Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ruslatunnur fyrir pappír í boði í borginni Reykjavíkurborg ætlar í átak til endurvinnslu á pappír en magn dagblaða, tímarita og markpósts hefur aukist um 76 prósent á fjórum árum. Nýjum sorptunnum sérmerktum fyrir pappír verður ekið í hús í borginni eftir helgina. 17.8.2007 13:15
Risavaxnar dráttarvélar í stað vörubíla Risavaxnar dráttarvélar hafa leyst vörubíla af hólmi í ýmiss konar vegagerð og efnisflutningum. Verktaki viðurkennir þó að það þyki varla jafntöff að aka dráttarvél og vörubíl. 17.8.2007 13:12
Dæmdir fyrir morð á tímum aðskilnaðarstefnunnar Fimm fyrrverandi öryggisverðir á aðskilnaðartímum í Suður Afríku voru í dag dæmdir fyrir að skipuleggja morð á aðgerðarsinna sem var á móti aðskilnaði í landinu. 17.8.2007 12:44
Ný tækni í flóðvörnum Í meira en öld hafa sandpokar verið eitt helsta vopn gegn flóðum. Flóðin í Bretlandi nýverið urðu tækifæri fyrir hugvitssama aðila til að prófa að koma upp mun fljótvirkar flóðvörnum. 17.8.2007 12:40
Mikill viðbúnaður vegna Menningarnætur Slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir hafa töluverðan viðbúnað vegna Menningarnætur sem fram fer á laugardag. Lögregla mun taka sérstaklega hart á unglingadrykkju. 17.8.2007 12:35
Skjálftavirkni eykst við Upptyppinga á ný Skjálftavirkni hefur tekið sig upp á nýjan leik við Upptyppinga. Frekar rólegt hefur verið á svæðinu að undanförnu en um kvöldmatarleytið í fyrradag byrjaði ný hrina sem enn stendur yfir. 17.8.2007 12:31
Vandamál hversu margar stofnanir fari fram úr fjárheimildum Fjármálaráðherra segir það vandamál hvað margar stofnanir fari fram úr fjárheimildum, en þeim hafi þó fækkað á undanförnum árum. Ríkisendurskoðun gagnrýnir í nýlegri skýrslu að framúrkeyrsla stofnana sé meira og minna látin óátalin. 17.8.2007 12:27
Mikil fjölgun umsókna skýrir meðal annars lengri biðlista Á annað þúsund börn á aldrinum 6-9 ára eru nú á biðlista hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur eftir vistun á frístundaheimili í vetur. Erfiðlega gengur að fá starfsfólk á heimilin og þá hefur umsóknum um vistun fjölgað mikið milli ára. 17.8.2007 12:20
Auðveldara að fá rokkstjörnu en smíðakennara í kennslu ."Við erum nánast með fullmannað í stöður hjá okkur og ástandið því nokkuð gott. Það sem okkur skortir eru tveir smíðakennarar. En í þessari þennslu sem er núna í byggingariðnaðinum er auðveldara að fá rokkstjörnu í heimsókn en smíðakennara í kennslu," segir Kristín Jónasdóttir grunnskólafulltrúi á Ísafirði 17.8.2007 12:16
Á slysadeild eftir bruna Tveir voru fluttir á slysadeild þegar heitavatnsleiðsla sprakk í gamla Morgunblaðshúsinu, sem nú hýsir Háskólann í Reykjavík, á ellefta tímanum í morgun. Mennirnir hlutu brunasár þegar þeir reyndu að stöðva heitavatnslekann. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu lak heitt vatn á 40 fermetra svæði í húsinu og urðu nokkrar skemmdir á innanstokksmunum. 17.8.2007 12:08
Meðlim Rauðu herdeildarinnar sleppt úr fangelsi Dómstóll í Frankfurt í Þýskalandi hefur ákveðið að sleppa Evu Haule, fyrrverandi meðlimi Rauðu herdeildarinnar, úr fangelsi. Eva var dæmd í lífstíðar fangelsi árið 1994 fyrir þrjú morð og 23 morðtilraunir vegna sprengjuárásar á bandaríska herstöð í Frankfurt. 17.8.2007 11:47
Særðist í skotárás í Árósum Þrir menn urðu fyrir skotárás í miðborg Árósa í Danmörku í nótt. Einn maður var fluttur á slysadeild með áverka á handlegg. Mennirnir biðu eftir strætisvagni við 7-11 búð á Frederiks Allé þegar grásvartan bíl dreif þar að. Fimm til sjö skotum var skotið að mönnunum og hvarf árásarmaðurinn svo á braut, segir á fréttavef Jyllands-Posten. 17.8.2007 11:43
