Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæð þjóð í 60 ár 60 ár er í dag frá því Pakistanar brutust undan nýlendustjórn Breta og stofnuðu eigin ríki. Þeim tímamótum var fagnað víða um landið í dag. Indverjar fagna sínu frelsi á morgun. 14.8.2007 19:16
Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar, þar á meðal forstjóra, verður sagt upp. Þetta er liður í endurskipulagningu en spara á í rekstri loftvarnarkerfisins. Samningi Ratsjárstofnunar við Símann um rekstur og viðhald ljósleiðarakerfis verður einnig sagt upp. Síminn hefur fengið 120 milljónir á ári til að vinna verkið. 14.8.2007 19:13
Undirskriftir gegn blokkum á Nónhæð Íbúar á Nónhæð í Kópavogi safna nú undirskriftum til að mótmæla fyrirhuguðum blokkarturnum á kolli hæðarinnar. Árni Jónsson, formaður íbúasamtaka hverfisins, furðar sig á að réttur íbúa til að verja sig sé minni þegar setja á þúsund manna byggð í bakgarðinn - heldur en þegar nágranninn vill hækka girðinguna sína. 14.8.2007 18:53
Flugorrustur æfðar við Íslandsstrendur á Norðurvíkingi Bandarískir og Norskir orrustuflugmenn börðust á F15 og F16 herþotum í lofthelgi Íslands í dag - en einungis í æfingaskyni. Loftvarnir Íslands voru æfðar suður af Reykjanesi á heræfingunni Norðurvíkingur í dag, en hún hefur tekist vel að sögn talsmanns æfingarinnar. 14.8.2007 18:51
Mistök Vegagerðar að skoða ferjuna ekki betur Vegagerðin taldi ekki réttlætanlegt að eyða meiru fé í að skoða írsku ferjuna áður en hún var keypt til Grímseyjarsiglinga. Það leiddi til þess að kostnaður við ferjuna fór hundruð milljóna fram úr áætlun. Vegamálastjóri segir Vegagerðina bera ábyrgðina. Grímseyjarferjan kostar líklega rúmar fimm milljónir á hvern íbúa eyjunnar. 14.8.2007 18:47
Fimm sinnum dýrara að grilla hér en á Spáni Það er fimm sinnum dýrara að grilla úti á Íslandi en í Suður-Evrópu. Íslendingar greiða fimm sinnum hærra verð fyrir gaskútinn en Spánverjar. Innflytjendur á gasi segja að flutningskostnaður og lítill markaður hér ráði miklu um verðmuninn. 14.8.2007 18:44
Vegrifflur geta fækkað slysum um allt að 60 prósent Vegagerðin hyggst auka öryggi vegfarenda með því að fræsa sérstakar "rifflur" í vegarkanta sem gera ökumönnum viðvart þegar bílar rása út í kantana. Reynslan sýnir að þessi aðgerð getur dregið úr slysum um allt að sextíu prósent. 14.8.2007 18:40
Dregur úr eyðingu skóga Amason Nýlegar skoðanir á regnskógum Amason sýna að dregið hefur úr eyðing skóganna um 25 prósent. Forseti Brasilíu, Luiz Inacio Lula da Silva, fangar þessu og segir að með viðsnúningi þessum sé andrúmloft jarðar laust við miljónir tonna af gróðurhúsalofttegundum. 14.8.2007 18:15
Varað við barnaperrum á barnalandi Dæmi eru um að óprúttnir einstaklingar hlaði niður myndum af börnum sem settar eru á vefsíðuna barnaland.is og dreifi áfram sem barnaklám. Á spjallþráði á barnalandi er fullyrt að fjórtán íslenskar vefsíður með myndum af börnum hafi verið misnotaðar á þennan hátt. Fólk er nú hvatt til að læsa síðunum sínum. 14.8.2007 18:01
Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp Öllum starfsmönnum Ratstjárstofnunar, 46 talsins, verður sagt upp frá og með morgundeginum. Samráð er þegar hafið við starfsmennina á grundvelli laga um hópuppsagnir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér fyrir stundu. 14.8.2007 17:10
Forseti Írans heimsækir Afganistan Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hitti afganska starfsbróður sinn Hamid Karzai í dag þrátt fyrir eindregnar óskir bandarískra yfirvalda um að Karzai tæki ekki á móti honum. 14.8.2007 16:37
Ákærður fyrir lyfjaakstur Karlmaður á fertugsaldri var í dag ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og lyfjaakstur. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og hann sviptur ökuréttindum. 14.8.2007 16:33
Með fjögur pör af handjárnum og loftbyssu Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir vopnalagabrot. Honum er gefið að sök að hafa haft í vörslu sinni 4 pör af handjárnum, loftskammbyssu og kúlur í byssuna. Lögregla fann vopnin við leit í íbúð ákærða í Hafnarfirði og krefst þess að þau verði gerð upptæk. Málið var þingfest fyrir héraðsdómi Reykjaness í dag. 14.8.2007 16:10
Of þurrt í Kína fyrir hveiti-, og hrísgrjónarækt Ein helsta búgrein Kína, hveiti-, og hrísgrjónarækt, gæti heyrt sögunni til því ræktunarskilyrði eru einfaldlega ekki fyrir hendi í landinu. Þrátt fyrir að flóð skeki mörg svæði Kína yfir sumartímann er sextíu prósent hins ræktarlega lands of þurr fyrir hveiti-, og hrísgrjónarækt. 14.8.2007 16:03
Missti fótinn en tók ekki eftir því Japanskur mótorhjólamaður sem lenti í slysi á hjóli sínu áttaði sig ekki á því að hann hafði misst fótlegginn fyrr en hann hafði ekið áfram um tveggja kílómetra leið 14.8.2007 15:39
Þurfti að dúsa uppi í tré í heila viku Ástralskur bóndi þurfti að dúsa uppi í tré í heila viku þegar hann álpaðist inn á svæði sem krökt var af krókódílum. Þegar hann áttaði sig á hættunni rauk hann upp í tré og hafði hann aðeins tvær samlokur til að seðja sárasta hungrið. 14.8.2007 15:27
Mattel leikföngin í Leikbæ skaðlaus Elías Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Leikbæjar, segir að engin gölluð Mattel leikföng séu í sölu hjá þeim. Hann segir að Leikbær hafi skrifað bréf til bandaríska leikfangaframleiðandans Mattel eftir að fyrirtækið innkallaði níu milljónir leikfanga. Talið var að leikföngin innihéldu blý og segulstál sem gætu verið hættuleg börnum. 14.8.2007 15:21
Geimgangan gekk vel Skipt var um einn af fjórum snúðvísum í Alþjóðageimstöðinni í gær. Tveir áhafnarmeðlimir geimskutlunnar Endeavour, sem stödd er við stöðina, héldu í geimgöngu í gær og komu 272 kílógramma nýjum snúðvísi á sinn stað. 14.8.2007 14:49
Mattel innkallar milljónir leikfanga Bandaríski leikfangaframleiðandinn Mattel hefur innkallað níu milljónir leikfanga sem framleiddar voru í Kína. Þetta er í annað skiptið á tveimur vikum sem fyrirtækið neyðist til að innkalla leikföng í milljónavís. Um er að ræða leikföng sem talin eru innihalda blý auk þess sem að í sumum leikfangana séu lítil segulstál sem reynt geta hættuleg börnum. 14.8.2007 14:41
