Fleiri fréttir

Frakkar koma 400 útlendingum frá Tsjad

Franski herinn hefur komið 400 útlendingum frá Tsjad, að sögn franska varnarmálaráðherrans Herve Morin. Fólkið fór með samtals fjórum flugvélum frá flugvellinum í N'Djamena, höfuðborg Tsjad. Uppreisnarmenn hafa nú umkringt forsetahöllina þar sem Deby forseti og menn hans hafa búist til varnar. Byssushvellir og sprengjugnýr berst þaðan.

Fljótfærni að McCann hjónin fengu réttarstöðu grunaðra

Alipio Ribeiro yfirmaður rannsóknarlögreglu Portúgals segir að rannsóknarlögreglumenn hafi verið of fljótir á sér að skilgreina foreldra Madeleine McCann sem grunaða í málinu. Kate og Gerry McCann fengu réttarstöðu grunaðra fjórum mánuðum eftir að dóttir þeirra hvarf úr sumarleyfisíbúð í Praia da Luz í Portúgal.

Tuttugu dæmi um mansal á Íslandi

Minnst tuttugu dæmi um mansal hafa komið upp hér á landi. Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur í Alþjóðahúsi, segist hafa hitt minnst átta fórnarlömb síðustu fjögur árin.

Bæjarstjóri stal hundi og sagði af sér

Bæjarstjóri í bænum Alice í Texas hefur sagt af sér eftir að hafa haldið hundi nágranna sins í leyfisleysi. Grace Saenz-Lopez laug því auk þess að hundurinn af Shih Tzu kyni hefði drepist. Nágrannarnir höfðu beðið Grace bæjarstjóra að líta eftir Puddles á meðan þau fóru í frí. Á meðan þau voru í burtu hringdi hún í þau og sagði að hann væri dauður.

Fimm létust í skotárás í Chicago

Byssumaður sem skaut og myrti fimm konur í fataverslun í verslunarmiðstöð í úthverfi Chicagoborgar gengur laus samkvæmt upplýsingum lögreglu. Verið er að rannsaka vettvang skotárásarinnar í Brookside verslunarmiðstöðinni í Tinley Park í Illinois.

Þrír létust í verslunarmiðstöð í S-Afríku

Þrír létust þegar veggur hrundi í verslunarmiðstöð í Suður-Afríku. Veggur á bílastæði verslunarmiðstöðvarinnar í Jóhannesaborg og hrundi ofan á bíla samkvæmt heimildum embættismanna í dag. Björgunarmenn náðu sex mánaða gömlu barni úr einum bílnum. Það hlaut einungis minniháttar meiðsl en 13 ára farþegi í sama bíl slasaðist alvarlega.

Sea Shepherd-liðum fagnað eftir mótmæli á hvalveiðum

Skipið Steve Irwin, nefnt eftir ástralska dýravininum, sigldi inn í höfnina í Melbourne í morgun. Sea Shepherd menn eru búnir að elta uppi og áreita japanska hvalveiðiflotann í suðurhöfum undanfarna daga. Paul Watson skipstjóri og leiðtogi samtakanna stóð fyrir spellvirkjum á hvalveiðibátum í Reykjavíkurhöfn fyrir rúmum tuttugu árum. Í dag var honum hins vegar fagnað sem hetju í Ástralíu.

Þúsundir flýja óeirðir í Kenía

Þúsundir íbúa flýðu þegar ættbálkagengi brenndu heimili og teekrur í Rift dalnum í Kenía í dag. Enn heldur óöldin áfram í landinu þrátt fyrir samkomulag milli stríðandi fylkinga um að enda blóðbað liðinna vikna.

Björguðu átta manns af flutningaskipi

Breskum þyrluflugmönnum tókst að bjarga fimm farþegum og þremur slösuðum skipverjum af flutningaskipi á Írlandshafi í morgun. Frystiskipið var í ólgusjó þegar þyrluflugmen breska flughersins komu að því. Þeim tókst að hífa fólkið um borð og fara með hina slösuðu á spítala.

Börðust við stjórnarhermenn í höfuðborg Tsjad

Uppreisnarmenn í Tsjad réðust inn í höfuðborg landsins í dag og virðast hafa yfirhöndina í áköfum bardögum við stjórnarherinn. Franski herinn gætir útlendinga í borginni á nokkrum stöðum.

Lögreglan prófar rafbyssur

Sérsveitarmenn lögreglunnar hafa undanfarnar vikur verið að prófa svokallaðar rafbyssur á æfingum sínum. Að æfingunum loknum verður tekin ákvörðun um það hvort lögreglan taki slíkar byssur í notkun.

