Erlent

Hvalur drapst í höfn í Ísrael

MYND/AFP

Ekki tókst að bjarga langreyði sem svamlaði inn í olíuhöfn í borginni Ashkelon í Ísrael í gær. Hvalurinn synti um í höfninni og þó að í fyrstu tækist að koma honum út í Miðjarðarhaf þá fór hann aftur inn í höfnina. Þar synti hann um stund en gaf svo upp öndina.

Hvalir eru sjaldséðir gestir í Miðjarðarhafinu en dýrafræðingar í Ísrael segja að þangað rati stundum hvalir, yfirleitt þróttlitlir og magrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×