Hefur áhyggjur af því að frístundakortin verði misnotuð Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, segir að borgaryfirvöld hafi áhyggjur af því að einhver félög kunni að nýta sér frístundakort ÍTR til að hækka gjaldskrár sínar. Því hafi borgin kortlagt gjaldskrár aftur í tímann til að koma í veg fyrir óeðlilegar hækkanir. 14.8.2007 14:23
Gul lofar áframhaldandi aðskilnaði Abdullah Gul, forsetaframbjóðandi AK flokksins í Tyrklandi lofaði því í dag að stjórnmál og trúarbrögð verði áfram aðskilin í landinu, nái hann kjöri. 14.8.2007 13:36
Vegagerðin ber ábyrgð á mistökum varðandi nýja Grímseyjarferju Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir að Vegagerðin ber ábyrgð á því hvernig málum er komið með endurnýjun á Grímseyjarferjunnar og þar með hann. Hann segist ekki ætla segja upp störfum vegna málsins enn sem komið er. 14.8.2007 13:33
Krafist að Marta Lovísa Noregsprinsessa afsali sér krúnunni Krafan um að Marta Lovísa Noregsdrottning afsali sér titli sínum verður háværari með hverjum deginum. Hún er sökuð um að nota sér titilinn og frægðina sem honum fylgi til að græða peninga. Prinsessan hefur komið á fót skóla þar sem nemendum er kennt að tala við engla. 14.8.2007 13:18
Ritar forstjóra Símans bréf og fer fram á skýringar Bæði slökkviliðsstjórinn og bæjarstjórinn í Bolungarvík gagnrýna harðlega þau vinnubrögð sem Síminn viðhafði þegar símasamband í bænum var rofið í nótt. Bæjarstjórinn ritar nú forstjóra Símans bréf þar sem hann fer fram á skýringar á því hvers vegna bæjaryfirvöld og viðbragðsaðilar hafi ekki vitað af málinu fyrr en í gær. 14.8.2007 13:16
Erlendum starfsmönnum fjölgar Júlí er annar mánuðurinn í röð þar sem töluvert fleiri starfsmenn koma til landsins en raunin var á sama tíma í fyrra. Í júlí í ár voru útgefin atvinnuleyfi og fjöldi skráninga samtals 936 samanborið við 450 í júlí í fyrra. 14.8.2007 13:10
Sextíu særðust í hryðjuverkaárás í Rússlandi í morgun Minnst sextíu særðust í hryðjuverkaárás á lest í Rússlandi í morgun. 14.8.2007 13:08
HB Grandi segir ekki hvað þeir ætla með milljarða lóð Á fundi stjórnar Faxaflóahafna síðdegis í dag verður m.a. rætt um óskir HB Granda um að fá ca. 8000 fm lóð til afnota í Örfirisey. Eggert B. Guðmundsson forstjóri HB Granda segir í samtali við visir.is að hann sé ekki tilbúinn að greina frá því til hvers fyrirtækið ætli sér að nýta lóðina. Um er að ræða dýrustu lóðir í borginni og má áætla að virði lóðar þeirrar sem HB Grandi sækir um sé ekki undir 1,5 milljarði kr. 14.8.2007 13:00
Æfa flutning liðsafla til landsins á ófriðartímum Heræfingin Norður-Víkingur hófst formlega í morgun, en síðustu þátttakendurnir komu hingað til lands í gær. Alls koma um þrjú hundruð manns að æfingunni, frá Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku og Noregi. Atlantshafsbandalagið kemur einnig að æfingunni. Henni er skipt í tvennt, loftvarnaræfingu og æfingu gegn hryðjuverkum. 14.8.2007 12:58
Vegagerðin skili verk- og kostnaðaráætlun fyrir vikulok Samgönguráðuneytið hefur falið Vegagerðinni að mynda umsvifalaust sérstakan verkefnahóp í kjölfar svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurbætur á nýrri Grímseyjarferju. Ráðherra hefur einnig óskað eftir nákvæmri verk- og kostnaðaráætlun og á að skila henni nú fyrir vikulok. Stjórnsýsluúttekt verður einnig framkvæmd á Vegagerðinni. 14.8.2007 12:54