ASÍ segir málsók á HB Granda mögulega

Grétar Þorsteinsson forseti Alþýðusambandsins segir koma til greina að fara í mál við HB Granda vegna uppsagna fiskverkafólks á Akranesi. Fyrirtækið hafi í nær öllum atriðum farið á svig við lög um hópuppsagnir.

Ánægður með endurskoðun mótvægisaðgerða

Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins segir ánægjulegt að ríkisstjórnin skuli ætla að endurskoða mótvægisaðgerðir sínar vegna niðurskurðar þorskkvótans enda hafi menn bent á það frá upphafi að þær myndu ekki gera það gagn sem þeim var ætlað. Best væri að auka þorskkvótann aftur innan fiskveiðiársins.

Sjávarútvegsráðherra vill halda fiskvinnslu í landinu

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra segir að leita verði leiða til að halda fiskvinnslu í landinu. Hann segir útflutningsálagið, sem afnumið var í september í fyrra, ekki hafa gert það gagn sem vonast var til.

Dagur Múrmelsdýrsins í dag

Frægasta múrmeldýr Bandaríkjanna, Punxsutawney Phil, kom út úr greni sínu í morgun og lýsti því yfir að vetri myndi ljúka eftir sex vikur. Múrmeldýrið sá skugga sinn stuttu fyrir klukkan hálf átta í morgun að staðartíma, eða rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag að íslenskum tíma.

Arnbjörg er voða vond segir Mogginn

Morgunblaðið skýrir frá því í dag að Arnbjörg Sveinsdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins stjórni með svo harðri hendi að þingmenn séu að verða brjálaðir.

Obama og McCain hljóta stuðning LA Times

Frambjóðendur forkosninga Demókrata og Repúblíkana keppast nú um suðning þekktra aðila og kjósenda með sjónvarpsauglýsingum fyrir forkosningarnar á „Ofur-þriðjudag“ en þá fara fram kosningar í flestum ríkjum Bandaríkjanna. John McCain og Barack Obama hlutu stuðning Los Angeles Times sem er eitt mest lesna dagblað í Bandaríkjunum.

Myrkir músíkdagar hefjast á morgun

Tónleikar Trio Lurra eru hluti Myrkra músíkdaga sem hefjast formlega klukkan 14 á morgun. Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi kl. 20 á mánudagskvöldið. Þar verða flutt verk eftir innlenda og erlenda höfunda.

Kosningabaráttan hafin í Rússlandi

Kosningabaráttan í Rússlandi hófst formlega í dag þegar frambjóðendur settu upp auglýsingaspjöld og plaköt víða í höfuðborginni vikum fyrir forsetakosningarnar. Frambjóðendurnir geta þó ekki byrjað að koma fram í útvarpi og sjónvarpi fyrr en næstkomandi mánudag þar sem lög banna slíkt nema á virkum dögum.

Uppreisnarmenn í Tsjad berjast í höfuðborginni

Þúsundir Tsjadneskra uppreisnarmanna fóru inn í höfuðborg Tsjad, N´Djamena, í dag og sækja nú að forsetahöllinni. Miklar skothríðir hafa heyrst í miðborginni og vitni segja skriðdreka brenna á götum úti.

Sarkozy kvænist Bruni

Nicolas Sarkozy forseti Frakklands og Carla Bruni söngkona og fyrrverandi fyrirsæta gengu í hjónaband í París í dag. Þetta er haft eftir Francois Lebel borgarstjóra Parísar í frönskum fjölmiðlum en hann gaf hjónin saman.

Japansks ofurhuga leitað í Kyrrahafi

Bandaríska strandgæslan leitar nú að japönskum ofurhuga sem ætlaði að fljúga á loftbelgi frá Japan til Oregon á vesturströnd Bandaríkjanna. Michio Kanda lét vita af sér með tveggja klukkustunda millibili. Hann var yfir Kyrrahafi, um 700 kílómetra suður af syðsta hluta Aleúteyjanna þegar síðast fréttist af honum en eftir það hefur ekkert heyrst frá honum.

Notuðu konur með Downs heilkenni í sprengjuárás

Hryðjuverkamenn í Írak virðast hafa notað tvær konur með Downs heilkenni til þess að bera á sér sprengjur sem urðu 99 manns að bana í Bagdad í gær. Mikill óhugur er í fólki í Írak vegna þessa. Ólíklegt er talið að konurnar hafi vitað um sprengjurnar eða gert sér grein fyrir þeim.