Passaðu þig þegar þú segir það með blómum Leroy Greer er bílasali í Missouri City í Bandaríkjunum. Leroy er dálítið rómantískur. Hann sendi kærustunni sinni blómvönd og bangsa. Með korti þar sem sagði; "Vildi bara segja að ég elska þig." Ósköp sætt. Því miður sendi blómasalinn kvittunina heim til eiginkonu hans. Nú hefur Leroy höfðað mál gegn blómasalanum. 17.8.2007 11:43
Óska eftir þyrluflugpalli í Hafnarfirði Norðurflug hefur óskað eftir því við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að fá að reisa þyrluflugpall í bænum með tilheyrandi aðstöðu. Norðurflug hefur nú þrjár þyrlur í rekstri og hyggst tvöfalda þann flugflota. 17.8.2007 11:30
Listmenntaskóli í húsnæði HR við Kringluna Stefnt er að því að stofna listmenntaskóla í húsnæði Háskólans í Reykjavík við Ofanleiti þegar hann flytur í nýtt húsnæði í Vatnsmýri haustið 2010. 17.8.2007 11:04
Fangelsaðir fyrir að stofna stjórnmálaflokk Áfrýjunardómstóll í Vietnam mildaði í dag dóma yfir þrem mönnum sem voru sakaðir um að hafa dreift óhróðri um ríkisstjórnina og stofnað pólitískan flokk. Mennirnir höfðu verið dæmdir í fimm ára, fjögurra ára og þriggja ára fangelsi. Eitt ár var tekið af hverjum dómi. 17.8.2007 11:04
Vínbúðir í viðbragsstöðu Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ÁTVR, segir að forsvarsmenn ÁTVR hafi fundað með borgaryfirvöldum vegna hugmynda borgarráðs um að loka Vínbúðinni í Austurstræti. Hann segir að borgaryfirvöldum verði kynnt afstaða ÁTVR áður en hún verður upplýst í fjölmiðlum. 17.8.2007 11:03
Vilja banna ungmennum að aka um helgar Norsku samtökin Trygg Trafikk eða Örugg umferð vilja setja margvíslegar hömlur á ökuréttindi yngstu ökumanna. Meðal annars banna þeim að aka um helgar og á kvöldin. Og að hafa farþega með sér í bílnum. Samtökin benda á að slíkar takmarkanir gildi þegar í Kanada. Þar hafi banaslysum ungmenna fækkað um 30-40 prósent. 17.8.2007 10:30
Borgar Þór gefur ekki aftur kost á sér í formannsembætti SUS Borgar Þór Einarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, mun ekki gefa kost á sér þegar kosið verður um formannsembætti sambandsins í næsta mánuði. Hann tilkynnti ákvörðun sína á fundi stjórnar SUS í gærkvöldi. 17.8.2007 10:26
Þrír Sýrlendingar og Líbani sækja um hæli Fjórar manneskjur leituðu í gærdag til lögreglunnar á Egilsstöðum og óskuðu eftir hæli hér á landi. Að sögn Lárusar Bjarnasonar, sýslumanns á Seyðisfirði, kom fólkið til landsins frá Noregi með Norrænu. Samkvæmt skilríkjum er um að ræða þrjá Sýrlendinga, móður með tvö börn, og einn Líbana sem er sambýlismaður hennar. 17.8.2007 10:20
Dýrara að byggja Vísitala byggingarkostnaðar hækkar um 0,86 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitalan er nú 375,2 stig. 17.8.2007 09:25
Aflaverðmæti eykst um sex milljarða Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um sex milljarða króna á fyrstu fimm mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar á verðmæti sjávarafla frá ársbyrjun til loka maímánaðar. Verðmæti þorskafla jókst um 23 prósent frá fyrra ári. 17.8.2007 09:21
Hyggjast opna skrímslasetur á Bíldudal Félag áhugamanna um skrímslasetur á Bíldudal hefur fest kaup á gömlu Matvælaiðjunni í bænum undir setrið en ætlunin er að opna það á næsta ári. 17.8.2007 08:30
Eignaðist eineggja fjórbura 35 ára kona eignaðist eineggja fjórbura á sjúkrahúsi í Kanada á sunnudaginn. Vitað er um innan við 50 pör af eineggja fjórburum í heiminum. 17.8.2007 08:20
Hvað er afstæðiskenningin? Afstæðiskenningin er nafn á vísindakenningu sem var sett fram af Albert Einstein árið 1905. Kenningin dregur nafn sitt af afstæðislögmálinu sem svo kallast. Þetta lögmál kom fyrst fram á 16. öld og segir í grófum dráttum eftirfarandi: ... 17.8.2007 17:11