Pakistanar fagna 60 ára sjálfstæði Sextíu ár eru í dag liðin frá því Pakistan fékk sjálfstæði frá Bretum. Þeim tímamótum er fagnað í landinu í dag. 1947 var landið sem nú er Pakistan enn hluti af Indlandi sem Bretar réðu þá. Pakistan varð sjálfstætt ríki 14. ágúst það ár, og Indland degi síðar. 14.8.2007 12:45
Kona látin úr saurgerlasmiti á Skotlandi Rúmlega sextug kona er látin og fimm eru mikið veikir vegna saurgerlasmits í Paisley í Skotlandi. Talið er að fólkið hafi smitast þegar það borðaði kalt kjötálegg úr sælkeraborði verslunarkeðjunnar Morrisons. Verslunarkeðjan hefur tekið kjötið úr sölu, og segist í yfirlýsingu miður sín vegna atviksins. 21 létust úr sömu tegund gerilsins í Bretlandi árið 1996. Einkenni saurgerlasmits eru magakrampar, niðurgangur, ógleði og sótthiti. 14.8.2007 12:15
Kæra fund til FME þar sem atkvæðaskrá hafi verið röng Deilunum um sameiningu Sparisjóðs Skagafjarðar og Sparisjóð Siglufjarðar virðist hvergi nærri lokið. Hópur smærri stofnfjáreigenda hefur kært aðalfund Sparisjóðs Skagafarðar sem fram fór í gær til Fjármálaeftirlitsins á þeim grundvelli að atkvæðaskrá á fundinum hafi verið röng. Hann sé því ólöglegur. 14.8.2007 12:12
Skýrsla um Grímseyjarferju reiðarslag Kolsvört skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup á Grímseyjarferju er reiðarslag, segir Kristján Möller samgönguráðherra. Hann rekur framúrkeyrsluna meðal annars mega rekja til skipaverkfræðings sem Vegagerðin fékk ráðgjöf hjá. 14.8.2007 12:02
Innbrotahrina á Selfossi í nótt Brotist var inn í fjögur fyrirtæki í Gagnheiði á Selfossi í nótt. Lögreglan segir að peningum og ýmsum lausamunum, þar á meðal tölvum, hafi verið stolið. Þá hafi ýmsar skemmdir verið unnar. Að sögn lögreglunnar er ekki vitað hverjir voru að verki en málið er í rannsókn. 14.8.2007 11:53
Síminn tilkynnti aðeins tveimur fjölmiðlum um símasambandsleysi Upplýsingafulltrúi Símans segir að fyrirtækið hafi sent út tilkynningu þess efnis að símasambandslaust yrði í Bolungarvík strax á Sunnudag. Rafmagnið var tekið af í nótt og hefur bæjarstjórinn gagnrýnt að bæjarbúar hafi ekki verið látnir vita fyrr en síðdegis í gær. Tilkynningin frá Símanum var hins vegar aðeins send til Ríkisútvarpsins og á ritstjórn Bæjarins besta. 14.8.2007 11:48
Gin- og klaufaveiki mögulega komin upp á fjórða bænum Yfirdýralæknirinn í Bretlandi segir grun um gin- og klaufaveiki á fjórða bænum í Kent. Í samtali við BBC vildi Debby Reynolds ekki gefa upp hvar bærinn er, en sagði að öryggissvæði hafi verið afgirt kringum hann. Beðið er niðurstöðu úr rannsóknum á nautgripum á bænum, en Reynold benti á að margt væri líkt með þessu máli og öðru sem kom upp í síðustu viku þegar grunur um smit á bæ í Surrey reyndist rangur. 14.8.2007 11:25
Handtökuskipun á eiganda Man City staðfest Hæstiréttur í Tælandi hefur staðfest handtökuskipun sem gefin var út á hendur Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra landsins og eiginkonu hans, fyrir skömmu. Handtökuskipunin var upphaflega gefin út vegna þess að Thaksin mætti ekki fyrir rétt til að svara spillingarákærum vegna sölu á landi sem hann átti í miðborg Bangkok árið 2003, þegar hann var ennþá forsætisráðherra. 14.8.2007 10:30