Arnbjörg Sveinsdóttir gagnrýnd í Morgunblaðinu

Arnbjörg Sveinsdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins er sökuð um að beita þingmenn flokksins hörðu varðandi ræðutíma þeirra á Alþingi. Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag kemur fram að hún sé einnig með ríkar skoðanir á því hvaða mál þingmenn flokksins eigi yfirleitt að tjá sig um.

Sprengja grandar 20 á Sri Lanka

20 manns létu lífið og rúmlega fimmtíu særðust þegar sprengja sprakk í rútu á Sri Lanka í morgun. Stjórnvöld saka skæurliða tamíla um að hafa staðið fyrir tilræðinu. Tamíl-tígrar eru á lista Bandaríkjastjórnar yfir hryðjuverkasamtök, en þeir þvertaka jafnan fyrir aðild að slíkum árásum.

Varað við frekara óveðri í Kína

Kínversk stjórnvöld vara almenning í landinu við frekara óveðri um leið og reynt er að takast á við verstu vetrarveður í meira en hálfa öld. Næstum tvær milljónir Kínverja eru nú í neyðarskýlum vegna óvenjumikilla kulda undanfarna daga. Stjórnvöld í Kína vara almenning við frekari vetrarhörkum á næstunni.

Pólland hýsir eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna

Pólland og Bandaríkin hafa náð samkomulagi í helstu aðalatriðum um að koma upp umdeildu bandarísku eldflaugavarnarkerfi í landinu. Í samningnum fá Pólverjar hjálp Bandaríkjamanna við að efla loftvarnir sínar. Bandaríkjamenn vilja einnig koma upp stöð fyrir eldvarnarflaugar og radarstöð í Tékklandi.

Hálka um allt land

Hálka eða hálkublettir eru um allt land samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar. Á Hellisheiði og í Þrengslum eru hálkublettir og á Suðurlandi einnig hálka og hálkublettir. Sömu sögu er að segja af öllum helstu leiðum á Vesturlandi eins og Bröttubrekku en snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Snjóþekja er víða á Vestfjörðum og Ófært um Eyrarfjall.

Flest skíðasvæði landsins opin

Skíðasvæði landsins verða flest öll opin í dag. Í Bláfjöllum verða allar lyftur opnar frá klukkan tíu til sex í dag. Boðið verður upp á skíðakennslu fyrir byrjendur frá klukkan 11 og skíðaleigan og veitingasalan verður opin. 18 stiga frost er á svæðinu, lygnt og færi mjög gott.

Ólöglegar öryggismyndavélar á norskum skemmtistöðum

Ný skýrsla norsku persónuverndarinnar leiðir í ljós að skemmtistaðir í Noregi starfrækja þétt net öyrggismyndavéla, sem í sumum tilvikum eru ólöglegar. Skoðaðir voru átta staðir í Ósló, Stavanger og Þrándheimi. Þeir voru með samstals fimmtíu öryggismyndavélar sem fylgdust með gestum í öllum skúmaskotum bæði innandyra og utan.

Áhyggjur af átökum í Tsjad

Ráðamenn Afríkusambandsins hafa miklar áhyggjur af átökum í Tsjad. Þar takast á stjórnarherinn og skæruliðar, sem hafa sótt í átt að höfuðborg landsins, N'Djamena. Frakkar eru með orrustuflugvélar og um eitt þúsund manna hersveit í Tsjad, samkvæmt samningi við stjórnvöld.

Konur halda körlum blót í Súgandafirði

Í kvöld verður hið árlega þorrablóT Súgfirðinga haldið með pompi og prakt. Vefurinn bæjarins Besta greinir frá því að sá háttur sé á blótum sveitunga að annaðhvort ár haldi konur blótið til heiðurs bændum sínum, en hitt árið sjá karlarnir um góublót og bjóða þá konum sínum. Nú er ár kvennanna og hafa þær staðið að undirbúningnum fyrir blótið í kvöld.

Þrír ölvaðir og þrír undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan á Selfossi tók þrjá ölvaða ökumenn úr umferð í nótt og einn, sem ók undir áhrifum fíkniefna. Þar með hafa átta verið teknir úr umferð í bænum á einum sólarhring, sem er óvenju mikið. Þar af voru tveir auk þess réttindalausir, og annar þeirra var á afskráðum bíl.

Bandaríkjamenn flýja til Mexíkó

Mexíkóskir tannlæknar streyma nú til bæja í grennd við Bandarísku landamærin til þess að þjónusta Bandaríkjamenn sem streyma þar yfir til þess að fá ódýrari þjónustu en í heimalandinu.

Sjá næstu 50 fréttir