Vilja skíra barnið „@" Kínverskt par berst nú fyrir því að fá að skíra nýfætt barn sitt „@". Stjórnvöld þar í landi eru þó ekki par hrifin af hugmyndinni og segja hana vera gott dæmi um furðuleg nöfn sem verði æ vinsælli í landinu. Unga parið segist hins vegar aðeins vilja gefa króganum einstakt og nýtískulegt nafn. 16.8.2007 21:54
Sjálfsmorðum fjölgar í Bandaríkjaher Að minnsta kosti 99 bandarískir hermenn frömdu sjálfsmorð á síðasta ári og hefur sú tala ekki verið hærri í 26 ár. Samkvæmt nýrri skýrslu tóku um 17 hermenn af hverjum 100 þúsund eigið líf í fyrra en árið 2005 voru þeir rúmlega 12 af hverjum 100 þúsund. 28 af þeim 99 sem frömdu sjálfsmorð í fyrra gerðu það meðan þeir gegndu herþjónustu í Írak eða Afganistan. 16.8.2007 21:13
Skólabækurnar misdýrar eftir verslunum Í verðkönnum sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi í sjö bókaverslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag kom í ljós að mikill verðmunur er á milli verslana þegar kemur að námsbókum. Rúmlega 80 prósenta munur var á hæsta og lægsta verði á nýjum bókum og munurinn var enn meiri þegar kemur að notuðum bókum, eða 111,1 prósent. 16.8.2007 20:35
Leikskólar í sókn Á fundi leikskólaráðs Reykjavíkurborgar í gær var ákveðið að greiða tímabundin viðbótarlaun til leikskólakennara til þess að bregðast við þeirri manneklu sem nú steðjar að leikskólum í höfuðborginni. En hvað þýðir þetta og er þetta nóg? 16.8.2007 20:22
Áskorunin hljóðar upp á óbreytt ástand Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir að áskorun sem samþykkt var á fjölmennum fundi í Salnum í gærkvöldi hafi komið sér afskaplega mikið á óvart. Að hans mati hljóðar áskorunin upp á að gera einfaldlega ekki neitt á svæðinu. Hann segir að samtökum um betri byggð á Kársnesi sé greinilega einnig sama um hvort hægt sé að halda störfum í bæjarfélaginu. Hún hljómar upp á að gera ekki neitt. 16.8.2007 20:02
Hiti í íbúum Kársness Mikill hiti var á fjölmennum íbúafundi í Salnum í Kópavogi í gærkvöldi þar sem tekist var á um framtíðaruppbyggingu á Kársnesi. Bæjarstjórinn kallaði gagnrýnina nánast óvægna, en sagðist tilbúinn að skoða kröfur íbúanna. Þeir krefjast þess að upplýsingar sem bærinn afhendir varðandi skipulagið séu réttar og skora á bæinn að falla frá núverandi áformum. 16.8.2007 18:45
Eiginmaðurinn fluttur 214 km í burtu Tæplega sjötug kona í Hveragerði þarf að keyra í heila fimm klukkutíma þegar hún heimsækir mann sinn á sjúkrahúsi á Kirkjubæjarklaustri. Plássleysi á sjúkrahúsinu á Selfossi er um að kenna, en lækningarforstjóri segir um neyðarúrræði að ræða. 16.8.2007 18:45
Aðstöðuleysi og lágir launataxtar helstu skýringar biðlista Tryggingastofnun vísar því alfarið á bug að kjaradeila milli svæfingarlækna og stofnunarinnar valdi því að eitthundrað börn bíði eftir að komast í svæfingu vegna tannviðgerða. Svæfingarlæknir segir aðstöðuleysi og lága launataxta helstu skýringar á biðlistum. 16.8.2007 18:44
Erfitt að finna einn ábyrgan Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir að erfitt geti reynst að finna einhvern einn sem bera eigi ábyrgð á Grímseyjarferjumálinu, en greinilega hafi margt farið úrskeiðis. Hann telur að heimild hafi verið í lögum fyrir öllum fjárveitingum til ferjunnar. 16.8.2007 18:30
Tugir milljóna í tónleika Forsvarsmenn Kaupþings segjast frekar vilja halda tónleika fyrir alla þjóðina en nota féð og umbuna viðskiptavinum sína til dæmis með lækkun þjónustugjalda. Ekki fæst uppgefið hve mikið fyrirhugaðir afmælistónleikar Kaupþings koma til með að kosta, en ljóst er að kostnaðurinn hlaupi á tugum milljóna. 16.8.2007 18:30