Rafmagni komið á í Kópavogi Rafmagni hefur verið komið á í Kópavogi en rafmagn fór af í Sala- og Kórahverfi og í Hvörfum rétt fyrir klukkan tíu. Bilunin hefur verið rakin til þess að grafinn var í sundur háspennustrengur. 14.8.2007 10:27
Sýslumaðurinn á Selfossi sorgmæddur Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir þau slys sem hafa orðið í umferðinni undanfarið vera mjög sorgleg. Hann segir það vera algert grundvallaratriði að fólk noti bílbelti og viðeigandi öryggisbúnað fyrir börn. Þá segir hann mikilvægt að fólk aki varlega og í samræmi við aðstæður. 14.8.2007 10:15
Banvænn akstur í umdæmi Selfosslögreglu Af sjö banaslysum sem orðið hafa í umferðinni í ár hafa fjögur þeirra verið í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Þá lést ökumaður eftir árekstur bifhjóls og strætisvagns við Akranes 16. júlí síðastlðinn. Í byrjun júlí lést ökumaður eftir bílveltu við Norðurá og banaslys varð eftir bílveltu í Hörgárdal í mars. 14.8.2007 09:53
Svört skýrsla um Grímseyjarferju Í svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurnýjun Grímseyjarferju gagnrýnir stofnunin harðlega verklag yfirvalda. Samgöngu- og Fjármálaráðuneyti, ásamt Vegagerðinni, gerðu með sér samkomulag um að fjármagna kaupin og endurbæturnar með ónýttum heimildum Vegagerðarinnar. Stenst á engan hátt ákvæði fjárreiðulaga og getur ekki talist til góðrar stjórnsýslu, segir stofnunin. 14.8.2007 09:50
Íslaust Norðurheimskaut árið 2040 Vísindamenn búast við því að magn íss á norðurheimskautinu muni ná metlægðum í lok þessa sumars. Mælingar sem Snjó og ís rannsóknarstofnun Bandaríkjanna gerði benda til þess að um þrjátíu prósent minna sé af sjóís nú en í meðalári. Þar sem ís heldur áfram að bráðna fram í miðjan september reikna vísindamennirnir með því að þá verði minna af ís en nokkru sinni áður. Þeir spá því að norðurheimskautið verði orðið íslaust með öllu á sumrin árið 2040. 14.8.2007 08:58
Bandaríkjamenn kanna tilkall til norðurskautsins Skip á vegum bandarísku strandgæslunnar er nú á leið í rannsóknarleiðangur á norðurskautið til að kortleggja sjávarbotninn fyrir norðan Alaska. Markmið leiðangursins er að athuga hvort hluti norðurskautsins megi teljast vera bandarískt landsvæði. Bandaríkjamenn neita því hins vegar að ferðin tengist vaxandi samkeppni þjóða um yfirráð yfir Norðurpólnum. 13.8.2007 23:16
Áfram reynt að bjarga námuverkamönnunum í Utah Björgunarmenn í Utah fylki í Bandaríkjunum undirbúa nú að bora þriðju holuna í átt til námuverkamannanna sex sem enn er saknað eftir kolanámur hrundu saman síðastliðinn mánudag. Ekkert hefur til mannanna spurst frá því námurnar hrundu og því ekki vitað hvort þeir séu enn á lífi. 13.8.2007 22:54
Keyrt á tíu ára gamlan dreng í Búðardal Keyrt var á tíu ára gamlan dreng á Vesturbraut í Búðardal um fjögurleytið í dag. Drengurinn hjólaði í veg fyrir bifreið með fyrrgreindum afleiðingum. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. 13.8.2007 22:17