðs Þórs Jónssonar vakti úrræði reykingagesta athygli Guðmundar. 3.2.2008 16:47
Hanna Birna nýr forystumaður Sjálfstæðisflokksins? Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er í Morgunblaðinu í dag talin framtíðarforystumaður flokksins í borgarmálum. Í Staksteinum segir að í kjölfar átaka á vettvangi stjórnmála komi stundum nýir forystumenn fram á sjónarsviðið. Það hafi gerst í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins frá því að meirihluti flokksins og Framsóknar féll í október. 3.2.2008 16:03
Breyta þarf lögum í samræmi við álit mannréttindanefndar Magnús Thoroddsen hæstaréttarlögmaður telur að breyta þurfi lögum í samræmi við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið. Ísland sé aðili að alþjóðasamningnum og í úrskurðinum komi fram að ríkisstjórninni beri að taka tillit til hans og skila skýrslu innan 100 daga. 3.2.2008 14:22
Telur að borgarstjóri hafi ekki sætt ofsóknum Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur ekki að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi sætt ofsóknum fjölmiðla í kjölfar valdaskipta í borgarstjórn nýverið. Í þætti Egils Helgasonar Silfri Egils sagði hann þó að gengið hefði verið nærri Ólafi. Munur væri á að að ganga nærri einhverjum eða ofsækja. 3.2.2008 14:15
Vill færa Árbæjarsafn í miðborgina Ólöf Nordal þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í Silfri Egils fyrir stundu að hún teldi að leggja ætti Árbæjarsafnið niður og skila húsunum til baka til Reykjavíkur. Friðun húsa á Laugarvegi var til umræðu í þættinum. Bjarni Harðarson þingmaður fagnaði því að húsafriðun væri að taka við sér en taldi skyndifriðun húsanna við Laugaveg 4-6, 600 miljón króna klúður. 3.2.2008 12:45
Met í heitavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu Met var slegið í heitavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu um hádegisbil í gær. Fólk er nú fara að skrúfa fyrir þar sem hlýnað hefur í veðri. 3.2.2008 12:30
Ákvörðun menntamálaráðherra um kristin gildi erfið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, segist gera sér grein fyrir óánægju margra sjálfstæðismanna með að tilvísun til kristins siðferðis skyldi felld úr skólastefnunni. Sjálf sé hún mjög kristin og hafi þurft að liggja lengi yfir málinu. 3.2.2008 12:03