Mikil spenna fyrir forkosningarnar á morgun 4. febrúar 2008 07:54
Á morgun þriðjudag gæti orðið ljóst hverjir verða frambjóðendur demókrata og repúblikana í forsetakosningunum seint á þessu ári í Bandaríkjunum. Kosið verður í 24 ríkjum þar á meðal tveimur hinna fjölmennustu, Kaliforníu og New York. Staðan í Kaliforníu langfjölmennasta ríki landsins er spennandi en þar mælist nú ekki marktækur munur á þeim Barak Obama og Hillary Clinton hjá demókrötum en Obama er með örlítið forskot. John McCain og Mitt Romney mælast hnífjafnir hjá repúblikönum með 38 prósent atkvæða hvor í Kaliforníu. McCain hefur hins vegar mikla yfirburði yfir Romney á landsvísu. Í New York er Clinton með nokkra forystu á Obama enda um heimaríki hennar að ræða. Á landsvísu hins vegar hefur Obama dregið Clinton uppi og þar mælist fylgi þeirra nú nær jafnt. Telja fréttaskýrendur að fylgi Johns Edwards hafi sveiflast til Obama. McCain mælist með nokkuð meira fylgi en Romney í New York. Enn einn meðlimur Kennedy-fjölskyldunnar hefur lýst yfir stuðningi við Barak Obama en það er Maria Shiver, eiginkona Arnolds Schwarzenegger, ríkisstjóra Kaliforníu. Hann aftur á móti er dyggur stuðningsmaður John MCain. Það gætu því orðið athyglisverðar umræður við morgunverðarborðið í ríkisstjórabústaðnum á næstunni.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Sjá meira