Dýrara að leggja einkabílnum en einkaþotunni Aðeins kostar um fimmtán til átján hundruð krónur að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í þrjátíu klukkustundir. Ef aðeins er stoppað í sex tíma kostar ekkert að leggja á flugvellilnum. Bifreiðaeigendur þurfa hins vegar að greiða fyrir hverja mínútu sem þeir leggja bílum sínum í miðborginni. 16.8.2007 18:30
Biðlistum á BUGL vonandi eytt fljótlega Yfirlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans vonar búið verði að eyða biðlistum við deildina fyrir næsta vor, en stjórnvöld hafa ákveðið að veita hundrað og fimmtíu milljónum aukalega til deildarinnar. Hátt í tvöhundruð börn og unglingar eru á biðlista. 16.8.2007 18:30
Minnst 500 látnir Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica. 16.8.2007 18:30
Frestur til að gera athugasemdir við skipulag á Kársnesi framlengdur Frestur til að skila inn athugasemdum varðandi skipulag á hafnarsvæðinu á Kársnesi í Kópavogi hefur verið framlengdur til mánudagsins 3. september næstkomandi. Fresturinn átti upphaflega að renna út 21. ágúst næstkomandi en í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að bæjarráð hafi ákveðið að fara að tillögu Gunnars Birgissonar bæjarstjóra og framlengja frestinn. 16.8.2007 17:54
Sturla þvær hendur sínar í Grímseyjarferjumálinu Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra, segist aldrei hafa gefið fyrirmæli sem leiddu til þess að kostnaður við Grímseyjarferju fór langt út fyrir áætlun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sturlu. Hann tekur undir yfirlýsingu samgönguráðuneytisins að líta verði á málið alvarlegum augum. 16.8.2007 17:01
Skiptar skoðanir um styttingu afgreiðslutíma veitingahúsa Skiptar skoðanir eru meðal veitingahúsamanna í miðbæ Reykjavíkur um ágæti þess að stytta afgreiðslutíma veitingahúsa. Allir eru þó sammála um að lögreglan þurfi að vera sýnilegri. Borgarráð Reykjavíkurborgar ákvað í morgun að endurskoða útgáfufjölda vínveitingaleyfa og afgreiðslutíma skemmtistaða. 16.8.2007 16:15
Engan bjór í Austurstræti Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, vill samhent átak til að bæta ástandið í miðbænum. Hann er ánægður með fund borgaryfirvalda og lögreglunnar í morgun. Hann ætlar að funda með veitingahúsaeigendum í næstu viku. Björn Ingi vill að Vínbúðin í Austurstræti hætti að selja bjór í stykkjatali. Borgarstjóri tekur undir orð Björns Inga. 16.8.2007 16:03
Þrír greinst með berklasmit á árinu Þrír einstaklingar hafa greinst með berkla á íslandi það sem af er árinu. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sem nýlega voru gefin út á vef landlæknisembættisins. Í tveimur tilvikum þótti ástæða til að gangast fyrir allumfangsmikilli rannsókn til að rekja hugsanlegt smit. 16.8.2007 14:56
Trylltur á traktor Þýskur bóndi tók því illa þegar lögreglumenn stöðvuðu hann þar sem hann var að aka á þjóðvegi á traktor sínum. Bóndinn hafði ekki tilskilin ökuréttindi og hafði fengið margar viðvaranir. Nú þótti laganna vörðum nóg komið og skipuðu honum út úr traktornum. Bóndinn hélt nú ekki. Hann gaf í botn og þrusaði skrímslinu á næsta lögreglubíl. Framan á traktornum var vígalegur gaddalyftari. 16.8.2007 14:49
Íslenskir ráðherrar axla sjaldan ábyrgð Aðeins tvisvar frá stofnun lýðveldisins árið 1944 hefur það gerst að íslenskur ráðherra hefur sagt af sér í kjölfar gagnrýni. Á sama tíma þykja smámál á borð við ógreidd afnotagjöld af sjónvarpi vera nægt tilefni til afsagnar ráðherra í nágrannaríkjum okkar. Stjórnmálafræðingur telur að ráðherraábyrgð í íslenskum lögum sé ekki nægjanlega skýr og lítil hefð sé fyrir því að menn segi af sér. 16.8.2007 14:37